« NFL hjálp! | Aðalsíða | Einar Simpson »

Salsa!

13. janúar, 2007

Á meðan Emil félagi minn á Serrano var uppá fæðingardeild þar sem hann og Ella eignuðust litla stelpu (til hamingju!!!) var ég í fyrsta tímanum mínum á salsa námskeiði.

Ég er lengi búinn að ætla að fara á námskeið í salsa, en mig hefur alltaf vantað dansfélaga þangað til nú.

Ég lærði að dansa salsa og (aðallega) merengue þegar ég var skiptinemi í Venezuela. Systir mín í Venezuela kenndi mér þessa dansa á stofugólfinu í íbúðinni okkar í miðbæ Caracas. Hún var reyndar ekki mjög formleg í kennslunni, heldur fólst kennslan aðallega í því að kenna mér sveiflur og kalla á mig að hreyfa mjaðmirnar, sem er oftast aðalvandamál okkar hvítra karlmanna þegar við dönsum þessa dansa.

Ég sakna enn þann dag í dag partíanna í Venezula. Partí útí garði þar sem tónlistinn var sett á og allir dönsuðu allt kvöldið. Ég sakna líka ferðanna á klúbbana í Caracas þar sem maður dansaði allt kvöldið við venezúelskar stelpur, sem eru á eftir íslenskum stelpum fallegasti kvennahópur í heimi.


Danstíminn í gær opinberaði það nokkuð greinilega að ég er ekki jafngóður dansari og ég hélt. Ég var góður í því að fylgja eftir reyndum suður-amerískum stelpum, sem rifu mig áfram og stjórnuðu dansinum, enda fyllast þær vorkunnsemi þegar þær sjá ljóshærða stráka einsog mig, sem eiga erfitt með að hreyfa mjaðmirnar.

Núna í gær var ég með íslenskri stelpu, sem var óreynd í salsa og því var þetta miklu erfiðara fyrir mig, auk þess sem ég var ákveðnari í að læra réttu sporin og ruglaðist því miklu oftar en ég gerði á troðnu dansgólfi í Suður-Ameríku, þar sem ég spáði minna í sporunum.

En þetta kemur allt. Námskeiðið er 6 vikur og ég er viss um að við tvö eigum eftir að vera stórkostlegir dansarar þegar þetta er búið. :-)

Einar Örn uppfærði kl. 15:44 | 300 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (7)


hahahah, ja thad er alveg otrulegt hvad manni finnst madur vera otrulega godur salsadansari a godum klubb, i midri sveiflu med godum partner. Frabaert hja ther ad fara a namskeid. Eg hef enn sem komid er latid thad naegja ad lata mexikonsku vinina kenna mer.

En hvert fer madur a Islandi til thess ad dansa salsa a djamminu?

Alfheidur sendi inn - 14.01.07 04:24 - (Ummæli #1)

En hvert fer madur a Islandi til thess ad dansa salsa a djamminu?

Ég veit það ekki enn. Við höfum áhyggjur af því þegar við erum búin á námskeiðinu. Efast um að það séu margir möguleikar.

Einar Örn sendi inn - 14.01.07 14:13 - (Ummæli #2)

það eru einhver salsakvöld í alþjóðahúsinu.. ég veit þetta af því vinnukærastinn minn sem er alltaf að reynað kenna mér að dansa salsa á glerbrúnni og sagði mér þetta:-)

katrín sendi inn - 15.01.07 17:16 - (Ummæli #3)

takk takk :-)

Emil sendi inn - 15.01.07 23:44 - (Ummæli #4)

Ég er fyrrum Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum þannig ég kann að hreyfa mjaðmirnar ágætlega. :-) En salsa… er það ekki dansinn þar sem grunnurinn byggist á því að maður hreyfi fæturnar til hliðanna, til skiptis, og hreyfi mjaðmirnar með? :-)

Gaui sendi inn - 25.01.07 22:42 - (Ummæli #5)

Jepp, you’ve got the idea. :-)

Einar Örn sendi inn - 25.01.07 23:33 - (Ummæli #6)

Frábær dans. :-) Haltu hiklaust áfram! En af hverju ekki að stíga skrefinu lengra og byrja í samkvæmisdönsum? Það er ekkert flottara en að geta tekið dömurnar í smá spinning á miðju dansgólfinu. Þá fyrst bíða dömurnar í röðum. :D

Gaui sendi inn - 25.01.07 23:50 - (Ummæli #7)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2006 2005 2004 2001

Leit:

Síðustu ummæli

  • Gaui: Frábær dans. :-) Haltu hiklaust áfram! En af h ...[Skoða]
  • Einar Örn: Jepp, you've got the idea. :-) ...[Skoða]
  • Gaui: Ég er fyrrum Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum þan ...[Skoða]
  • Emil: takk takk :-) ...[Skoða]
  • katrín: það eru einhver salsakvöld í alþjóðahúsinu.. ég ve ...[Skoða]
  • Einar Örn: >En hvert fer madur a Islandi til thess ad dansa s ...[Skoða]
  • Alfheidur: hahahah, ja thad er alveg otrulegt hvad manni finn ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.