« Nokkrar myndir frá El-Salvador, Gvatemala og Hondúras | Aðalsíða | ...í Amsterdam »

Augnabrýr

26. október, 2005

Er Vilhjálmur Þ, Sjálfstæðismaður búinn að láta plokka augnabrýrnar?

Sjá hér: Fyrir og eftir.

Hann hlýtur að vera án efa mest metrósexúal frambjóðandinn. Húrra fyrir honum. Hver var samt tilgangurinn með kappræðum hans og Gísla Marteins í Kastljósinu síðasta fimmtudag? Kappræðurnar eru án efa súrustu sjónvarpskappræðurnar í sögu lýðveldisins. Stjórnendur þáttarins hefðu náð sama árangri með því að spyrja bara tveggja spurninga: 1. “Vilhjálmur: Ert þú betri en Gísli Marteinn?” og 2: “Gísli: Ert þú betri en Vilhjálmur?”.

Ekki gott. Gísli Marteinn lofaði svo lægri sköttum, en þegar hann var spurður að því hvar hann ætlaði að fá peningana fyrir skattalækkunum, þá sagði hann að hann trúði því að frambjóðendur í prófkjöri ættu ekki að setja fram loforð. Magnað.

Einar Örn uppfærði kl. 22:37 | 119 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (7)


hahaha!

þetta er mögnuð pæling.

Gummi Jóh sendi inn - 27.10.05 00:07 - (Ummæli #1)

úff.. aðeins of mikið close-up fyrir minn smekk :-)

Heiða Björk sendi inn - 27.10.05 09:25 - (Ummæli #2)

Jamm, þetta er rosaleg upplausn á fyrri myndinni. :-)

Einar Örn sendi inn - 27.10.05 09:35 - (Ummæli #3)

Herru held að rakarin hafi rakað þær á honum í stað plokkunar.

Metrosexual hárgreiðslugæjin minn hefur reint að gera þetta…

meiriháttar góð pæling hjá þér samt.

Jóhann sendi inn - 27.10.05 13:16 - (Ummæli #4)

Hvernig er það, varst þú ekki Chicago White Sox fan #1 á Íslandi?

Hagnaðurinn sendi inn - 27.10.05 13:27 - (Ummæli #5)

Nei, Chicago Cubs, en ég gleðst samt yfir því að Chicago skuli fá titil. Borgin á það allavegana skilið.

Einar Örn sendi inn - 27.10.05 13:59 - (Ummæli #6)

Maður segir “augabrúnir” ekki “augnabrýr” :-)

Kata sendi inn - 28.10.05 08:33 - (Ummæli #7)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu