“I Love You, Mr. Star Wars” And Other Famous Movie Quotes – Supercuts – Videogum. – Leikarar segja nöfn myndanna sem þeir eru að leika í.
Author: einarorn
AIK, Dawkins, Wall Street og sænskt bíó
Já já já – punktablogg
- Margrét bloggar um Så som i himmelen, mjög fína sænska mynd sem við horfðum á um þarsíðustu helgi.
- Um þessa helgi leigðum við bíl og fórum í Skärholmen og svo í IKEA í Kungens Kurva. Þegar þú kemur inní þá búð blasir við þér skilti þar sem þú ert boðinn velkominn í stærstu IKEA búð í heimi. Ég veit ekki hverjum þykir það spennandi – ég er ekki einn af þeim. En ég komst þó sæmilega heill úr þessari ferð.
- Við keyptum tvær kommóður, aðra fyrir gesta/tölvu/lærdóms-herbergið og hina fyrir ganginn. Þegar ég hafði baksað við það í nokkra klukkutíma að setja þetta saman þá komumst við að því að gólfið í ganginum (sem er upprunalegt trégólf) var svo skakkt að kommóðan getur ekki staðið nema að undir henni séu verulega þykk blöð. Margrét bloggaði líka um þetta.
- Annars horfði ég á sunnudaginn AIK verða Svíþjóðarmeistari í fótbolta. Ég hef verið dálítið óviss um það hvaða lið ég styðji í sænska boltanum. AIK er eina liðið sem ég hef séð spila og það fær mesta athygli hérna í Stokkhólmi. Ég bý hins vegar á Södermalm og þar er meiri stuðningur við Hammarby (liðið sem að Pétur Marteinsson spilaði lengi með) en það lið er búið að vera hræðilegt í sumar og þeir enduðu tímabilið á því að falla úr efstu deild. Núna vona ég bara að AIK komist inní riðlakeppni Meistaradeildarinar á næsta tímabili. Það gæti verið skemmtilegt.
- Í fyrradag horfðum við svo á fyrri hlutann á Root of All Evil?, sem er nokkuð skemmtileg sería þar sem að Richard Dawkins fjallar um trúarbrögð. Ég las The God Delusion í Indónesíu og þetta er ágætis viðbót.
- Við leigðum líka (erum reyndar í nokkurs konar Netflix klúbb sem heitir Lovefilm þar sem við fáum myndir sendar með pósti) Wall Street. Ég horfði á hana fyrir allmörgum árum og datt í hug að það væri sniðugt að sjá hana aftur. Hún eldist sæmilega vel.
Örvitinn: Klikkaðar konur
Örvitinn: Klikkaðar konur. – Matti bendir á athyglisverðar umræður um kannabis og detox. Ég skemmti mér við að lesa þetta í gærkvöld.
Skuldir ýktar, enn og aftur – vthorsteinsson.blog.is
Skuldir ýktar, enn og aftur – vthorsteinsson.blog.is. – Vilhjálmur skrifar um skuldir þjóðarbúsins og hvernig margir misskilja þær tölur. Mjög góð grein.
Síam lokar
Í lok vikunnar ætlum við að loka veitingastaðnum Síam.
Við keyptum staðinn sumarið 2007 af stofnendum hans. Emil þekkti til þeirra hjóna og vissi að þau höfðu áhuga á að hætta rekstrinum. Við höfðum áhuga á húsnæðinu fyrir Serrano stað og það kom fljótlega til tals að við myndum líka kaupa Síam reksturinn af þeim þar sem að okkur fannst maturinn ótrúlega góður og okkur langaði til að halda staðnum opnum áfram.
Það varð því af þeim kaupum í lok sumars 2007. Við eyddum miklum tíma í að læra allt um staðinn. Í margar vikur vorum með fólk frá okkur í eldhúsinu að læra af Tim, sem hafði eldað réttina eftir minni í mörg ár. Engar uppskriftir voru til á staðnum og þurftum við því að skrifa þær upp frá grunni og skipuleggja aðra vinnu í eldhúsinu. Við breyttum húsnæðinu líka og minnkuðum aðeins salinn á Síam til að fá meira pláss undir Serrano.
