« Gullkindin | Aðalsíða | Sælar stúlkur, þið lítið vel út í dag »

Ný myndasíða!

22. nóvember, 2005

Ein stærsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að skipta um server fyrir þessa síðu er sú að síðan var hýst á Windows server, sem býður ekki upp jafnmarga möguleika og aðrir server-ar.

Ég var spenntur fyrir því að bæta þessa síðu og þá sérstaklega myndahluta síðunnar, sem hefur verið mjög illa haldinn að undanförnu. Útlitið á síðunum var ljótt og auk þess var hrikalega erfitt og flókið fyrir mig að uppfæra myndasíðurnar og því gerði ég það nánast aldrei.

En núna hef ég gert bót á. Ég fann fullkomlega lausn á Stopdesign (og borgaði fyrir lausnina), sem ég hef núna nýtt mér á þessari síðu (og íslenskað mestallt).

Því kynni ég: Nýja myndasíðu - klapp klapp!

Til að byrja með er ég búinn að setja inn fyrstu tvær vikurnar frá Mið-Ameríkuferðinni (auk nokkurra eldri mynda frá Rússlandi og Tyrklandi):

Mexíkó
El Salvador

Þessi nýja myndasíða er gasalega grúví að mínu mati. Fyrir það fyrsta þá eru myndirnar stórar og flakk á milli mynda mjög einfalt, hvort sem myndirnar eru láréttar eða lóðréttar. Einnig, þá er hægt að kommenta á hverja einustu mynd og síðan heldur utan um kommentin á einum stað, Einnig er hægt að gerast áskrifandi að RSS uppfærslum á nær öllu á þessari myndasíðu. Mjög sniðugt fyrir þá, sem hafa brennandi áhuga á mínu lífi og kunna á RSS.

En annars, þá eru þetta mínar myndir, sem ég set aðallega upp fyrir mína vini og fjölskyldu. Það má því EKKI nota myndirnar í einhverjum annarlegum tilgangi, nema með mínu leyfi. Og plís, plís, plís ég nenni ekki að lesa komment einsog: “Uh, af hverju ertu alltaf að taka myndir af sjálfum þér?” Ef fólk þolir ekki að sjá myndir af mér, þá á það að sleppa því að skoða þessa síðu. Blogg er gríðarlega sjálhverft og myndasíður á bloggsíðum eru það ekki síður.

Athugið að myndasíðan virkar best í nýlegum vöfrum, það er FireFox á PC og Safari eða FireFox á Mac. Hún virkar ágætlega í Explorer á PC, en er fallegri í FireFox. Ef þú ert enn að nota Explorer á PC, í Guðanna bænum skiptu yfir í FireFox. Trúið mér, það margborgar sig!

En allavegana, ég vona að einhverjir hafi gaman af. Ég ætla að setja inn restina af myndunum frá Mið-Ameríku á næstu dögum.

Einar Örn uppfærði kl. 21:56 | 380 Orð | Flokkur: Myndablogg



Ummæli (3)


Það er satt, þetta er gasalega grúví myndasíða :-)

Heiða Björk sendi inn - 23.11.05 14:44 - (Ummæli #1)

Vinnurðu myndirnar í photoshop eða eru þær óbreyttar beint úr myndavélinni?

Markús sendi inn - 23.11.05 16:36 - (Ummæli #2)

Þær eru nánast allar óbreyttar úr vélinni. Ef ég laga eitthvað, þá eru það nær eingöngu rauð augu.

Einar Örn sendi inn - 23.11.05 17:07 - (Ummæli #3)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2006 2000

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Þær eru nánast allar óbreyttar úr vélinni. Ef ég ...[Skoða]
  • Markús: Vinnurðu myndirnar í photoshop eða eru þær óbreytt ...[Skoða]
  • Heiða Björk: Það er satt, þetta er gasalega grúví myndasíða :w ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.