« 8. maðurinn | Aðalsíða | Helgin »

Band of Horses

29. maí, 2006

444.jpgÉg hef það fyrir reglu að hlusta alltaf þegar Gunni vinur minn mælir með tónlist. Fyrir einhverjum vikum mældi hann með Band of Horses við mig. Hef rétt núna undanfarnar vikur getað gefið mér tíma til að hlusta á frumraun þessarar sveitar, sem heitir Everything All the Time.

Einsog mátti kannski vænta, þá heillaði hún mig ekki við fyrstu hlustanir. En núna er hún búin að rúlla 10 sinnum í gegn og ég er gjörsamlega heillaður. Þetta er án efa besta platan, sem hefur verið gefin út á þessu ári. Flaming Lips, The Strokes, David Gilmour og Streets voru vonbrigði, svo ég var að bíða eftir einhverri virkilegra góðri plötu. Og hún er komin. Eina platan, sem kemst nálægt þessari plötu á árinu 2006 er Return to the Sea með Islands.

Band of Horses, allir!!!

Besta lagið: The Funeral.

* * *

Já, og svo er DaVinci Code myndin alls ekki svo slæm. Og Red Hot Chili Peppers platan hljómar vel. Dani California er æðisleg smáskífa og ég held að þarna sé slatti af góðum lögum.

Lögin í spilun fyrir utan Band of Horses

Dani California - Red Hot Chili Peppers
Not Ready to make nice - Dixie Chicks
Song to Say Goodbye - Placebo
Chasing Cars - Snow Patrol
I will see you in far-off places - Morrissey
Never went to church - The Streets

Einar Örn uppfærði kl. 23:49 | 226 Orð | Flokkur: Tónlist



Ummæli (7)


Já núna kom eitthvað skemmtilegt að kommenta við.

Band of Horses eru æði. Tékkaðu líka á nýju Mates of State plötunni fyrst þú ert byrjaður.

Nýja plata hennar Neko Case (söngkonan í new pornographers) gaf líka út frábæra plötu um daginn sem þú mátt athuga.

Gummi Jóh sendi inn - 30.05.06 00:46 - (Ummæli #1)

Hestabandið er æði. Mæli líka með Beirut: http://www.beirutband.com/, efnilegur drengur þar á ferð.

Gummi (ekki Jóh) sendi inn - 30.05.06 09:49 - (Ummæli #2)

Það kemur mér á óvart að þú skulir hlusta á Dixie Chicks - nýja platan þeirra er frábær. Hún er mildari en áður útgefnar plötur með sveitinni - eða mér finnst það alla vega!

Dama sendi inn - 30.05.06 15:57 - (Ummæli #3)

Já, ég gaf Dixie Chicks séns eftir að hafa horft á viðtal við þær í 60 minutes, þar sem þær töluðu um ofsóknir hægri manna eftir að þær höfðu gagnrýnt Bush. Alls ekki jafn slæmt og ég hafði haldið.

Tékka á hinu, sem var mælt með. Takk, Gummi og Gummi :-)

Einar Örn sendi inn - 30.05.06 16:59 - (Ummæli #4)

Náttúrulega gríðarleg vonbrigði að þetta hafi ekki komið þér á sporið:

http://www.rjominn.is/reviews/show/205

bió sendi inn - 31.05.06 02:01 - (Ummæli #5)

Björgvin, þú mældir með disknum akkúrat daginn eftir að Gunni hafði mælt með honum. :-)

Einar Örn sendi inn - 31.05.06 11:34 - (Ummæli #6)

Band of horses er málið! Tjékkaðu á ane brun - duets og svo líka bandi sem heitir rogue wave ,þeir eru líka hjá sub-pop labelinu.

Baron sendi inn - 02.06.06 12:34 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2001 2000

Leit:

Síðustu ummæli

  • Baron: Band of horses er málið! Tjékkaðu á ane brun - due ...[Skoða]
  • Einar Örn: Björgvin, þú mældir með disknum akkúrat daginn eft ...[Skoða]
  • bió: Náttúrulega gríðarleg vonbrigði að þetta hafi ekki ...[Skoða]
  • Einar Örn: Já, ég gaf Dixie Chicks séns eftir að hafa horft á ...[Skoða]
  • Dama: Það kemur mér á óvart að þú skulir hlusta á Dixie ...[Skoða]
  • Gummi (ekki Jóh): Hestabandið er æði. Mæli líka með Beirut: Skoða]
  • Gummi Jóh: Já núna kom eitthvað skemmtilegt að kommenta við. ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.