« Uppsögn | Aðalsíða | Hár, reykköfun og Seltjarnarnes »
Ferðalagahjálp
Það hefur reynst mér ágætlega að spyrja lesendur þessarar síðu ráða fyrir ferðalög. Oft veit fólk um skemmtilega staði eða hluti, sem að ferðabækur eyða ekki miklu púðri í að fjalla um.
Því spyr ég nú: Ég og kærastan mín - 5 dagar í París - hvað eigum við að gera? Ég hef aldrei komið til Parísar fyrir utan flugvöllinn og sýningarsvæði langt frá miðbænum.
Ummæli (16)
Hef heyrt að það sé mjög áhugvert og öðruvísi að borða á þessum stað, þar sem allt er dimmt (þeas engin ljós og maður borðar í myrkri). Held reyndar að maður þurfi að panta borð tímanlega.
Orsay-safnið er möst (ekki mjög stórt). Rue Oberkampf fyrir mat og drykk.
Ég fékk sömu spurningu um daginn og svaraði í 2ja bls. tölvupósti
Ég mæli með kvöldverði á Le Train Bleu, á Gare du Nord lestarstöðinni.
Annars hef ég farið þrisvar til borgarinnar og finnst skemmtilegast að þvælast um án þess að skipuleggja of mikið. Það er ágætt að stefna eitthvert, en staldra við á kaffihúsum á leiðinni og fylgjast með borgarlífinu.
Í hliðargötunum er alltaf eitthvað forvitnilegt, t.d. í Mýrinni má finna ‘less commercial’ veitingastaði sem hafa aldrei brugðist og fullt af litlum & forvitnilegum búðum sem gaman er að skoða.
Montmartre er annað möst. Ég get mælt með göngutúrunum hennar Kristínar á þeim slóðum. Gættu þess þó að staldra við eftir túrinn og villast svolítið á eigin forsendum. Útsýnið úr Sacre Coer er þess virði að príla 298 tröppur
Ég hef tvisvar eða þrisvar hlaupið í gegnum Louvre til að sjá Monu Lisu - þá hef ég alltaf verið með nýju og nýju fólki, sem hefur talið það skyldu sína að sjá verkið. Það er svo sem ágætt en mér finnst á hinn bóginn alveg hægt að eyða fimm dögum í París án þess að fara á eitt einasta safn. Ef þú ferð í Louvre athugaðu þá að það er hægt (var allavega) að fara beint inn af metro-stöð undir safninu; þannig sleppur maður við biðröðina uppi sem oft er býsna löng. Montmartre er must, Le Sacre Coeur æðisleg, þrátt fyrir allan túrismann á þeim slóðum. Einhverra hluta vegna hefur mér líka þótt svæðið í kringum Les Halles skemmtilegt, ekki bara vegna verslunarmiðstöðvarinnar þar undir en sumarið 2003, þegar hitinn var óbærilegur, var best að vera í slíkum húsum vegna loftræstingarinnar. Fínt er að liggja í grasinu við Trocadero og horfa á Eiffelturninn upclose. Grafreitur Napóleons er í leiðinni, ef þú labbar úr miðbænum. Var ekki búið að nefna Latínuhverfið? Loks er friðsælt að koma í kirkjugarðinn fræga, þar sem Jim Morrison og Oscar Wilde eru… Hei - eitt enn: leigðu þér hjól við Signubakka og farðu í tveggja tíma túr, það er þrælgaman!
Sæll Einar, Besta útsýnið á Tour Eiffel er á veitingastaðnum “Le Ciel du Paris” á toppi Tour Montparnasse… mæli með því Ég er með myndir handa þér frá Brussel.. skil líklega eftir CD á Serrano næst þegar ég á þar leið hjá, kveðja Aggi
Vá, takk
Eitthvað af þessu virðist staðfesta fyrri grun minn um hvað ég ætti að gera - Latin hverfið - skippa Louvre, en þarna er fullt af spennandi hlutum. Ég hef ekki verið svona spenntur fyrir ferðalagi lengi.
Hér finnst mér vitlaust spurt…
Spurningin ætti að vera, “hvar eigum við að borða?”
