« (Barna)klám | Aðalsíða | Meira um klám »

Salsa update

18. febrúar, 2007

Jæja, ég kláraði salsa námskeiðið á föstudagskvöld. Er búinn að vera á því í sex vikur og þetta er búið að vera verulega skemmtilegt. Stelpan sem ég dansa með hafði aldrei prófað salsa, en ég hafði lært það mjööög óformlega í Venezuela. Samt var ég aldrei góður í salsa, þar sem í Venezuela dönsuðum við aðallega merengue. En þetta gekk bara nokkuð vel hjá okkur og í síðustu tveimur tímunum var þetta farið að smella verulega vel saman.

Í gærkvöld fórum við svo saman á salsa kvöld á Kaffi Kúltúra. Þar var Carlos, salsa kennarinn okkar, DJ og spilaði hann blöndu af salsa, merengue og einhverri annarri tónlist frá Suður-Ameríku. Þetta var verulega skemmtilegt, fyrir utan kannski þá staðreynd að aldurstakmarkið á staðnum er sennilega 15 ár og því var dansgólfið samblanda af fólki sem var að dansa salsa og fullum unglingum.

En það er allt öðruvísi að dansa salsa á skemmtistað en í danstíma. Maður gleymir því að hafa áhyggjur af sporunum og nýtur þess bara að dansa. Í gærkvöldi fékk ég smá nostalgíukast þar sem þarna var fullt af fólki frá Suður-Ameríku og tónlistin og dansinn minntu mig aðeins á Suður-Ameríku. Það vantaði bara að ég gæti gengið út í 30 stiga hita og fengið mér tacos al pastor eða Caracas hamborgar og þá hefði þetta verið næstum því alveg eins. :-)

Einar Örn uppfærði kl. 14:00 | 224 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (3)


Ohh… flashback… lationmenning framkallar gæsahúð… Annars er Cultura fínn staður að mínu mati. Oftast frábær DJ en ég hef líka tekið eftir þessu með unglingana, þeir virðast eiga athvarf þarna :-)

Fannsa sendi inn - 19.02.07 08:44 - (Ummæli #1)

Já, þessi staður virkaði bara ágætlega á mig. Fyrir utan þá 17 ára strákana þarna inni. :-)

Einar Örn sendi inn - 19.02.07 09:21 - (Ummæli #2)

Ja, salsa er otrulegur dans! Buin ad vera a salsa-aedinu i 1 1/2 ar nuna, og aetla aldrei ad haetta med thad… :-) Salsa er mikid i tisku her i Lux nuna, og 2. Luxembourg Salsa Festival ad koma upp… http://www.salsalux.com/ :-)

Einar Oern i Lux sendi inn - 19.02.07 14:56 - (Ummæli #3)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.