« Wallace | Aðalsíða | 2GB »

Fáar og lélegar færslur

5. júlí, 2006

Ég hef að undanförnu verið í talsverðum efa um innihald og framhald á þessari ágætu bloggsíðu. Þeir, sem hafa fylgst með henni í langan tíma, hljóta að hafa tekið eftir því að færslum á þessari síðu hefur fækkað og innihaldið rýrnað. Fyrir því eru nokkrar ástæður.

  • Ég hef haldið þessari síðu út í rúmlega 6 ár. Hún hefur fylgt mér í gegnum góða og slæma hluti í mínu einkalífi. Bæði þegar ég hef verið á föstu og lausu og í þeim tilfellum þegar ég hef verið hamingjusamur eða ekki. Það sem hefur hins vegar einkennt skrif mín er að ég hef skrifað meira þegar ég er óhamingjusamur og þegar ég er á lausu. Sumir hafa eflaust fengið þá hugmynd að ég væri alltaf á lausu og alltaf eitthvað fúll útí heiminn. Staðreyndin er hins vegar sú að ég hef ávallt minnkað skrifin þegar ég hef verið á föstu eða þegar mér hefur liðið vel, bæði vegna þess að þá leita ég minna á netið og vegna þess að mér þykir óþægilegt að skrifa um líf mitt þegar önnur manneskja er svo nátengd því.

    Það er nefnilega ekkert mál að skrifa um persónulega hluti þegar þeir varða að mestu leyti mig sjálfan. Hins vegar þegar ég er á föstu, þá er önnur manneskja ávallt tengd þeim skrifum og það gerir það að verkum að ég er ekki eins tilbúinn að opna mitt einkalíf.

  • Varðandi pólitísk og önnur almenn skrif á þessa síðu þá lendi ég sífellt oftar í því að ritskoða sjálfan mig. Aðalástæðan fyrir því er að ég á veitingastað og það er alltaf möguleiki á því að ákveðin skrif komi illa við ákveðinn hóp viðskiptavina.

    Ég hef skrifað eitthvað af pistlum um íslenska pólitík eða dægurmál, en þeir eru talsvert mildari heldur en skrif mín voru áður. Ég er alltaf hræddur um að pirra einhverja eða skemma að einhverju leyti fyrir rekstrinum mínum. Þetta veldur því að ég sleppi því að gera grín að sjónvarpsþáttum á Sirkus eða framsóknarmönnum eða jeppaeigendum (ó, hvað mig langar að skrifa um samtök pallbílaeigenda, sem kvarta undan álagningu í Hvalfjarðargöngunum) því ég veit að hlutar af þessu fólki eru núverandi eða væntanlegir kúnnar á veitingastaðnum mínum. Það er því spurning hvort það borgi sig fyrir mig að hella úr skálum reiði minnar á netinu þegar það kann að hafa slæm áhrif á reksturinn.

    Kannski eru þetta ranghugmyndir hjá mér. Kannski ekki. En þetta eru allavegana ástæður fyrir skorti á góðum færslum hérna að undanförnu.

  • Mér finnst líka á stundum einsog þessi síða sé að koma í stað venjulegra samskipta við vini mína og vandamenn. Ein vinkona mín, sem býr erlendis, sagðist ekki vilja setja upp bloggsíðu þar sem að hún væri hrædd um að fá ekki tölvupósta frá vinum sínum. Ég held að margir hafi treyst á að fá fréttir af mínu lífi í gegnum þessa síðu í stað þess að hringja eða senda mér tölvupóst. Og að vissu leyti hef ég gert ráð fyrir því að það sé að gerast, svo að ég hef ósjálfrátt minnkað samskiptin. Það er ekki gott. Og því vil ég breyta.

En allavegana núna þegar ég er að hætta í 9-5 vinnunni minni, þá er ég að undirbúa langt ferðalag. Ferðasagan úr því ferðalagi ætti væntanlega að lífga uppá þessa síðu.

Einar Örn uppfærði kl. 18:25 | 547 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (6)


Hvert ætlar þú að fara?

Það er jafnvel meira spennandi en skoðanir þínar á pallbílaeigendum og öðrum viðskiptavinum veitangastaðarins!

Daði sendi inn - 06.07.06 01:24 - (Ummæli #1)

Ég er ekki enn búinn að ákveða. Hef um 2 mánuði og er að reyna að velja milli eftirfarandi landa:

Myanmar, Tæland, Kambódía, Laos, Víetnam, Nepal, Tíbet, Indland og Bangladesh.

Einar Örn sendi inn - 06.07.06 11:24 - (Ummæli #2)

Hæ Einar, Ég er alveg ógeðslega ódugleg að commenta á blogg síðunni þinni, eins og á öðrum bloggsíðum, en ég frequent gestur og kem við reglulega til að fylgjast með því sem þú ert að gera og hvaða sniðuga linka þú bendir manni á. Takk fyrir gott blogg… sorrí hvað ég er léleg að skrifa á móti… en þetta er nákvæmlega það sem ég var að tala um. :-) kv., Sandra

Sandra sendi inn - 06.07.06 13:34 - (Ummæli #3)

Mér líst vel á löndin. Þarf maður ekki að sleppa Búrma af prinsipp ástæðum samt?

Ég ætlaði að vera 3 vikur á Indlandi, endaði að vera þar í 2 mánuði svo það fær hæstu meðmæli :-) Svæðið í kringum Bangladesh, þ.e. Indlandsmegin er ótrúlega fallegt, West Bengal Hill, West Bengal, Jalapuri.

Þátturinn hjá Michael Palin, From Bhutan to Bay of Bengal fer frá þessum hluta Indlands og Inn í Bangladesh (Þáttur 6 í seríunni um Himalaya fjöllin frá BBC)

Ef þið vantar eh upplýsingar sendir þú bara línu… :-)

Daði sendi inn - 06.07.06 13:48 - (Ummæli #4)

Af þeim löndum sem þú nefnir (og ég hef heimsótt) þá stendur Laos uppúr, það er land sem ég myndi aldrei sleppa úr í svona ferð :-) Einnig er Angkor Wat í Cambodiu alveg ógleymanlegt. Ég hef ekki farið sjálf til Burma en hef heyrt frá fólki að það sé mjög erfitt að ferðast þar þó það sé að sjálfsögðu viss lífsreynsla.

Setta sendi inn - 06.07.06 18:56 - (Ummæli #5)

Já, hugur minn (er veikur heima, þannig að ég hef nógan tíma til að spá í þessu) leitar núna meira í vesturátt af þessum löndum. Held því að Laos og Kambódía þurfi að bíða.

Og Sandra: það er bréf á leiðinni :-)

Einar Örn sendi inn - 06.07.06 20:16 - (Ummæli #6)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2001 2000

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Já, hugur minn (er veikur heima, þannig að ég hef ...[Skoða]
  • Setta: Af þeim löndum sem þú nefnir (og ég hef heimsótt) ...[Skoða]
  • Daði: Mér líst vel á löndin. Þarf maður ekki að sleppa B ...[Skoða]
  • Sandra: Hæ Einar, Ég er alveg ógeðslega ódugleg að comment ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ég er ekki enn búinn að ákveða. Hef um 2 mánuði o ...[Skoða]
  • Daði: Hvert ætlar þú að fara? Það er jafnvel meira spen ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.