« nóvember 20, 2006 | Main | nóvember 23, 2006 »
2 ný tæki
nóvember 22, 2006
Ég skammast mín ekkert fyrir að vera á tíðum algjörlega tækjaóður. Ég hef núna beðið í næstum mánuð eftir nýjasta tækinu mínu, sem mun eflaust gera líf mitt betra, innihaldsríkara og yndislegra þegar hún loksins kemur.
Á meðan ég bíð get ég allavegana leikið mér með tvö snilldartæki tengd iPodinu mínum, sem ég keypti í Tælandi.
- Fyrir það fyrsta keypti ég mér TuneBase frá Belkin á flugvellinum í Bangkok. Þetta er lítið tæki, sem maður stingur í sígarettukveikjarann í bílnum. Tækið bæði hleður iPodinn og sendir svo út útvarpsbylgjur til að hlusta á iPod-inn í bílagræjunum.
Nú hef ég átt svona útvarpssendi áður, en þessi er margfalt betri. Bæði eru hljómgæðin æðisleg og svo er þetta sniðugara að því leyti að tækið kveikir og slekkur á iPodinum þegar maður kveikir eða slekkur á bílnum. Algjör snilld! - Hitt tækið er ekki síður mikil snilld, en það er Nike +. Þetta er lítill sendir sem maður setur á hlaupaskóinn sinn og svo annar sendir, sem maður tengir við iPod nano. Þessir sendar nema það svo hversu langt maður hleypur í ræktinni, reiknar út kaloríur og alles. Þegar maður hleypur með iPod-inn nægir að smella á einn takka og þá kemur rödd og segir manni hversu lengi og hversu langt maður hefur hlaupið. Ef þú bætir árangur þinn kemur svo Lance Armstrong í lokin og óskar manni til hamingju með persónuleg met.
Svo getur maður líka valið sér ákveðið lag, sem maður kemur manni í stuð og kallað það fram með því að halda niðri miðjutakkanum. Þessa dagana er það I’m the Ocean með Neil Young, sem hjálpar mér í gegnum síðustu metrana. Ekki veitir af, þar sem að hlaupaform mitt hvarf á ferðalaginu í Asíu.
Allavegana bæði þessi tæki eru snilld. Mæli með þessu fyrir alla iPod eigendur.
Leit:
Síðustu ummæli
- Kristján Atli: Til hamingju Sigurjón! Þér var hlíft við þessu óþa ...[Skoða]
- Einar Örn: Sigurjón, þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. ...[Skoða]
- Sigurjón: Æ æ æ æ .... Ef niðurstaðan verður Man Utd vs Liv ...[Skoða]
- Einar Örn: Takk ...[Skoða]
- einsidan: Til hambó með þetta ...[Skoða]
- Gaui: Skál fyrir því, Einar minn! ...[Skoða]
- Hjördís Yo: ó já! Ég elska sko líka Liverpool !! ...[Skoða]
- Gummi: Jamm, var lengi að jafna mig á rangstöðunni. En Re ...[Skoða]
- Fannsa: Ömurlegt þegar dómarinn dæmdi ranglega rangstöðu.. ...[Skoða]
- Snorri: Ég sé EKKI fyrir mér að Árni komist inn á þing til ...[Skoða]
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.33