« Ædol | Aðalsíða | Móðgum múslima! »

Sviptur titlinum

27. janúar, 2006

Robbie Fowler er kominn aftur til Liverpool. Það er frétt ársins hingað til. Allavegana hvað mig varðar, en aðrir gætu þó haft annað fréttamat. Hver veit.


Er þetta ekki dálítið magnað:

Fegurðarsamkeppni Íslands hefur tekið þá ákvörðun að Ólafur Geir Jónsson, Herra Ísland 2005 verði sviptur titlinum og er það í fyrsta sinn í sögu Fegurðarsamkeppni Íslands sem slíkt er gert.

Ólafur Geir hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem keppnin gerir til Herra Íslands ár hvert, en við val hans er leitast við að velja fulltrúa sem er keppninni til sóma bæði hérlendis og erlendis.

Skrýtið, eh? Hérna geturðu svo lesið um það hvernig þetta kom til. Ef að frásögn Óla er rétt, þá er þetta ansi döpur blaðamennska hjá Hér & Nú.


Ég er að fara út í fyrramálið í vinnuferð til Kölnar. Ég nenni svo innilega ekki að fara strax aftur út, þar sem ég hef ekki verið í viku á Íslandi, en ég þarf þó víst að fara. Verð í Köln fram á miðvikudag.

Einar Örn uppfærði kl. 20:48 | 169 Orð | Flokkur: Almennt



Ummæli (1)


mundu nú að kíkja í Underdog records sem er beint á móti stærstu hljómplötuverzlun Þýskalands Saturn. einnig er gebaude 9 góður tónleikastaður

einar sendi inn - 27.01.06 22:20 - (Ummæli #1)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005

Leit:

Síðustu ummæli

  • einar: mundu nú að kíkja í Underdog records sem er beint ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.