Já, það hafa reyndar margir svarað því.
Ég mæli með kvöldverði á Le Train Bleu, á Gare du Nord lestarstöðinni.
Kvöldverður hjá Ducasse (taktu kreditkortið með). La Tour d’Argent er líka góður en jafnvel enn dýrari…
http://www.danslenoir.com/
“Le Ciel du Paris” á toppi Tour Montparnasse
Einhverjar fleiri hugmyndir, Ágúst?
ég fór til parísar að keppa fyrir 3 árum minnir mig.. ég og ragna vorum svo góðar og unnum einhverja leiki sem við bjuggumst ekki við að vinna þannig við höfðum engan tíma til að tjilla dántán eeeeen engu að síður náðum við að taka lest niðríbæ, hlaupa uppí FL turninn (var um vetur, ekki mjög löng röð) ooog þurftum svo að hlaupa til baka til að ná seinasta metro.. sem kemur að pointinu í sögunni!
á þeirri leið náðum við að grípa pönnuköku hjá svona gæja með pönnukökustand.. við borðuðum hana á hlaupum og þögðum í svona 10 mín þangað til ég leit upp á rögnu meðan við sátum í metro “ertu líka að hugsa um aðra pönnuköku” og hún varða sko líka.. hands down bestu pönnukökur sem við höfum fengið á ævinni, fáið ykkur endilega þannig!
gæti líka hafa haft eitthvað með það að gera að við vorum í mega spennufalli eftir að hafa keppt mikið og komist lengra en við bjuggumst við og sársvangar.. þannig ég ábyrgist ekki að ykkur muni þykja þetta bestu pönnukökur í heimi líka..
Rodin safnid er otrulegt.
Að skoða “catacombs of Paris” er mjög sérstakt og eftirminnilegt. Mæli með því.
Ekki skippa Louvre en fáið Laufey Helgadóttur listfræðing (er fararstjóri á vegum Icelandair í París) til að leiða ykkur í gegn. Tekur 2-4 tíma og hún sýnir ykkur allt það merkilegasta í safninu á skemmtilegan og lifandi hátt. Munið ekki sjá eftir því.
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
|
|
Ummæli:
|
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Leit:
Síðustu ummæli
- Kári: Ekki skippa Louvre en fáið Laufey Helgadóttur list ...[Skoða]
- Annar Einar: Að skoða "catacombs of Paris" er mjög sérstakt og ...[Skoða]
- Alfheidur: Rodin safnid er otrulegt. ...[Skoða]
- katrín: ég fór til parísar að keppa fyrir 3 árum minnir mi ...[Skoða]
- Einar Örn: Já, það hafa reyndar margir svarað því. >É ...[Skoða]
- Ágúst: Hér finnst mér vitlaust spurt... Spurningin ætti ...[Skoða]
- Einar Örn: Vá, takk Eitthvað af þessu virðist staðfesta ...[Skoða]
- Ásgeir H: Enska bókabúðin Shakespeare & co. (sem lék m.a. í ...[Skoða]
- Agnar Bragi: Sæll Einar, Besta útsýnið á Tour Eiffel er á veiti ...[Skoða]
- Davíð Logi: Ég hef tvisvar eða þrisvar hlaupið í gegnum Louvre ...[Skoða]
Myndir:
Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.2
Louvre er skot yfir markið þar sem það tekur viku að skoða það og margt betra er hægt að gera í París en eyða tíma í biðröð eftir Mónu Lísu. Þá væri Pompidou betri hugmynd.
Það er biðröð í Eiffelturninn en einu sinni var góður veitingastaður þar sem gerði biðina þess virði, kannski er hann þar ennþá, allavega hét hann Jules Verne
Þá er torg e-s staðar í 4ða hverfi þar sem hægt er að sitja um helgi með vínglas utandyra og hlusta á tónlistarmenn, place des eitthvað…
Dagur og kvöld í latínuhverfinu er möst.
Kvöldverður hjá Ducasse (taktu kreditkortið með). La Tour d’Argent er líka góður en jafnvel enn dýrari…
Þá mæli ég með ógleymanlegu persónulegu sight-seeing í einka-míni-citroen (ath. í tourist information office)