« október 28, 2005 | Main | nóvember 01, 2005 »

Laust starf í eldhúsi á Serrano

október 31, 2005

Mér leiðist að nýta þessa síðu sem auglýsingatæki, en ég er í vandærðum. Okkur á Serrano vantar starfsmann í eldhús.

Þetta er semsagt vinna frá klukkan 9-5 alla virka daga. Viðkomandi sér um eldhúsið á staðnum. Starfsmaðurinn þarf ekki að vera lærður neitt, en það hjálpar ef viðkomandi hefur reynslu af eldhússtörfum.

Serrano er skemmtilegur vinnustaður, þar vinnur fullt af ungu og skemmtilegu fólki. Vinnutíminn er góður, launin samkeppnishæf og yfirmennirnir eru algjörir snillingar. :-)

Ef þú hefur áhuga, eða veist um einhvern sem hefur áhuga, láttu mig endilega vita. Okkur vantar starfsmann, sem getur byrjað að vinna strax. Þú getur sent mér tölvupóst og spurt nánar útí starfið og þú getur einnig komið og kíkt á staðinn. Við erum helst að leita okkur að framtíðarstarfsmanni, en við myndum einnig skoða ráðningu í styttri tíma.

Semsagt, okkur vantar starfsmann strax. Ef þú veist um einhvern, eða hefur sjálf(ur) áhuga, endilega sendið email á mig: einarorn@gmail.com, eða hringið í mig í síma 896-9577 eftir klukkan 18 á morgun þriðjudag eða aðra daga í þessari viku.

175 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Vinna

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33