« I ain't in love, I ain't in luck | Aðalsíða | Afmæli »

2 ný tæki

22. nóvember, 2006

Ég skammast mín ekkert fyrir að vera á tíðum algjörlega tækjaóður. Ég hef núna beðið í næstum mánuð eftir nýjasta tækinu mínu, sem mun eflaust gera líf mitt betra, innihaldsríkara og yndislegra þegar hún loksins kemur.

Á meðan ég bíð get ég allavegana leikið mér með tvö snilldartæki tengd iPodinu mínum, sem ég keypti í Tælandi.

  • Fyrir það fyrsta keypti ég mér TuneBase frá Belkin á flugvellinum í Bangkok. Þetta er lítið tæki, sem maður stingur í sígarettukveikjarann í bílnum. Tækið bæði hleður iPodinn og sendir svo út útvarpsbylgjur til að hlusta á iPod-inn í bílagræjunum.

    Nú hef ég átt svona útvarpssendi áður, en þessi er margfalt betri. Bæði eru hljómgæðin æðisleg og svo er þetta sniðugara að því leyti að tækið kveikir og slekkur á iPodinum þegar maður kveikir eða slekkur á bílnum. Algjör snilld!
  • Hitt tækið er ekki síður mikil snilld, en það er Nike +. Þetta er lítill sendir sem maður setur á hlaupaskóinn sinn og svo annar sendir, sem maður tengir við iPod nano. Þessir sendar nema það svo hversu langt maður hleypur í ræktinni, reiknar út kaloríur og alles. Þegar maður hleypur með iPod-inn nægir að smella á einn takka og þá kemur rödd og segir manni hversu lengi og hversu langt maður hefur hlaupið. Ef þú bætir árangur þinn kemur svo Lance Armstrong í lokin og óskar manni til hamingju með persónuleg met.

    Svo getur maður líka valið sér ákveðið lag, sem maður kemur manni í stuð og kallað það fram með því að halda niðri miðjutakkanum. Þessa dagana er það I’m the Ocean með Neil Young, sem hjálpar mér í gegnum síðustu metrana. Ekki veitir af, þar sem að hlaupaform mitt hvarf á ferðalaginu í Asíu.

Allavegana bæði þessi tæki eru snilld. Mæli með þessu fyrir alla iPod eigendur.

Einar Örn uppfærði kl. 22:27 | 298 Orð | Flokkur: Tækni



Ummæli (4)


Jíha! Ánægður með þig. Macbook og Macbook Pro eru æðislegar tölvur. Ég hef núna rúmlega mánaðarreynslu á mína og hún hefur ekki enn valdið vonbrigðum. Þær eru æði.

Þetta endar með því að við getum farið að setja disclaimer á síðuna okkar: “Liverpool bloggið notar Macbook.” :-)

Kristján Atli sendi inn - 23.11.06 19:13 - (Ummæli #1)

Ætli að það geri okkur svona jákvæða að vinna á Mac? :-)

Einar Örn sendi inn - 23.11.06 19:21 - (Ummæli #2)

Aha! Tu hefur gerst brotlegur vid utvarpslogin med a utvarpa an utvarpsleyfis. Allt sem tu segir og skrifar mun vera notad gegn ter i domsmali gegn hrydjuverkautvarpsstarfsemi tinni. Hamarksrefsing er ad hlusta a Utvarp Sogu 24 tima solarhringsins i 3 daga.

Utvarpslogregla rikisins

:-)

Agust sendi inn - 28.11.06 14:23 - (Ummæli #3)

Já, shitt - eins gott að ég verði ekki stoppaður með svona stórhættuleg tæki í bílnum.

Þessi refsing þín er ómannúðleg! Hún væri samt enn svakalegri ef hún væri einskorðuð við innhringitíma á Sögu eða pistlana, sem að þingmenn Frjálslyndra flytja í hádeginu. :-)

Einar Örn sendi inn - 28.11.06 16:45 - (Ummæli #4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2000

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Já, shitt - eins gott að ég verði ekki stoppaður m ...[Skoða]
  • Agust: Aha! Tu hefur gerst brotlegur vid utvarpslogin med ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ætli að það geri okkur svona jákvæða að vinna á Ma ...[Skoða]
  • Kristján Atli: Jíha! Ánægður með þig. Macbook og Macbook Pro eru ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.