« Jet Set | Aðalsíða | Bikarmeistarar! »

Parísarferð

12. maí, 2006

París er óendanlega æðisleg. Þessi ferð var svo yndislega yndisleg að ég held að ferðasagan yrði alltof væmin til þess að birta hérna.

Má ég bara segja það að mér fannst æði að…

  • …Vera í leigubíl á leiðinni heim af djamminu og fara bæði framhjá glerpíramídanum við Louvre og Notre Dame kirkjunni. Það fannst mér verulega flott.
  • …sjá Eiffel turninn að kvöldi til
  • …sjá hversu Mona Lisa er lítil
  • …borða crepes
  • …Liggja í sólinni með kærustunni í grasinu við Trocadero með útsýni yfir Eiffel turninn.
  • …drekka rauðvín á hverjum einasta degi
  • …hlusta á messu í Notre Dame, sem var áhrifameiri en allar messur sem ég hef verið viðstaddur. Jafnvel þótt ég skildi ekki orð.
  • …labba í rigningunni yfir brýrnar yfir Signu
  • …komast að því að Frakkar eru engir dónar
  • …reyna að tala frönsku.
  • …fá það á tilfinninguna að maður gæti ekki ímyndað sér stað, stund eða félagsskap sem myndi vera betri en það sem maður upplifði akkúrat á þeirri stundu

Ég er að mínu mati miklu skemmtilegri penni þegar ég er fúll útí eitthvað, þannig að ég læt frekari skrif bíða.

Set þó vonandi inn einhverjar myndir úr ferðinni á næstu dögum.

Einar Örn uppfærði kl. 15:42 | 203 Orð | Flokkur: Ferðalög



Ummæli (7)


þitt mat er vitlaust :-)

kiddi sendi inn - 12.05.06 16:01 - (Ummæli #1)

Ég get sem sagt gengið að því vísu að þú hafir ekki horft mikið á sjónvarp í þessari ferð? :-)

Kristján Atli sendi inn - 13.05.06 11:38 - (Ummæli #2)

Það ljóma allir eins og sól í heiði eftir þessa ferð. Ég kem með næst. múahhahahaha.

majae sendi inn - 13.05.06 14:56 - (Ummæli #3)

Athyglisvert, Kiddi. Kannski að sumir hafi meira gaman af því þegar ég er í góðu skapi. :-)

Kristján, jú - ég horfði á 5 mínútur af frönskum game show þætti.

:-)

Einar Örn sendi inn - 14.05.06 11:59 - (Ummæli #4)

love is in the air..

Heiða Björk sendi inn - 14.05.06 12:29 - (Ummæli #5)

krútt:-)

katrín sendi inn - 15.05.06 10:49 - (Ummæli #6)

Ótrúlega sammála þér með þetta Einar…. :-) :-)

Lilja sendi inn - 15.05.06 22:40 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2001 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.