« Tveir dagar í opnun | Aðalsíða | Guðmundur og Heimdallur »

Serrano Hringbraut opnar

28. janúar, 2007

Jæja, okkur tókst víst að opna Serrano. Opnuðum klukkan 5 mínútur yfir 10 í morgun. Það er nokkur framför, því þegar við opnuðum Kringluna þá opnuðum við 5 tímum á eftir áætlun. Í morgun stóðst þetta hins vegar nokkurn veginn.

En það tókst líka með því að fólk var að vinna alla nóttina. Endalaust vesen með iðnaðarmenn olli því að við fengum í raun ekki staðinn útaf fyrir okkur fyrr en um 3 leytið á föstudaginn og höfðum því lítinn tíma til að innrétta staðinn, þrífa og elda mat fyrir næsta dag.

Ég var þarna allan daginn og svo var Emil og eitthvað af starfsfólkinu líka alla nóttina. Ég ákvað þó að fara að sofa um klukkan 2, en var mættur aftur á svæðið klukkan 8 og var þarna þegar við opnuðum. Ég get ekki séð annað en að þetta byrji mjög vel og það hefur verið gott að gera í allan dag. Ég er svona kominn yfir allra mesta stressið, en þori ekki ennþá að láta símann mjög langt frá mér. Hann hefur verið nánast límdur við eyrað á mér undanfarna daga.


Útlitið á staðnum er gjörbreytt frá því sem er í Kringlunni og ég er alveg fáránlega ánægður með það. Ég hannaði þetta með Vatíkaninu og hefur þetta að mínu mati heppnast ótrúlega vel. Núna þurfum við bara að fara í endurbætur á Kringlunni svo hún líti jafn vel út. Maturinn er enn sem komið er óbreyttur, en þó stendur til að prófa nýja rétti á næstunni.

En það er allavegana spennandi að vera búinn að opna og gaman að vita til þess að maður geti farið að sofa klukkan 1 á laugardagskvöldi vitandi að það sé ennþá opið á Serrano. Kringlan hefur auðvitað verið takmarkandi að því leyti að þar er lokað klukkan 7 á kvöldin og því nánast enginn kvöldmatur, en á nýja staðnum verður opið til 11 virka daga og 3 föstudaga og laugardaga, svo það er ekki lengur vandamál.

Einar Örn uppfærði kl. 00:11 | 326 Orð | Flokkur: Vinna



Ummæli (18)


til hamingju! kæró minn fór áðan og keypti fyrir mig burrito af því ég er lasin heima

mmmm mjög gott!

ég ætlað koma við þarna á leiðinni heim af æfingum og svona :-)

katrín sendi inn - 28.01.07 00:35 - (Ummæli #1)

TIL HAMINGJU!!!! :-) :-) :-)

lilja sendi inn - 28.01.07 00:35 - (Ummæli #2)

Ég tók einmitt eftir því hvað þú hélst fast í símann í kvöld. :-)

Annars, til hamingju. Staðurinn leit mjög vel út og staðsetningin er frábær fyrir nema í H.Í. eins og mig. Ef þú segir að útlit og framkoma staðarins muni batna enn frekar hlakka ég til að koma næst.

Svo er þetta einfaldlega besti hraðbiti á Íslandi. Svo einfalt er það nú bara. :-)

Kristján Atli sendi inn - 28.01.07 01:25 - (Ummæli #3)

Fór og fékk mér þynnku-burrito þegar ég vaknaði í dag. Til hamingju með staðinn! :-)

Hannes sendi inn - 28.01.07 04:40 - (Ummæli #4)

Þynnku Quasadilla var frábær! Bjargaði nokkrum klst af lífi mínu…

Daði sendi inn - 28.01.07 13:10 - (Ummæli #5)

Erum tvær á lokaspretti uppí HÍ og erum hér framá kvöld flesta daga. Frábært að fá veitingastað nálægt skólanum, kíktum þarna í gær og mjög gott!

Björk sendi inn - 28.01.07 13:53 - (Ummæli #6)

Til Hamingju Einar - frábært:-)

Ásgeir sendi inn - 28.01.07 20:32 - (Ummæli #7)

Innilega til hamingju með þetta, Einar. :-)

Gaui sendi inn - 28.01.07 21:22 - (Ummæli #8)

Til hamingju.

Ég held að ég hafi aldrei borðað á Serrano…evör. Geri það í sumar. Skal taka alla fjölskylduna með.

Halli sendi inn - 28.01.07 23:08 - (Ummæli #9)

Til hamingju með nýja staðin

Hafrún sendi inn - 29.01.07 00:39 - (Ummæli #10)

Takk kærlega allir. Takk takk :-)

Halli, þú sleppur þar sem þú býrð í New York. En þú verður að koma að prófa þegar þú kemur til Íslands næst.

Einar Örn sendi inn - 29.01.07 19:23 - (Ummæli #11)

hey, til hamingju með nýja staðinn.

Með hverjum mæliru annars ? Kannski ég nái að draga Húlíó með mér á morgun :-)

majae sendi inn - 30.01.07 02:39 - (Ummæli #12)

Til hamingju með opnunina Einar.

Eins og Halli þá hef ég ekki heldur borðað á Serrano (enda líka búsettur í NY). Ég borðaði alltaf á “mömmunni” þangað til ég fór til Mexico síðasta sumar. Þar borðaði ég yfir mig af mexíkóskum mat og hef ekki mikið smakkað hann síðan eiginlega. HINSVEGAR ætla ég að borða á nýja staðnum ykkar þegar ég kem heim í vor.

That’s a promise!!

Sigurjón sendi inn - 30.01.07 09:10 - (Ummæli #13)

Sko, Maja - ég mæli með quesadillas með kjúklingi. Það er ótrúlega gott, en kannski ekki alveg jafn hollt og kjúklingaburrito. Ég fæ mér mjög oft quesadilla með osti, kjúklingi, maís, nachos flögum og bbq sósu og svo sýrðum rjóma oná.

Það er kannski ekki alveg jafn hollt og burrito, en rosalega gott. Svo í burrito-unum fæ ég mér oftast bbq burrito (gott ef þér finnst bbq sósa góð) eða grískan burrito (gott ef þér finnst feta ostur góður) eða fajitas burrito.

Og Sigurjón, hlakka til að sjá þig á nýja staðnum. :-)

Einar Örn sendi inn - 30.01.07 09:29 - (Ummæli #14)

váááá hvað nýi staðurinn er fínn! ég fékk mér fajitas burrito very nice!

katrín sendi inn - 30.01.07 22:09 - (Ummæli #15)

Takk :-)

Einar Örn sendi inn - 31.01.07 09:15 - (Ummæli #16)

Til hamingju með nýja staðinn :-)

Cilla sendi inn - 01.02.07 11:55 - (Ummæli #17)

Takk :-)

Einar Örn sendi inn - 01.02.07 22:04 - (Ummæli #18)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2005 2003

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.