« Mið-Ameríkuferð: Samantekt | Aðalsíða | Atvinnuástand »

Íslenskar konur

6. janúar, 2006

Ég held að íslenskar konur ættu að ráða sér PR-fulltrúa.

060106.jpg

Sjá fyrri umræðu hér

Einar Örn uppfærði kl. 19:43 | 14 Orð | Flokkur: Almennt



Ummæli (11)


Var Svanhildur Hólm ekki í því djobbi?

Óli Gneisti sendi inn - 06.01.06 20:35 - (Ummæli #1)

Því miður er þetta bara satt! Þetta er alla vega mín litla upplifun af íslensku djammlífi. Alltof margar stelpur sem eru eins og fífl og ekki síður alltof margir strákar sem eru eins og asnar.

Sævar Helgi sendi inn - 07.01.06 00:30 - (Ummæli #2)

En af einhverjum astaedum tha thykja thad ekki frettir thegar strakarnir lata eins og fifl, bara thegar stelpurnar lata eins og fifl…

Alfheidur sendi inn - 07.01.06 02:19 - (Ummæli #3)

Ég held að þessi PR-fulltrúi ætti að setja upp svona Information Center inn á skrifstofu DV, þá væri hann að gera langt mesta gagnið.

Sigurjón sendi inn - 07.01.06 03:42 - (Ummæli #4)

Álfheiður, það eru engar fréttir þegar strákar láta eins og fífl :-) En það kemur hvergi fram í þessu viðtali að íslenskar konur séu lausgirtar. Hann talar bara um drykkjuna.

Svana sendi inn - 07.01.06 13:46 - (Ummæli #5)

Jamm, nákvæmlega Svana, það þykir ekki fréttaefni að strákar séu einsog fífl. Einnig, þá er fullkomlega eðlilegt að Tarantino tali um stelpur, þar sem hann hefur væntanlega umtalsvert meiri áhuga á stelpum en strákum.

Svo er það líka rétt að íslenskar stelpur drekka meira og verða vitlausari á djamminu en allar aðrar stelpur, sem ég hef komist í kynni við. Það sama má að mörgu leyti segja um íslenska stráka.

Og já, þetta með að þær séu lausgyrtar, það kom ekki fram í viðtalinu, en DV setti það inn sennilega af gömlum vana.

Einar Örn sendi inn - 07.01.06 16:36 - (Ummæli #6)

Það kom reyndar fram að honum fannst erfitt að halda ísl. kvenfólki nógu edrú til að hægt sé að gera eitthvað þegar heim var komið, hvort það þýði að þær séu lausgyrtar eða fyllibyttur þá mætti deila um það.

Genni sendi inn - 09.01.06 15:23 - (Ummæli #7)

Áfram Ísland! Þetta er keppni og við erum augljóslega að vinna. :-)

Daði sendi inn - 09.01.06 16:39 - (Ummæli #8)

Ekki tek ég þetta nærri mér. Þá fyrst líka þyrfti ég að fara í sálarskoðun. Auðvitað finnst manni jafngaman á djamminu eins og hverjum öðrum.

Er þetta ekki bara meira og minna sama liðið sem er alltaf þarna a forsíðunni. ? Held að þeir sem flokka allar íslenskar stelpur undir einn hattinn ættu að líta í eigin barm því ekki eru allir íslenskir karlmenn þjófar og handrukkarar. …. eða hvað?

majae sendi inn - 09.01.06 20:36 - (Ummæli #9)

Í Hollandi eru stelpur upp til hópa sætar og góðar, ólíkt þeim íslensku. Þær drekka ekki bjór, því hann er ódýr (ergo þær eru ódýrar) og dansa ekki, til að „tapa ekki kvenleikanum“. Strákarnir sulla í bjórkrúsum og skerpa á kúlinu (missa kúlið?) á dansgólfinu.

Mín upplifun af þessum heimsfrægu sögusögnum um ólætin í íslenskum konum er einfaldlega sú að hér leyfist kerlingum að gera það sama og körlum. Gott mál!

Hvort karlarnir hagi sér svo eins og „fífl“ (og kvenfólkið skv. þessu líka) er svo önnur umræða.

Arndís sendi inn - 10.01.06 13:00 - (Ummæli #10)

Nákvæmlega!

Einar Örn sendi inn - 10.01.06 22:26 - (Ummæli #11)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Nákvæmlega! ...[Skoða]
  • Arndís: Í Hollandi eru stelpur upp til hópa sætar og góðar ...[Skoða]
  • majae: Ekki tek ég þetta nærri mér. Þá fyrst líka þyrfti ...[Skoða]
  • Daði: Áfram Ísland! Þetta er keppni og við erum augljósl ...[Skoða]
  • Genni: Það kom reyndar fram að honum fannst erfitt að hal ...[Skoða]
  • Einar Örn: Jamm, nákvæmlega Svana, það þykir ekki fréttaefni ...[Skoða]
  • Svana: Álfheiður, það eru engar fréttir þegar strákar lát ...[Skoða]
  • Sigurjón: Ég held að þessi PR-fulltrúi ætti að setja upp svo ...[Skoða]
  • Alfheidur: En af einhverjum astaedum tha thykja thad ekki fre ...[Skoða]
  • Sævar Helgi: Því miður er þetta bara satt! Þetta er alla vega m ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.