* * *
Nú höfum við rekið staðinn í rúm 2 ár og það er ljóst að reksturinn er ekki að ganga upp. Salan er aðeins meiri en hún var þegar að þau hjón hættu, en við höfðum auðvitað vonir um að auka söluna umtalsvert. Það hefur ekki tekist og því verðum við að horfast í augu við þær staðreyndir. Síam er bara örsmár hluti af veltu Serrano, en staðurinn tók samt alltof mikinn tíma fyrir yfirstjórn og aðra. Tilraunir til þess að lengja opnun, bæta þjónustu og lækka verð umtalsvert (í mikilli verðbólgu) hafa lítið hjálpað. Heldur ekki aukin áhersla á heilsusamlega rétti.
Á staðnum þar sem Síam er rekinn er líka vinnslueldhús Serrano og svo einnig Serrano staður. Vegna gríðarlega mikillar sölu á Serrano var staðan orðin þannig að vinnslueldhúsið var búið að sprengja utanaf sér allt húsnæði og þess vegna varð sífellt erfiðara að standa í rekstrinum á Síam þar sem að við þurftum á plássinu að halda undir eldhúsið. Það leiddi á endanum til þess að við ákváðum að loka Síam.
Nú má spyrja sig hvað við gerðum vitlaust. Því eitthvað hljótum við að hafa gert vitlaust því okkur tókst ekki að ná á staðnum upp þeirri sölu sem við ætluðum okkur.
* Maturinn. Þetta var það erfiðasta fyrir okkur. Það að taka við stað þar sem að einn maður hafði eldað allt í fleiri ár og reyna að reka hann árið 2007 var erfitt. Gríðarleg starfsmannavelta var á þessum tíma og við lentum trekk í trekk í að missa fólk útúr eldhúsinu, sem þýddi að við þurftum að þjálfa fólk uppá nýtt og lentum í sömu vandræðum aftur og aftur.
Við höfum ekkert reynt að spara í eldhúsinu – planið okkar var alltaf að halda sama standard þar. Í raun jukum við til að mynda við kjötskammta í réttunum og héldum sama standard í innkaupum. En hringlið á starfsfólkinu í eldhúsinu ollu því að maturinn klikkaði oft. Taílenskur matur er ekki auðveldur í eldun og tímasetning ræður þar miklu. Það var ekki auðvelt að ná því á hreint með mikilli veltu á starfsfólki.
* Staðsetningin er ekkert rosalega góð, en það vissum við svosem fyrir. Og staðurinn var eiginlega á milli þess að vera fínn staður og take-away staður. Gæði matarins voru næg fyrir fínan stað en útlit staðarins réttlæti það ekki. Þannig var hann kannski hvorki fugl né fiskur.
* Þjónustan. Ansi margir kúnnar höfðu verslað við staðinn í mörg ár. Það var kósí að koma inná Síam þegar að annar eigandi staðarins var alltaf þar til að taka á móti þér. Þau hjón gátu hins vegar einfaldlega ekki staðið lengur í rekstrinum og þótt að við höfum gert okkar besta til að halda uppi sama standard, þá voru margir kúnnar í því að bera saman þjónustuna þegar að annar eigandinn var að afgreiða við þjónstuna hjá okkur – og útúr því komum við ekki alltaf vel. Við löguðum þó ýmislegt við þjónustuna, til að mynda afgreiddum við alla sem hringdu (áður var síminn tekinn af þegar mikið var að gera) og svo framvegis.
* * *
Allavegana – þetta gekk ekki upp. Þrátt fyrir að mér persónulega hafi fundist þetta vera besti taílenski matur á landinu, þá náðum við aldrei þeirri sölu sem við gerðum okkur vonir um (Ég hef í raun ekki enn fundið betri taílenskan mat hérna í Stokkhólmi – þó hér sé allt fullt af taílenskum stöðum).
Og því ákváðum við fyrir nokkrum vikum að loka. Serrano gengur gríðarlega vel og þar eru spennandi hlutir að gerast – bæði heima og hérna í Svíþjóð. Það var raunar orðið svo að vinnslueldhús Serrano var búið að sprengja utanaf sér allt pláss og mun því plássið, sem áður var undir Síam, koma sér vel. Þetta ár á Serrano hefur verið það besta í sögu fyrirtækisins og við slógum sölumet í ágúst og aftur í september.
