« Ferðaplan | Aðalsíða | Deuce BMG »

Tónar

24. ágúst, 2005

Nýji síminn minn er algjört æði. Eini gallinn er að hringitónarnir eru allir óþolandi. Þar sem að ég gleymi oft símanum á skrifborðinu inní vinnu, þá vil ég hafa tón, sem gerir starfsfólkið þar ekki geðveikt.

Veit einhver hvar ég get fundið .MP3 hringitóna, sem eru bara einfaldir. Einföld hringing, ekki einhver brjáluð lög með flautum og látum. Ég hef prófað að hafa gott lag sem hringitón, en ég kann best við að hafa bara einfaldan tón. Hins vegar þá finn ég ekkert svo einfalt á netinu.


Einnig, ef þú ert vinur minn og átt heima í símaskránni í símanum mínum. Málið er að gaurarnir hjá Samsung umboðinu eyddu allri símaskránni minni og ég er því í djúpum skít varðandi símanúmer vina og kunningja. Ég man svona 2 númer hjá vinum mínum, en öll önnur númer man ég ekki. Er búinn að finna flest vinnu símanúmerin, en er of latur til að leita upp öll vinanúmer.

Þannig að ef þú ert vinur minn eða kunningi og veist að þú átt að vera í símaskránni minni, sendu mér email á einarorn ( @ ) gmail.com. Mig vantar sem flest gsm og heimanúmer. Vantar til að mynda öll númer hjá stelpunum í mínum vinahóp.

Einar Örn uppfærði kl. 20:08 | 202 Orð | Flokkur: Tækni



Ummæli (4)


Ef síminn þinn er með infrarauðu tegni (sem er mjög líklegt) geturðu bara notað infrarauða tengið á tölvunni þinni til að flytja þau MP3 lög/lagabúta sem þú villt nota sem hringitóna úr tölvunni yfir í símann… þú getur líka sótt hringitóna á gegnum wapið á símanum (amk ef þú ert með GSM hjá Símanum) eða á siminn.is - Samt langskemmtilegast að nota sína eigin MP3 tóna til að vera með aðeins öðruvísi en allir hinir:-)

Sigga sendi inn - 25.08.05 14:56 - (Ummæli #1)

Jamm, Sigga - mér hefur sko tekist að koma MP3 lögum inná símann, en vandinn er bara að mér vantar bar .MP3 skrár, sem eru bara með einföldum hringingum. Vil ekki hafa heilt lag. :-)

Einar Örn sendi inn - 25.08.05 21:32 - (Ummæli #2)

áttu ekki e-r númer í addressbook? geturu ekki notað isync til að ná e-u tilbaka?

Jensi Selfoss sendi inn - 26.08.05 16:44 - (Ummæli #3)

Nei, iSync virkar ekki enn með þessum nýja síma.

En jú, ég er búinn að vera að pikka þetta af ýmsum stöðum. Komst allavegana að því að annaðhvort á ég enga vini, þeir vilja ekki að ég hringi í þá, eða þá að þeir lesa ekki þessa síðu. :-)

Einar Örn sendi inn - 26.08.05 17:03 - (Ummæli #4)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu