« Netvarp | Aðalsíða | Snillingurinn Costello »

Netlögga

26. febrúar, 2007

Ég trúi því varla að fólk sé að tapa sér yfir ummælum Steingríms J. um að hann vilji stofna netlöggu til að fylgjast með netumferð landsmanna. Ég meina, það er ekki fræðilegur möguleiki á að honum hafi verið alvara með þessu? Er það nokkuð? Ha? Þetta er svo vitlaus hugmynd að það er nánast ólýsanlegt.

Einar Örn uppfærði kl. 10:23 | 55 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (10)


Já, þessi hugmynd er algjörlega út úr kú - og þar að auki ill- eða óframkvæmanleg.

Gaui sendi inn - 26.02.07 14:15 - (Ummæli #1)

Ég átti ekki til eitt aukatekið orð þegar ég heyrði þetta.

Eigum við ekki bara að taka upp sama háttinn og Kínverjar og loka fyrir þær síður sem ekki hugnast yfirvaldinu.

Það er margt síðustu vikur sem sýnir Steingrím J í nýju ljósi, kannski ekki nýju en það sýnir að eftir allt saman er hann bara sami gamli allaballinn og „nýjar” hugsjónir eru mest megnis rugl… að mínu mati.

Gummi Jóh sendi inn - 26.02.07 14:37 - (Ummæli #2)

Er einhvers staðar á netinu hægt að heyra/lesa hvað hann sagði nákvæmlega? Ég er að komast að þessum ummælum fyrst núna.

Sigurjón sendi inn - 26.02.07 14:42 - (Ummæli #3)

Maðurinn er auðvitað snillingur. Hver vill ekki banna klám og það hvað sem það kostar. Svo verður bjórinn aftur gerður að bannvöru og öll fyrirtæki sem græða vísað úr landi. Fólkinu verður svo að endingu vísað frá Reykjavík, líkt og gerðist í Kambódíu, og sent út á land að prjóna ullarvettlinga og tína fjallagras.

Einar sendi inn - 26.02.07 14:49 - (Ummæli #4)

Sigurjón, þetta var í Silfri Egils - þú ættir að geta séð þáttinn á vísi.is.

Einar Örn sendi inn - 26.02.07 16:38 - (Ummæli #5)

Nu hef ég ekki hugmynd um hvað Steingrímur sagði eða hvernig hann meinti það, en ég verð að viðurkenna að mér finnst “netlögga” ekki í eðli sínu fáránleg hugmynd.

Ekki ef útfærslan felur fyrst og fremst í sér deild innan lögreglunnar sem sérhæfir sig í að skilja nettækni nægilega vel til að aðstoða við rannsókn glæpa sem styðjast að einhverju eða öllu leyti við internettækni.

Eins og til dæmis þjófnað úr heimabönkum, notkun netsins við sölu á þýfi eða dreifingu vírusa. Líf fólks fer í síauknum mæli fram “á netinu” og lögreglan þarf því að hafa skilning á nettækni sem mig grunar að hana skorti að miklu leyti í dag.

Bjarni Rúnar sendi inn - 26.02.07 18:47 - (Ummæli #6)

Bjarni, Steingrímur vildi fá netlöggu til að stemma stigu við því að fólk geti skoðað klám á netinu.

Einar Örn sendi inn - 26.02.07 19:11 - (Ummæli #7)

Mér fannst þetta svo fyndið að ég dó næstumþví! Jesús! Að detta þessi vitleysa í hug!!!! :-) Ótrúlegt!!

Marella sendi inn - 27.02.07 10:24 - (Ummæli #8)

Ég gerði mynd af nýju netlöggunni okkar…

http://gaui.is/img/netlogga-sjs.jpg

Gaui sendi inn - 28.02.07 00:37 - (Ummæli #9)
Geir sendi inn - 03.03.07 12:36 - (Ummæli #10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2005 2004 2002

Leit:

Síðustu ummæli

  • Geir: Skoða]
  • Gaui: Ég gerði mynd af nýju netlöggunni okkar... Skoða]
  • Marella: Mér fannst þetta svo fyndið að ég dó næstumþví! Je ...[Skoða]
  • Einar Örn: Bjarni, Steingrímur vildi fá netlöggu til að stemm ...[Skoða]
  • Bjarni Rúnar: Nu hef ég ekki hugmynd um hvað Steingrímur sagði e ...[Skoða]
  • Einar Örn: Sigurjón, þetta var í Silfri Egils - þú ættir að g ...[Skoða]
  • Einar: Maðurinn er auðvitað snillingur. Hver vill ekki ba ...[Skoða]
  • Sigurjón: Er einhvers staðar á netinu hægt að heyra/lesa hva ...[Skoða]
  • Gummi Jóh: Ég átti ekki til eitt aukatekið orð þegar ég heyrð ...[Skoða]
  • Gaui: Já, þessi hugmynd er algjörlega út úr kú - og þar ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.