Síam hefur tekið upp mikinn tíma hjá okkur og okkur þótti vænt um staðinn og matinn. En á endanum var það ekki nóg og staðurinn mun loka 9.nóvember. Við eigum þó ennþá uppskriftirnar og reynsluna, þannig að kannski munum við opna staðinn aftur við tækifæri á öðrum stað.
Síðustu dagar
Síðustu vikur hafa verið nokkuð annasamar. Það er mikið í gangi varðandi Serrano hérna í Svíþjóð og auk þess höfum við Margrét verið með gesti.
Mamma Margrétar og litli bróðir eru nýfarin heim til Íslands. Eiginlega um leið og það gerðist uppgötvaði Margrét að í íbúðinni voru einhverjir maurar byrjaðir að éta sig í gegnum fötin hennar. Ég kippti mér ekkert sérstaklega upp við það enda á hún nóg af fötum, en það endaði þó þannig að við eyddum megninu af gærdeginum heima, hreinsandi öll föt útúr skápum, ryksugandi íbúðina og annað skemmtilegt.
Heimsókn mömmu og bróður Margrétar var skemmtileg. Jón Jökull litli bróðir Margrétar kom hingað fullur sjálfstraust og lét einsog það væri ekkert sjálfsagðara en að segjast styðja Manchester United inná mínu heimili. Ég lét auðvitað ekki bjóða mér það og við tók sjö daga æfingabúðir, þar sem honum var gerð grein fyrir því að Liverpool sé besta lið í heimi. Hann fékk til að mynda ekki að spila Fifa nema með því að lofa því að velja aldrei Manchester United.
Ekki versnaði málstaður minn við það að ég fór ásamt honum og Villa á O’Learys þar sem við sáum Liverpool niðurlægja United. Eftir nokkra vikna leiðindi var þetta ótrúlega kærkominn sigur.
* * *
Við túristuðumst aðeins með þeim um Stokkhólm. Margrét hafði þó aðeins meiri tíma þannig að ég var eitthvað minna með þeim. Á laugardaginn löbbuðum við um Gamla Stan og miðbæinn, fengum kaffi í Kulturhuset og fleira. Um kvöldið fórum við svo á tónleika með Muse í Hovet.
Það eru sex ár síðan að ég og Friðrik sáum Muse í Laugardalshöllinni. Það voru frábærir tónleikar. Tónleikarnir í Hovet voru líka góðir. Muse er ekki í alveg jafn miklu uppáhaldi hjá mér núna og þeir voru þá, en þeir eru samt fínt tónleikaband. Þeir tóku nokkur gömul lög og svo 5-6 lög af nýju plötunni.
Mörður Árnason · Ráða skattinum sjálfir
Mörður Árnason · Ráða skattinum sjálfir. Mörður Árna um furðulegar tillögur SA (og ASÍ) um að hækka tryggingargjald í stað þess að leggja á orkuskatt.
Liverpool Bloggið » Liverpool 2 – manchester united 0
Liverpool Bloggið » Liverpool 2 – manchester united 0. – Liverpool vann Manchester United í gær. 2-0 á Anfield. Ég öskraði og dansaði þegar að mörkin voru skoruð. Og svo skrifaði ég leikskýrslu á Liverpool bloggið.
Apple uppfærir iMac
Apple – iMac – The ultimate all-in-one desktop computer.. – Apple uppfærði í dag desktop línuna sína með nýjum Mac Mini og ótrúlega fallegum nýjum iMac tölvum, sem innihalda m.a. alveg endurhannaða mús. Þessi mús lítur ótrúlega vel út.
Ástarbréf og Reykjavíkurbréf – vthorsteinsson.blog.is
Ástarbréf og Reykjavíkurbréf – vthorsteinsson.blog.is. – Vilhjálmur Þorsteinsson skrifar um magnað Reykjavíkurbréf og endurhverf viðskipti Seðlabankans. Góð grein.