« Hólí fokking plebbismi | Aðalsíða | Íslenskar stelpur »

Stærfræði?

5. desember, 2005

Aðalefnið í Íslandi í Dag og fyrsta frétt á mbl.is í dag: Stelpur útá landi eru betri en strákar í stærðfræði!

HVERJUM ER EKKI FOKKING SAMA?

Er einhver að missa svefn útaf þessu? Í alvöru talað? Þurfum við að setja sérstaka nefnd á stofn? Kannski að bæta styrki til landsbyggðarinnar af því að strákar útá landi eru að spila Half-Life í stað þess að læra stærðfræði?

Er ekkert merkilegra að gerast í þessum heimi?


Ég er að hlusta á:

Dreaming - System of a Down
Perfect Situation - Weezer
Juicebox - Strokes

Þessi lög eru snilld!

Einar Örn uppfærði kl. 20:05 | 96 Orð | Flokkur: Almennt



Ummæli (7)


Malt og appelsín auglýsingin er komin aftur í spilun. Congrats!

Scweppes sendi inn - 05.12.05 20:32 - (Ummæli #1)

Vegna þess að allstaðar annarsstaðar í heiminum eru strákar betri en stelpur í stærðfræði.

Það hlýtur að vera mjög áhugaverð félagsfræðileg spurning af hverju þetta er öðruvísi í íslensku dreifbýli (les: allastaðar á Íslandi nema í höfuðborginni).

Er menntakerfið út á landi í molum. Þarf maður að vera stelpa til þess að vera nógu agaður til þess að geta meðtekið stærðfræðikennslu í íslenskum skólum? Eða eru kannski dreifbýlisstrákarnir allir með það efst á forgangslistanum hjá sér að taka í vörina og komast á sjó fyrir fermingu?

Þetta eru allt mjög áhugaverðar spurningar.

Auk þess sem að stærðfræðingum er yfirleitt mjög umhugað um tölulegar staðreyndir af þessu tagi. Þetta er þeirra hobbý, sjáðu til.

Halldór Berg sendi inn - 05.12.05 20:40 - (Ummæli #2)

Malt og appelsín auglýsingin er komin aftur í spilun. Congrats!

Neeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeei!!!

Einar Örn sendi inn - 05.12.05 20:43 - (Ummæli #3)

Það má alls ekki vanmeta virði stærðfræðikúnnáttu! :-)

Hins vegar má spyrja sig af hverju þetta er og eins hvers vegna í dag eru langtum fleiri stúlkur en drengir í háskóla. Eru þær ekki bara langtum duglegri? Yngstu kynslóðirnar áttuðu sig á því að þær áttu ekki bara að vera heima að strauja, elda og passa börnin. Eðlileg afleiðing, ekki satt?

Markús sendi inn - 06.12.05 01:50 - (Ummæli #4)

Merkilegasta niðurstaðan að mínu mati er að megin hluti drengja í heilu landshlutunum eru að falla í stærðfræði á samræmdum prófum!

(Insert ræða um hve þjóðhagslega óhagkvæmt það er og þau samfélagsvandamál sem það er að skapa.)

(Insert ræða um að menntun sé lykillinn úr ,,ánauð” en ekki jarðgöng!)

Jensi sendi inn - 06.12.05 12:42 - (Ummæli #5)

Ja hérna, ég greinilega vanmat áhuga lesenda á stærðfræðiþekkingu stráka á landsbyggðinni.

Mér finnst þetta allavegana alveg hryllilega leiðinlegt umræðuefni í svona þátt.

Einar Örn sendi inn - 06.12.05 15:45 - (Ummæli #6)

Hey, þið vitið hvað þetta þýðir: færri plebbar í HR og Bifröst!

Og það þýðir minni sala á köflóttum skyrtum. OMG!

Halli sendi inn - 07.12.05 01:49 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?