« Jólakort | Aðalsíða | Uppboð: DVD Diskar - 3 »

Uppboð: Gamalt dót - Ýmislegt

13. desember, 2005

Ok, næsta mál á dagskrá í uppboðinu til styrktar börnum í Mið-Ameríku áfram.

Núna ætla ég að byrja að bjóða upp gamla hluti, sem sennilega hafa ekki mikið gildi fyrir flesta, en einhverjir safnarar gætu haft gaman af. Þetta er samansafn af hlutum, sem hafa safnast upp hérna í íbúðinni minni. Vonandi að einhverjir geti haft gagn af þeim.

Uppboðið virkar þannig að þú skrifar tilboðið þitt í ummælin. Auðveldast er að gera það með því að nefna hlutinn og virðið strax fyrir aftan. Ef að þú vilt setja inn nafnlaust boð, sendu mér þá póst og ég set inn þá upphæð.

Uppboðið mun ljúka á miðnætti á fimmtudag

Viskí Kristal glös

Lágmark: 1.000
Sjá mynd 1 - 2
Þetta eru reyndar alveg ný glös, sem hafa ekki verið notuð. Fékk þau að gjöf á einhverjum viðskiptafundi á Englandi. Þetta eru semsagt Kristal “Tot” viskíglös. Ég drekk ekki viskí og er ekki að fara að byrja á því og því fannst mér tilvalið að setja þetta á uppboðið.

Lenín Peli

Lágmark: 500
Sjá mynd 1
Ódýr peli, sem ég keypti í Rússlandi. Hann er úr einhverjum léttum málmi, sem ég veit ekki hver er.

Liverpool treyja frá 1992

Lágmark: 2000
Sjá mynd
Liverpool treyja frá árinu 1992 þegar að Liverpool léku enn í Adidas treyjum. Þetta er auðvitað notuð treyja, en hún lítur mjög vel út. Stærðin er 38-40.

Liverpool treyja

Lágmark: 2000
Sjá mynd
Liverpool treyja. Þetta er auðvitað notuð treyja, en hún lítur ágætlega út. Stærðin er 42-44.

Sjónauki

Lágmark: 500
Sjá mynd
Lítið notaður sjónauki, sem ég fékk að gjöf fyrir einhvejrum árum. Í nánast fullkomnu ástandi.

Einar Örn uppfærði kl. 15:10 | 270 Orð | Flokkur: Uppboð



Ummæli (22)


sjónauki: 500 LFC treyja: 2000

Birkir sendi inn - 13.12.05 15:42 - (Ummæli #1)

Komið tilboð í viskíglösin - 3000

Einar Örn sendi inn - 13.12.05 19:18 - (Ummæli #2)

Glös 4000 kr

Svana sendi inn - 13.12.05 19:22 - (Ummæli #3)

Hvor treyjan, Birkir?

Einar Örn sendi inn - 13.12.05 19:51 - (Ummæli #4)

Liverpool treyja frá 1992 - 2500 kr.

Hjördís sendi inn - 13.12.05 21:06 - (Ummæli #5)

ég set 1000 kall á lenín pelann

Gunnar Ingi sendi inn - 13.12.05 21:41 - (Ummæli #6)

1992 treyja: 3000

Birkir sendi inn - 14.12.05 00:08 - (Ummæli #7)

Öss það er bara barátta!

1992 treyja - 3500 kr

Hjördís sendi inn - 14.12.05 01:05 - (Ummæli #8)

2000 kall í 2000 treyjuna

kiddi sendi inn - 14.12.05 05:24 - (Ummæli #9)

heyrðu, ég bíð bara í viskíglösin líka. 4500.

kiddi sendi inn - 14.12.05 05:42 - (Ummæli #10)

Það er komið boð í 1992 treyjuna uppá 5000

Einar Örn sendi inn - 14.12.05 08:32 - (Ummæli #11)

Það er komið tilboð í glösin uppá 5000

Einar Örn sendi inn - 14.12.05 08:34 - (Ummæli #12)

Ég bíð 2000 kr í Lenín pelann!

