« Íslenski bachelor-inn: Fyrstu þrír þættirnir | Aðalsíða | = > »

Me gusta la Gasolina!

7. október, 2005

Ef mér leiðist eitthvað meira en að strauja skyrtur, þá er það að þurfa að éta stór orð.

Í Mið-Ameríku er eitt lag alveg fáránlega vinsælt og hefur verið það undanfarið ár. Allir rútubílstjórar elska lagið, það er spilað á öllum klúbbum, veitingastöðum og í öllum verslunum. Það er hreinlega fullkomlega ómögulegt að losna við þetta lag.

Þegar ég og Anja vorum í einhverri rútunni byrjaði ég að bölva laginu. Hún sagðist þá fíla lagið og að þetta lag hefði verið ýkt vinsælt í Þýskalandi í allt sumar. Ég hló og sagði að þetta staðfesti það að Þjóðverjar væru skrýtnir.

Ég hélt því svo fram að Íslendingar væru svo hipp og kúl að þetta lag yrði aldrei vinsælt á Íslandi. Við hefðum betri smekk en svo.

En svo kem ég heim og hvað gerist: Jú, lagið er í brjálaðri spilun á Íslandi! Og ekki nóg með það, heldur þá erum við langt á eftir Þjóðverjum í spilun á laginu. Það er lágmark að ef við byrjum að spila hallærisleg lög, þá ættum við að gera það á undan öðrum löndum. En við virðumst bara lepja upp poppið löngu á eftir þjóðum, sem við höldum að séu hallærislegar. Ef þetta er ekki áfellisdómur yfir Íslandi, þá veit ég ekki hvað er. Semsagt, Þjóðverjar eru kúl, við ekki.

En allavegana, lagið er hið magnaða “Gasolina” með Puertó Ríkanum Daddy Yankee (sjá mynd). Þetta lag hefur verið fáránlega vinsælt um alla rómönsku Ameríku og er núna orðið vinsælt í Bandaríkjunum, Evrópu og loks á Íslandi. Lagið er fáránlega óþolandi, en einhvern veginn hef ég smá veikan blett fyrir því. Aðallega vegna þess að það minnir mig á plássleysi, loftleysi, predikara og feita sölumenn í rútum í Mið-Ameríku.

Textinn er náttúrulega stórkostlegt afrek í textasmíði. Viðlagið hljómar svona:

A ella le gusta la gasolina (dame mas gasolina!)
Como le encanta la gasolina (dame mas gasolina)

Eða á íslensku

Hún fílar bensín (gefðu mér meira bensín)
Já, hún elskar bensín (gefðu mér meira bensín)

Jammm, vissulega snilld.

En fyrir ykkur, sem hlustið ekki á FM957 eða álíka gæðastöðvar, þá ætla ég að gera ykkur þann stórkostlega greiða að bjóða uppá þetta lag, allavegana næstu tvo daga.

Gasolina - Daddy Yankee - 4,41 mb - MP3

Njótið og hugsið svo hlýlega til mín þegar að þið byrjið að heyra “me gusta la gasolina” í hausnum á ykkur allan daginn.

Ekkert að þakka!

Einar Örn uppfærði kl. 18:31 | 396 Orð | Flokkur: Tónlist



Ummæli (8)


púra snilld - skelfilegt lag en minnir mann engu að síður á djammið í mexíkó og sunnar :-)

Inga Lilja sendi inn - 08.10.05 13:39 - (Ummæli #1)

Fullkominn viðbjóður - og minnir mann skemmtilega á af hverju ekki eigi að stilla á fm957 í eina einustu sekúndu af sínu lífi. Minnir mig reyndar líka á lag sem sungið var í minni sveit um árið: Fáum okkur bensín
Fáum okkur bensín
Það er gott að fá sér svona bensín af og til
Við erum ekki bílar
Við erum ekki bílar
Við erum ekki bílar og tra lala lala :-)

Kiddi sendi inn - 08.10.05 14:13 - (Ummæli #2)

Þetta lag er beinlínis skelfilegt…

og algjörlega fast í hausnum á mér…

Strumpakveðjur :-)

Strumpurinn sendi inn - 08.10.05 14:22 - (Ummæli #3)

Þetta lag var einmitt suddalega mikið spilað á Spáni í sumar þar sem ég var. Það kom mér einhvernvegin ekki á óvart að þetta yrði vinsælt á FM957 …. fannst það bara vera tímaspursmál.

En lagið er sársaukafullt. Alveg með ólíkindum að fólk geti hlustað sjálfviljugt á svona drasl.

Haukur H. Þórsson sendi inn - 08.10.05 18:39 - (Ummæli #4)

Mer finnst lagid alveg hraedilegt (adallega af thvi ad eg fae thad svo rosalega a heilann) en gasolina merkir kokain i thessu lagi, textinn meikar thvi adeins meira sens! :-)

Maja paeja sendi inn - 09.10.05 11:05 - (Ummæli #5)

Vá. Þetta er rosalega vont lag!

Hrafnkell sendi inn - 09.10.05 23:55 - (Ummæli #6)

Þetta er blátt áfram illa gert að setja svona vont lag í spilun, ég komst alveg í gegnum fyrstu 40 sek og þá ekki meir.

Svana sendi inn - 10.10.05 09:12 - (Ummæli #7)

Ok, þið eruð semsagt að fíla þetta lag. :-)

Einar Örn sendi inn - 10.10.05 09:33 - (Ummæli #8)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu