« Landafræði | Aðalsíða | Löndin, sem ég hef heimsótt »

Hagfræðingur heimsækir MæSpeis

6. desember, 2006

Nota bene, tölurnar sem voru hérna inni fyrst voru aðeins skakkar. Ég lagaði þær til.

Ég er búinn að vera sæmilega hooked á þessu MySpace dæmi undanfarna daga. Eftirfarandi hluti hef ég lært:

  • Stelpur eignast fleiri vini en strákar
  • Íslenskar stelpur kalla allar vinkonur sínar “sæta”.
  • Það er reyndar ótrúlega mikið af sætum íslenskum stelpum á MySpace, en samt…
  • MySpace er ótrúlega ávanabindandi.
  • Fólk hefur gaman af því að taka sjálfsmyndir. Ég er ánægður að sjá að ég er ekki einn um það.
  • Skemmtileg tölfræði:
    Fjöldi íslenskra stelpna á lausu á aldrinum 20-30 á MySpace: 4.969.
    Fjöldi íslenskra stráka á lausu á aldrinum 20-30 á MySpace: 4.369.
    Semsagt fleiri íslenskar stelpur á lausu en strákar. Húrra fyrir því!
  • Fjöldi íslenskra stelpna á aldrinum 20-30 á lausu og á MySpace til að deita: 194.
    Fjöldi íslenskra stráka á aldrinum 20-30 á lausu og á MySpace til að deita: 346.
  • Semsagt 7.9% karlmanna og bara 3,9% íslenskra stelpna á lausu á MySpace segist vera þar til að deita. Annaðhvort eru allir single Íslendingar svona ofboðslega ánægðir með að vera single, eða þá að þau vilja af einhverjum ástæðum ekki nota MySpace í makaleit.
  • Fjödli stelpna á lausu sem eiga barn (allur aldur): 450
    Fjöldi stráka á lausu sem eiga barn (allur aldur): 170
  • Íslenskar konur á MySpace á aldrinum 20-30:

    Giftar: 288
    Fráskildar: 54
    Í sambandi: 1916
    Á lausu: 4.969.

    Semsagt samkvæmt MySpace þá eru 68,7% kvenna á Íslandi á aldrinum 20-30 á lausu!!!

    Augljóslega er ekki svo hátt hlutfall kvenna á íslandi á lausu, þannig að fólk á lausu virðist sækja í MySpace. Samt virðist enginn viðurkenna makaleitina. :-)

Jammmm…

Einar Örn uppfærði kl. 18:26 | 270 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (11)


….kannski hefur makalausa fólkið bara ekkert betra að gera..

Kiddi sendi inn - 06.12.06 19:55 - (Ummæli #1)

Ég er bara á myspace til að skoða flottar myndir af sætum hommum sem eru berir að ofan…

Samt er ég á lausu og klárlega ekki í makaleit á myspace! Ó mæ lord no

lilja sendi inn - 06.12.06 20:25 - (Ummæli #2)

Er hægt að sjá þessar upplýsingar einhversstaðar, eða hefur alls ekkert að gera? :-)

Rakel Ósk sendi inn - 06.12.06 20:50 - (Ummæli #3)

Ég veit ekki hvort maður þurfi að vera skráður inná MySpace, en það er allavegana hægt að leita eftir fólki eftir ákveðnum forsendum hér. Þannig að ég fletti upp þessum upplýsingum til að skoða.

Eða til að svara spurningunni þinni: Nei, ég hef ekkert betra að gera en að horfa á Meistaradeildina í fótbolta og dunda mér við þetta :-)

Einar Örn sendi inn - 06.12.06 20:57 - (Ummæli #4)

myspace er snilld til að finna kæró sérð myndir af fólki hverja hann þekkir hvernig hann kemur fram við fólk æi allskonar hægt að njósna:-)

katrín sendi inn - 07.12.06 14:01 - (Ummæli #5)

Er ekki bara single defaultið, þannig að þegar einhver skráir sig þá er hann í upphafi skráður single, en getur svo breytt því ???? Spyr sá sem ekki hefur prófað myspace.

Spaði sendi inn - 07.12.06 16:24 - (Ummæli #6)

Neibbs, það er ekki svo.

Einar Örn sendi inn - 07.12.06 17:07 - (Ummæli #7)

Ert þú á myspace til að deita??

Kata sendi inn - 07.12.06 19:54 - (Ummæli #8)

Nei, það var nú ekki pælingin. Ég man ekki af hverju ég skráði mig í upphafi.

Er þarna aðallega til að kynnast nýju fólki. :-)

Einar Örn sendi inn - 07.12.06 20:34 - (Ummæli #9)

Samt: Er ef til vill ekki hægt að skýra þetta með því að fólk á lausu sé einfaldlega virkara félagslega. Rétt eins það bloggar meira ef það er á lausu, og fer oftar á kaffihús. :-)

svansson sendi inn - 07.12.06 21:04 - (Ummæli #10)

Jú, klárlega. Ég held að það sé ein aðalástæðan.

Einar Örn sendi inn - 07.12.06 23:19 - (Ummæli #11)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2001

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Jú, klárlega. Ég held að það sé ein aðalástæðan. ...[Skoða]
  • svansson: Samt: Er ef til vill ekki hægt að skýra þetta með ...[Skoða]
  • Einar Örn: Nei, það var nú ekki pælingin. Ég man ekki af hve ...[Skoða]
  • Kata: Ert þú á myspace til að deita?? ...[Skoða]
  • Einar Örn: Neibbs, það er ekki svo. ...[Skoða]
  • Spaði: Er ekki bara single defaultið, þannig að þegar ein ...[Skoða]
  • katrín: myspace er snilld til að finna kæró sérð myndir af ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ég veit ekki hvort maður þurfi að vera skráður inn ...[Skoða]
  • Rakel Ósk: Er hægt að sjá þessar upplýsingar einhversstaðar, ...[Skoða]
  • lilja: Ég er bara á myspace til að skoða flottar myndir a ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.