« Nýja Sigur Rósar platan | Aðalsíða | Bensínverð »

Nýr sími. Jei!!!

18. ágúst, 2005

Einsog glöggir lesendur hafa tekið eftir, þá hefur mig langað í nýjan síma í talsverðan tíma. Jæja, í dags varð loksins af því að ég fékk nýjan síma

Ég hafði verið spenntastur fyrir Morotola Razr, en eftir að ég spjallaði við netkærustuna mína, þá ákvað ég að kíkja á nýja Samsung símann. Og eftir smá pælingar, þá skellti ég mér á Samsung E730. Ég hef átt E700 típuna í nærri tvö og var orðinn virkilega ánægður með Samsung. Ég varð að fá mér clam-shell síma og það virðist vera sem að Samsung séu með bestu línuna í þeim símum.

Allavegana, nýji síminn minn er yndislegur. Hann hefur allt, sem mig hefur vantað. Hann lagar gallana í gamla símanum og bætir við alls konar dóti, sem ég vissi ekki að ég hefði nokkra þörf fyrir - og þrátt fyrir það er hann minni og léttari síminn minn. Ég á eftir að redda mér Bluetooth tengi fyrir Makkann minn til að sjá almennilega hverng myndirnar úr símanum koma, en mér sýnist þær vera virkilega skýrar og góðar. Svo tekur hann líka upp vídeó, sem mér finnst stórkostlega magnað og núna fæ ég öll mörkin með Liverpool send í símann.

Er ekki tæknin yndisleg? Ég elska ný tæki!


Já, og ég fæ gæsahúð þegar ég heyri byrjunina á Hoppípolla. Sigur Rós er æði!

Einar Örn uppfærði kl. 22:18 | 220 Orð | Flokkur: Tækni



Ummæli (4)


veiiiiii til hamingju með nýja símann!!! nú erum viði alveg eins svoooo gaman að eiga nýtt tæki!:-)

katrín sendi inn - 18.08.05 23:05 - (Ummæli #1)

Ef þú ert ekki Bluetooth-aður þá getur þú sent myndina sem MMS á netfangið þitt. Þá færðu póst með myndinni sem viðhengi. Kostar reyndar eitthvað en reddar manni þegar maður er ekki með BT nálægt.

Tryggvi R. Jónsson sendi inn - 19.08.05 09:38 - (Ummæli #2)

Jamm, ég hafði prófað það, en var of nískur til að senda þetta sem MMS :-)

Einar Örn sendi inn - 19.08.05 09:51 - (Ummæli #3)

Iss, bara kaupa minna bensín :-) :-)

Tryggvi R. Jónsson sendi inn - 19.08.05 12:20 - (Ummæli #4)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu