« Sjálfvirk ritskoðun? | Aðalsíða | Sælgæti, Amsterdam, Blur og Draumalandið »

Út

27. mars, 2006

Ég er að fara út í fyrramálið. Fer til Utrecht í Hollandi, þar sem ég mun sitja ráðstefnu um sælgæti. Hún mun vera fram á fimmtudag. Föstudeginum ætla ég að eyða á Rijksmuseum í Amsterdam. Hef ekki enn farið á það ágæta safn, þrátt fyrir að ég hafi komið alloft til Amsterdam.

Svo fer ég um næstu helgi yfir til Brussel. Ég hef komið til Belgíu áður, en ég man ekki neitt frá þeirri heimsókn, þannig að það ætti að vera eitthvað nýtt. Veit ekki hversu vel mér gangi að komast í tölvu og hversu miklu ég hef frá að segja á næstu dögum.

Einar Örn uppfærði kl. 19:41 | 104 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (4)


Mmm, ráðstefnu um sælgæti. Er til eitthvað betra?

Halli sendi inn - 28.03.06 03:28 - (Ummæli #1)

Ef þú hefur tíma aflögu þá mæli ég með heimsókn til Brugge/Bruges, sem er í um klukkutíma fjarlægð frá Brussel. Ég gerði slíkt um þar síðustu helgi, þegar ég var í Brussel, og leiddist ekki. Brugge á að vera best varðveitta miðaldaborg Evrópu og þar er margt fallegt að skoða.

Svo getur maður líka bara sest á barinn og reynt að komast yfir belgísku bjórtegundirnar..:-)

Brynjar sendi inn - 28.03.06 11:17 - (Ummæli #2)

ég ætlaði að segja það sama og halli, með mm fremst og allt

mig langar með

katrín sendi inn - 28.03.06 15:12 - (Ummæli #3)

Bjó í Hollandi og þa er nauðsynlegt að fara á Rijkmuseum. Held samt að verið sé að gera við þannig að það er ekki eins gott og það á að vera. Bugge er bara ferðamanna pest sem er flott að sjá en ekkert meira. Allt mjög dýrt þarna.

Eiríkur sendi inn - 30.03.06 21:25 - (Ummæli #4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2001

Leit:

Síðustu ummæli

  • Eiríkur: Bjó í Hollandi og þa er nauðsynlegt að fara á Rijk ...[Skoða]
  • katrín: ég ætlaði að segja það sama og halli, með mm frems ...[Skoða]
  • Brynjar: Ef þú hefur tíma aflögu þá mæli ég með heimsókn ti ...[Skoða]
  • Halli: Mmm, ráðstefnu um sælgæti. Er til eitthvað betra? ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.