« september 26, 2005 | Main | október 03, 2005 »

Mið-Ameríkuferð 10: Cancun

september 29, 2005

Jei, kominn til Cancun. Komst aldrei hingað í spring break í háskóla. Það næsta, sem ég komst var Panama City Beach á Florida. Lonely Planet bókin mín er samt algjörlega á móti Cancun og segir að það sé hallæris-staður með fullt af blindfullum bandarískum krökkum! Hvenær hefur það nú talist ókostur, spyr ég?

Allavegana kom hingað klukkan 3 í gærnótt. Anja er eitthvað að vesenast í banka (mín ráðleggging: Ekki fá ykkur kreditkort hjá Deutche Bank, þau eru drasl. Íslandsbanki er miklu betri!) og því hef ég ekki ennþá komist á ströndina þrátt fyrir að veðrið sé æði. Hef líka núna verið í Mexíkó í meira en 12 klukkutíma án þess að fá mér tacos al pastor. Það er hneyksli. HNEYKSLI!


Komst ekki í bláu holuna. Fólkið, sem átti pantað með okkur í ferðina veiktist og því varð að fresta ferðinni um tvo daga. Við Anja fórum þess í stað í köfun útí kóralrifin rétt fyrir utan Caye Caulker. Sáum risa skjaldböku og fullt af dýralífi, en því miður enga hákarla. Verður að bíða betri tíma.

Vippuðum okkur svo yfir til meginlandsins og til Orange Walk, sem er bær útí rassgati í Belize. Þaðan tókum við svo 2 tíma bátsferð í gegnum regnskóginn til Lamanai, Maya borgarinnar. Nokkuð interesting, þrátt fyrir að Tikal hafi jú verið talsvert áhrifameira. En bátsferðin var skemmtileg, þrátt fyrir að þýsku fuglaskoðararnir hafi látið fararstjórann stoppa óþarflega oft. Ég get hreinlega ekki tapað mér yfir fuglaskoðun, sama hvað ég reyni.

Þetta var jú í gær og um kvöldið keyrðum við að landamærunum og svo í ískaldri glæsirútu (jamm, við erum komin í siðmenninguna í Mexíkó) alveg hingað til Cancun. Á leiðinni var svo sýnd Shaolin Soccer á spænsku. Það er mikið þrekvirki í kvikmyndagerð.

Í dag: Ströndin.
Á morgun: Chichen Itza og djamm.
Á laugardagsmorgun: flug til Miami og þaðan til DC. Jammmmmm!

Skrifað í Cancun, Mexíkó klukkan 12:48

314 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Ferðalög

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33