« Jens í 4. sætið | Aðalsíða | Here I am baby! »

Silfur Egils í dag

5. nóvember, 2006

Í Silfri Egils töldu stjórnandi og viðmælendur eftirfarandi:

  1. Að það væri veikleikamerki á Samfylkingunni að ekki væri næg endurnýjun á framboðslista (ólíkt xD í Reykjavík) og að þingmenn sætu sem fastast á sínum sætum (en vikju ekki einsog t.d. Sólveig Pétursdóttir)
  2. Að það væri veikleikamerki á Samfylkingunni að tveir þingmenn hefðu verið felldir í prófkjörum síðustu daga.

Það er erfitt fyrir Samfylkinguna að þóknast andstæðingum sínum.


Sumum viðmælendum þótti það í lagi að minnst sé sérstaklega á það þegar að innflytjendur nauðga konum. Það þykir mér ótrúlegt. Þætti sama fólki í lagi að sjá eftifarandi fyrirsagnir?:

  1. Sjálfstæðismaður nauðgaði konu í miðbæ Reykjavíkur í gær.
  2. Garðbæingur nauðgaði konu í miðbæ Reykjavíkur í gær.

Hvað gera svona fyrirsagnir annað en að sverta orðspor alls hópsins, sem hafði ekkert með glæpinn að gera?


Ég legg til að Frjálslyndi flokkurinn leggi til tillögur um það hvernig skal keyra áfram íslenskt efnahagslíf án þáttöku erlends vinnuafls. Þeir hefðu ágætt af því að starfa sem starfsmannastjóri hjá stóru fyrirtæki í nokkra daga.


Varaformaður Frjálslyndaf flokksins vill ekki fá inn Múslima til Íslands af því að þeir eru svo mikið öðruvísi. Samt segist hann ekki vera rasisti. Ég tel að hann sé ekki fær um að dæma það hvort hann sé sjálfur rasisti.

Einar Örn uppfærði kl. 13:00 | 213 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (2)


Það er áhugavert að ég hef aldrei heyrt setninguna “ég er ekki rasisti en” botnaða öðruvísi en með einhverju sem staðfestir að viðkomandi er rasisti.

Óli Gneisti sendi inn - 05.11.06 13:35 - (Ummæli #1)

Sko… þú ert augljóslega búinn að vera lengi í útlöndum.

Það er nefnilega bara Samfylkingin þarf að vera samkvæm sjálfri sér, flokkar eins og sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að hafa stefnu í einu né neinu og þurfa svo sannarlega ekki að framfylgja “stefnumálum” sínum á neinn hátt.

Ég meina… hafði í alvörunni pælt í því að Sjálfstæðisflokkurinn, flokkur frjálshyggju og tja… nokkurs konar frelsis, hefur verið við völd í 16 ár og við erum ennþá með ríkiseinkasölu á áfengi!

Kveðjur :-)

Strumpurinn sendi inn - 05.11.06 14:41 - (Ummæli #2)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2004 2001

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.