« Síðustu dagar (uppfært) | Aðalsíða | Ástandid i Bandarikjunum »

Ferðalag á morgun

30. ágúst, 2005

belize-12.jpg

Ok, ferðalag á morgun. Er kominn með í magann. Er ekki búinn að pakka ennþá, var í vinnunni til klukkan 7 í kvöld og hef hreinlega ekki haft tíma. Ætla að gera það á eftir.

Planið er flug til Baltimore seinnipartinn á morgun og svo flug til Mexíkóborgar gegnum Miami á fimmtudagsmorgun. Ef allt gengur eftir ætti ég að vera kominn til Mexíkóborgar um 2 leytið á fimmtudaginn.

Annað er ekki planað nema að ég á flug til Baltemore frá Gvatemala borg 1.október. Þannig að ég hef einn mánuð til að koma mér frá Mexíkóborg til Gvatemala borgar. Ég veit ekki alveg hvernig ég geri það og í hversu stórum skrefum. Ég hef bara búið til í hausnum lauslegan lista yfir þá staði, sem mig langar til að sjá. Þeir eru t.d.

Ég veit ekki hvort ég kemst á alla staðina né hvað mun bætast við eða hversu lengi ég ætla að vera á hverjum stað. Það kemur bara í ljós.

En ég stefni allavegana á að uppfæra þessa síðu reglulega á meðan á ferðalaginu stendur.

Einar Örn uppfærði kl. 19:26 | 221 Orð | Flokkur: Ferðalög



Ummæli (8)


Góða ferð!

Erna sendi inn - 30.08.05 21:09 - (Ummæli #1)

Já, góða ferð. Ég treysti því að það verði e-hjar myndir eftir ferðina. Stórefa að ég fari e-htíma á þessar slóðir. Er í lagi að forvitnast um ferðakostnað? Þ.e. flug frá/til BWI og gistingu. Gróft áætlað náttúrulega.

kv, tobs

Tobbi sendi inn - 30.08.05 21:48 - (Ummæli #2)

Takk!

Og flugkostnaður frá BWI er 38.000. Það er BWI-Mexíkó og Gvatemala-BWI. Flogið með American.

Áætlaður kostnaður per dag er svona um 3000 krónur - gisting, matur og rútumiðar. Sjáum svo hvort það stenst. :-)

Einar Örn sendi inn - 30.08.05 22:12 - (Ummæli #3)

Góða ferð bigtimeöööfund

Emma sendi inn - 30.08.05 22:38 - (Ummæli #4)

Hef mikið heyrt um að Utila sé góður staður til að kafa í Honduras - já og ódýrt líka að læra. Vinur minn var þarna um daginn og var mjög ánægður.

Skemmtu þér vel!

Pála sendi inn - 31.08.05 02:02 - (Ummæli #5)

Vá hvað þetta á eftir að verða geggjað ferðalag hjá þér!
góða skemmtun og góða ferð :-)

heidi sendi inn - 31.08.05 10:13 - (Ummæli #6)

Þá missirðu af þessu:

Alþjóðleg ferðahátíð í Norræna húsinu - Ferðaráðstefna 8.-10. september Í september fer fram óvenjulegur viðburður hér í Reykjavík; Icelandic Geographic Travel Summit: http://icelandicgeographic.is/islenska.html Meðal þátttakenda eru t.d. stofnendur og eigendur Lonely Planet ferðabókaútgáfunnar, þau Tony og Maureen Wheeler, Keith Bellows, aðalritstjóri National Geographic Traveler og ferðarithöfundurinn heimsfrægi Bill Bryson. Aðgangur ókeypis
JBJ sendi inn - 31.08.05 15:21 - (Ummæli #7)

ohhh nú ættirðu að vera kominn til el D.F. :-) vá hvað ég er að deyja úr öfund….

Inga Lilja sendi inn - 01.09.05 15:19 - (Ummæli #8)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu