« Ál-þjóð | Aðalsíða | 1+7=1 »

Fótboltaferð

5. mars, 2006

Ég er að fara út í fyrramálið í massíva fótboltaferð. Vona að hún verði jafn vel heppnuð og síðasta fótboltaferð.

Planið er semsagt að fara út á morgun til Barcelona. Þar verð ég á þriðjudag á fundum hjá fyrirtæki, sem ég sé um að markaðssetja hér á landi, og svo um kvöldið fer ég í boði þess fyrirtækis á Barcelona-Chelsea á Nou Camp!

Þetta er náttúrulega leikur ársins hingað til og ég er orðinn alveg fáránlega spenntur. Ég hef séð Barcelona spila 3svar áður á Nou Camp, en aldrei í jafnstórum leik og núna.

Á miðvikudaginn á ég svo flugmiða frá Barcelona til Liverpool. Þar mun ég á miðvikudagskvöld vera mættur í Kop stúkuna til að horfa á Liverpool-Benfica. Þar þarf Liverpool að vinna upp eins marks tap frá fyrri l eiknum og er ég bjartsýnn á að það gerist. Ég er einnig nokkuð viss um að Robbie Fowler mun skora sitt fyrsta mark í þeim leik. Gott ef það verður ekki bara beint fyrir framan nefið á mér. :-)

Allavegana, býst ekki við að uppfæra fyrr en ég kem heim.

Einar Örn uppfærði kl. 18:19 | 181 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (10)


öfund er ekki nógu sterkt orð til að lýsa því hvernig mér líður núna… :-)

Árni sendi inn - 06.03.06 09:48 - (Ummæli #1)

Öfund er ljótt orð :-)

Maður á að samgleðjast ….. :-)

Vonum svo bara að þetta verði eftirminnileg ferð, þar sem Barca vinnur Chelsea og LFC vinnur Benfica.

Haukur H. Þ. sendi inn - 06.03.06 11:16 - (Ummæli #2)

auðvitað samgleðst ég Einari… :-)

Árni sendi inn - 06.03.06 14:29 - (Ummæli #3)

ég verð samt að fá að segja ÖFUND… þó maður samgleðjist nú líka!!

Hjördís sendi inn - 06.03.06 23:13 - (Ummæli #4)

Já úúúff ég verð að viðurkenna að mér dettur ekkert annað orð í hug en Öfund… þekki þig ekki neitt en tilviljun ein réð því að ég álpaðist inná þessa síðu þína… (liverpool bloggið hjálpaði aðeins til) :-) Ég bara er orðlaus… ég gæfi ansi mikið fyrir að vera í þínum sporum núna, þó svo að fyrri leikurinn sé búinn (slakur og jafntefli) og Chelsea dottnir út. En rúsínan í pylsuendanum er eftir… já orðlaus… en mínir menn (Liverpool) taka þetta með stæl og ég tippa á 2-1 (Gerrard og Fowler með mörkin að þessu sinni) :-)

Thelma Björk sendi inn - 08.03.06 01:06 - (Ummæli #5)

Komin aftur… ég fékk móral yfir að hafa tippað á 2-1 í leiknum á morgun…ætlast nú til að okkar menn komist áfram..þess vegna ætla ég að leggja allt mitt traust á Reina og hans frábæru markvöslu 2-0 fyrir okkur :-) :-)

Thelma Björk sendi inn - 08.03.06 13:18 - (Ummæli #6)

Það var ekki lítið fagnað á San Siro í gær þegar það var ljóst að Liverpool dytti út. Annars frábær leikur hjá A.C.

oba sendi inn - 09.03.06 11:46 - (Ummæli #7)

Gott á Liverpool. Það dugir ekki að spila leiðinlegan fótbolta. Arsenal sannaði það, eitt enskra liða þetta árið. Ef þetta heldur svona áfram snúa unnendur góðrar knattspyrnu sér að öðrum deildum en þeirri ensku.

einar sendi inn - 09.03.06 16:15 - (Ummæli #8)

einar, það er ekkert enskt við Arsenal.. Glymur hæst í tómri tunnu kallinn minn..

agli sendi inn - 10.03.06 13:15 - (Ummæli #9)

NÚ!!! London er víst höfuðborg Tékklands er það ekki? :-)

Nalli sendi inn - 12.03.06 13:47 - (Ummæli #10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2003 2002 2001

Leit:

Síðustu ummæli

  • Nalli: NÚ!!! London er víst höfuðborg Tékklands er það ek ...[Skoða]
  • agli: einar, það er ekkert enskt við Arsenal.. Glymur hæ ...[Skoða]
  • einar: Gott á Liverpool. Það dugir ekki að spila leiðinl ...[Skoða]
  • oba: Það var ekki lítið fagnað á San Siro í gær þegar þ ...[Skoða]
  • Thelma Björk: Komin aftur... ég fékk móral yfir að hafa tippað á ...[Skoða]
  • Thelma Björk: Já úúúff ég verð að viðurkenna að mér dettur ekker ...[Skoða]
  • Hjördís: ég verð samt að fá að segja ÖFUND... þó maður samg ...[Skoða]
  • Árni: auðvitað samgleðst ég Einari... :-) ...[Skoða]
  • Haukur H. Þ.: Öfund er ljótt orð :-) Maður á að samgleðjas ...[Skoða]
  • Árni: öfund er ekki nógu sterkt orð til að lýsa því hver ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.