« Landsbanka-auglýsing | Aðalsíða | Sófinn minn »

Í dag

8. febrúar, 2007

Áðan var ég í Melabúðinni þegar ég sá fyrrverandi kærustu mína framan á Séð & Heyrt (nei, ekki Sirrí!) og ákvað að kaupa blaðið í fyrsta skipti í langan tíma. Þegar ég kom heim las ég blaðið. Sú athöfn tók fjórar og hálfa mínútu.

Ég hef reyndar sett fram þá kenningu að Séð & Heyrt stefni að því að hafa myndir af sem flestum í hverju blaði svo að fólkið á myndunum og ættingjar þeirra kaupi sér eintak. Þetta virkaði allavegana í þessu tilfelli.


Svo tók ég inn Ibufen og horfði á Children of Men, sem er að mínu mati ekki jafn æðisleg og margir hafa haldið fram.


Svo tók ég meira til og vann smá líka áður en ég ákvað að slökkva á email forritinu mínu þar sem ég vildi ekki fá meira vinnutengt inná mitt borð. Því næst tók ég til við að skoða nær allar myndasíður hjá flestum MySpace kontöktunum mínum. Það var fróðlegt.


Ég ætla ekki að vera veikur á morgun!

KOMA SVO, ónæmiskerfi - do your thing!

Einar Örn uppfærði kl. 23:44 | 175 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (8)


hehe ég vildi að sirrí væri fyrrverandi kærastan þín, það væri bara of fyndið

katrín sendi inn - 09.02.07 00:01 - (Ummæli #1)

Jammm, það væri eflaust skemmtileg partý saga :-)

Einar Örn sendi inn - 09.02.07 12:17 - (Ummæli #2)

Ég er búinn að vera kvefaður í nokkra daga og er búinn að vera að taka inn á fullu lýsi, C vítamín (+sólhattur) og hvítlauk. Svo er ég að fara núna á eftir í sumarbústaðarferð með vinunum sem við plönuðum fyrir mörgum mánuðum, þannig ég tek undir með þér…

Ónæmiskerfi - do your thing, bitch!

Gaui sendi inn - 09.02.07 17:18 - (Ummæli #3)

Fyrirgefið að ég spyrji að þessu hér en ég veit að margir háskólanemar lesa þessa síðu. En spurningin er : bókasafnskort sem ég fékk á aðalbókasafni niðri í bæ, gilda þau á Þjóðarbókhlöðunni eða þarf maður líka að kaupa sér kort þar? Afsakið fáfræðina og ég vona að þú leyfir þessarri spurningu að vera :-)

Kristján sendi inn - 09.02.07 21:49 - (Ummæli #4)

Sammála þér með Children of Men.. kárlega ofmetin mynd þrátt fyrir gríðarlegan fola. Mæli þó eindregið með Babylon og Crash (dulítið “gömul” en frábær mynd!)… Það má reyna að nýta veikindatímann í smá “catching up” í myndaflórunni :-)

Fannsa sendi inn - 10.02.07 02:00 - (Ummæli #5)

já.. mér leikur samt furða á afhverju var ekkert talað um stúlkna-dans-söng-hópinn bómul.

Mjög einkennilegt.

majae sendi inn - 10.02.07 16:29 - (Ummæli #6)

Hæ hæ, veit ég er soldið sein með þetta, en ætla bara að óska þér innilega til hamingju með nýju opnunina á Serrano! Hafðu það gott

Rakel

Rakel Ósk sendi inn - 10.02.07 18:00 - (Ummæli #7)

Takk, Rakel. :-)

Og Fanney, ég er búinn að sjá báðar myndirnar.

Einar Örn sendi inn - 11.02.07 13:54 - (Ummæli #8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2005 2004 2001

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Takk, Rakel. :-) Og Fanney, ég er búinn að sjá b ...[Skoða]
  • Rakel Ósk: Hæ hæ, veit ég er soldið sein með þetta, en ætla b ...[Skoða]
  • majae: já.. mér leikur samt furða á afhverju var ekkert t ...[Skoða]
  • Fannsa: Sammála þér með Children of Men.. kárlega ofmetin ...[Skoða]
  • Kristján: Fyrirgefið að ég spyrji að þessu hér en ég veit að ...[Skoða]
  • Gaui: Ég er búinn að vera kvefaður í nokkra daga og er b ...[Skoða]
  • Einar Örn: Jammm, það væri eflaust skemmtileg partý saga :-) ...[Skoða]
  • katrín: hehe ég vildi að sirrí væri fyrrverandi kærastan þ ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.