Helgi sendi inn - 14.12.05 10:37 - (Ummæli #13)

Heyrði í þér á NFS áðan og varð svo um að það tók mig góða stund að jafna mig. Þetta er það frábærasta sem ég hef lengi frétt. Allt sem þú sagðir var svo heilbrigt og fallegt. Og satt og rétt. Ég yrði ekki hissa á því þótt þetta yrði tízka hér og það verður þá þér að þakka. Ath. Kristalsglösin (og karaflan ef hún fylgir með) er miklu verðmætara en 4.500 krónur. Ég held að eitt svona glas kosti amk. 4.500 krónur. Kær kveðja og ósk um gott gengi í þessu sem öllu öðru.

Áslaug sendi inn - 14.12.05 10:38 - (Ummæli #14)

Í hvaða þætti varstu á NFS einar, væri gaman að sjá manninn á bakvið týpuna :P

Biggi sendi inn - 14.12.05 11:08 - (Ummæli #15)

Það er bara að færast fjör í leikinn. Glös 5.500 kr

Svana sendi inn - 14.12.05 11:28 - (Ummæli #16)

Smá samantekt, þar sem uppboðinu lýkur á miðnætti á morgun. þetta eru hæstu boðin

Viskíglös - 5.500 - Svana
Lenín peli - 2.000 - Helgi
Liverpool 1992 - 5.000 - Nafnlaust
Liverpool 2000 - 2.000 - Kiddi
Sjónauki - 500 - Birkir

Einar Örn sendi inn - 14.12.05 17:25 - (Ummæli #17)

Biggi, ég var í fréttavaktinni fyrir hádegi. Sjá hér - þú þarft að spóla fram á mínútu 48:30 til að sjá viðtalið.

Viðtalið var víst endurtekið i fréttavaktinni eftir hádegi.

Einar Örn sendi inn - 14.12.05 19:51 - (Ummæli #18)

‘Eg er hrifinn af framtakinu.Býð 3000 kall í Lenín pelann.

Jökull Veigar sendi inn - 14.12.05 20:36 - (Ummæli #19)

Býð 6000 í viskíglösin svona til að poppa þetta upp

Ragnheiður M. Kristjónsdóttir sendi inn - 15.12.05 10:11 - (Ummæli #20)

Komið nafnlaust boð í Liverpool 1992 treyjuna uppá 8000 krónur.

Einar Örn sendi inn - 15.12.05 22:09 - (Ummæli #21)

Uppboði lokið.

Hæstu boð:

Viskíglös - 6.000 - Ragnheiður Lenín peli - 3.000 - Jökull Liverpool 1992 - 8.000 - Nafnlaust Liverpool 2000 - 2.000 - Kiddi Sjónauki - 500 - Birkir

Einar Örn sendi inn - 16.12.05 12:50 - (Ummæli #22)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2004 2003

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Uppboði lokið. Hæstu boð: Viskíglös - 6.000 - Ra ...[Skoða]
  • Einar Örn: Komið nafnlaust boð í Liverpool 1992 treyjuna uppá ...[Skoða]
  • Ragnheiður M. Kristjónsdóttir: Býð 6000 í viskíglösin svona til að poppa þetta up ...[Skoða]
  • Jökull Veigar: 'Eg er hrifinn af framtakinu.Býð 3000 kall í Lenín ...[Skoða]
  • Einar Örn: Biggi, ég var í fréttavaktinni fyrir hádegi. Sjá ...[Skoða]
  • Einar Örn: Smá samantekt, þar sem uppboðinu lýkur á miðnætti ...[Skoða]
  • Svana: Það er bara að færast fjör í leikinn. Glös 5.500 k ...[Skoða]
  • Biggi: Í hvaða þætti varstu á NFS einar, væri gaman að sj ...[Skoða]
  • Áslaug: Heyrði í þér á NFS áðan og varð svo um að það tók ...[Skoða]
  • Helgi: Ég bíð 2000 kr í Lenín pelann! ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.