« Helgin | Aðalsíða | Mæspeis ást »
KR-Karfan
16. apríl, 2007
Ég tek tilbaka allt slæmt, sem ég hef sagt um íslenskan körfubolta. Það er kannski ekki mjög skemmtilegt að horfa á lið af Suðurnersjunum spila - en þegar lið, sem ég hef taugar til, er að spila - þá verður þetta frábær skemmtun.
Ég er ekki frá því að ég hafi haft meiri áhuga á þessu úrslitaeinvígi í körfuboltanum heldur en ég hef haft á handboltaleikjum á Íslandi í mörg ár. Það að úrslitakeppnin í handboltanum hafi verið lögð niður er náttúrulega eitt magnaðasta klúður seinni ára.
En allavegana, þetta var frábært hjá Vesturbæjarstórveldinu.
Ummæli (2)
Kristján Atli sendi inn - 16.04.07 23:24 - (Ummæli #1)
Já í fyrsta skipti á ævinni er ég ánægð fyrir hönd KR-inga! Til hamingju með þetta!
Marella sendi inn - 17.04.07 08:32 - (Ummæli #2)
Senda inn ummæli
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.
|
|
Ummæli:
|
Leit:
Síðustu ummæli
- Marella: Já í fyrsta skipti á ævinni er ég ánægð fyrir hönd ...[Skoða]
- Kristján Atli: Veistu, ég ætla að óska KR-ingnum Einari til hamin ...[Skoða]
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Fjölmiðlar | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Uppboð | Viðskipti | Vinna |Gamalt:
Topp 10:
Ég nota MT 3.33
Veistu, ég ætla að óska KR-ingnum Einari til hamingju með þetta. Það er nefnilega, að mínu mati, bara góðar fréttir að lið utan Suðurnesjanna skuli hafa unnið titilinn í körfubolta. Rétt eins og það var á sínum tíma gott fyrir handboltann að einhver annar en FH, Valur eða Víkingur skyldi vinna titilinn (þau þrjú höfðu deilt þessu með sér í nærri því þrjá áratugi án afláts) þá hlýtur þetta að boða gott fyrir körfuna.
Enda eru Keflavík og Njarðvík svipað góðir með sig í körfunni og KR eru í fótboltanum. En í alvöru, til hamingju!