« Moggabloggs heilkennið | Aðalsíða | Aconcagua »

Fjölskyldur í ófjölskylduvænum hverfum?

6. janúar, 2007

(þetta birtist fyrr í dag á bloggi Nýkrata þar sem ég skrifa)

Það er alveg þess virði að vísa á leiðara Jóns Kalddal í Fréttablaðinu í dag, sem fjallar um einstaklega furðulega herferð borgarstjóra Reykjavíkur, sama gamla Villa, gegn spilakassasal í Mjóddinni.

Nú þarf það svo sem ekkert að koma manni á óvart að Sjálfstæðismenn vilji hafa vit fyrir þegnum þessa lands, en það sem er einkennilegra er það hvernig Vilhjálmur skiptir höfuðborginni uppí “fjölskylduvæn” svæði og önnur svæði, sem eru þá væntanlega “ófjölskylduvæn”. Jón Kaldal talar um opnun spilakassasalarins:

Meginrök borgarstjóra gegn því framtaki eru að borgaryfirvöld vilji ekki starfsemi slíkra “ógæfukassa” í fjölskylduvænum hverfum.

Af því tilefni er rétt að spyrja hvort Vilhjálmur viti ekki að nú þegar eru reknir salir með spilakössum víða um borgina, og það í hverfum sem hingað til hafa ekki talist fjandsamlegri fjölskyldum en önnur hverfi? Ef sú er raunin, þá má borgarstjóri taka hinn nýja og að því er virðist röggsama lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, Stefán Eiríksson, sér til fyrirmyndar og fá sér göngutúr um borgina sína.

Nú bý ég nálægt miðbæ Reykjavíkur, þar sem rekinn er spilasalur. Það finnst Vilhjálmi allt í lagi, þar sem mitt svæði er sennilega ekki “fjölskylduvænt” í hans huga. Það finnst mér magnað þar sem að ég er alltaf að sjá lítil börn á leikskólanum við hliðiná blokkinni minni og á æfingasvæði KR, sem er ekki langt frá mér.

Borgarstjóri segir um þetta

Ég sannreyndi að til að banna spilakassa í söluturnum þarf að grafa mjög djúpt lögfræðilega en mun hins vegar fara yfir þessi mál heildstætt með eigendum spilakassanna og reyna að ná sátt um að þeir séu ekki settir upp í fjölskylduvænum fjölskyldukjörnum

Þessi spilasalur í Mjóddinni er fullkomlega löglegur og það er einfaldlega hræsni af borgarstjóra að vilja ekki svona “óæskilega”, en fullkomlega löglega starfsemi í sínu heimahverfi bara vegna þess að hann skilgreini sitt hverfi sem “fjölskylduvænt”.

Borgarstjóri þarf líka að svara fyrir það hvernig hann skilgreini ófjölskylduvæn hverfi. Eru fjölskyldyrnar sem þar búa í minni metum hjá borgarstjóra og eiga þær fjölskyldur að sætta sig við að hvers konar starfsemi sé þar rekinn á meðan borgarstjóri haldi verndarskildi yfir þær fjölskyldur sem búi í “fjölskylduvænu” hverfunum? Það væri gaman að heyra.

Einar Örn uppfærði kl. 14:21 | 368 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (5)


Vilhjálmur er þarna á hálum ís. Það er rétt að geta þess að Vilhjálmur býr nú einmitt í Breiðholtinu, allavega síðast þegar ég vissi. Skyldi sú staðreynd á einhvern hátt lita afstöðu hans í þessu máli? Það skyldi þó aldrei vera.

Þar fyrir utan hefur mér aldrei þótt Mjóddin sérlega fjölskylduvæn að sjá. Ég get ekki séð annað en að spilakassar passi bara fínt inn í þessa hverfismiðstöð.

GUmmi Halldórs sendi inn - 06.01.07 14:53 - (Ummæli #1)

Það er ekki bara Vilhjálmur sem er á móti þessum sal í Mjóddinni heldur hefur íbúaráð Breiðholts mótmælt þessu, leikskólar hverfisins, grunnskólarnir sem og íþróttafélögin. Fólk almennt er á móti þessum sal þarna og það vill hann ekki þarna.

Íbúalýðræðið er bara í fullswing hérna sýnist mér.

Gummi Jóh sendi inn - 06.01.07 18:50 - (Ummæli #2)

Íbúalýðræðið er bara í fullswing hérna sýnist mér.

Þá gefur þú þér að íbúar hafi eitthvað að segja um þetta. Ef þú byggir ennþá í Breiðholtinu, myndir þú þá hafa mikið að segja í íbúðaráði, leikskóla eða grunnskóla?

Einar Örn sendi inn - 06.01.07 19:38 - (Ummæli #3)

Plús það, Gummi Jóh, að punkturinn hjá mér var aðallega sami og í leiðaranum, það er þessi furðulega skilgreining á “fjölskylduvænum” svæðum og öðrum svæðum. Hún er afskaplega vafasöm.

Einar Örn sendi inn - 06.01.07 19:42 - (Ummæli #4)

Enginn hefur spurt mig hvaða álit ég hef ég þessum spilasal. Það stoppar fólk sem ekkert að tala fyrir mína hönd í þessu máli.

Óli Gneisti sendi inn - 06.01.07 20:18 - (Ummæli #5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2006 2005 2004 2003

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.