Ég á Mæspeis

Af því að ég er svo hipp og kúl og móðins og allt það, þá setti ég upp [Myspace](http://www.myspace.com/einaro) síðu einhvern tímann síðasta sumar. Eyddi um hálftíma í það verkefni, fattaði ekki hvað var svona spennó við þetta og gafst upp.

Þangað til að í síðustu viku hafði ég ekkert að gera og ákvað að setja eitthvað inná þessa blessuðu síðu. Þannig að hún núna uppfærð og þú getur m.a. hlustað á uppáhaldslagið mitt í dag á prófílnum mínum.

Ógisslega spennó, ekki satt?

Allir aðrir sem ég skoða eiga svona 3-400 vini. Ég á hins vegar 13, sem er ekkert sérstaklega merkilegur árangur. Ég stefni kannski ekki alveg á 300, þar sem ég held að ég geti ekki munað fleiri nöfn en svona 50.

En allavegna, hér eftir verð ég þekktur sem [Myspace.com/**einaro**](http://www.myspace.com/einaro). Mun ég því ekki svara öðrum nöfnum.

10 thoughts on “Ég á Mæspeis”

  1. Gastu ómögulega fundið betri mynd af sjálfum þér? Hvernig ætlastu til að MySpace-hórurnar þarna úti reyni við þig ef þú lítur út eins og sófi með höfuð? :laugh:

  2. Þetta er allt annað.

    Og það að kalla mig tískulöggu er álíka mikið misnefni og að kalla þig FH-ing. En þegar menn líta út eins og sófi á myndum getur jafnvel ólíklegustu mönnum blöskrað … 😉

  3. Slefandi, gjörsamlega! Ef þú verður ekki búinn að fá friend-add frá enskri stelpu sem þú þekkir ekkert fyrir helgina skal ég hundur heita!

  4. Ég er ekki með MySpace-síðu. Prófaði af forvitni í sumar, komst að því að þessar síður bjóða ekki upp á nokkurn skapaðan hlut nema þú sért í hljómsveit, og lokaði henni því aftur. 🙂

  5. Þú ert svo æstur. Hvernig vogarðu þér að svara af slíkum hroka og með slíkum persónulegum árásum, bara af því að ég er ósammála þér? :laugh:

  6. Þú ert alltaf svo neikvæður og leiðinlegur. ÓÞOLANDI!!

    Farðu bara og stofnaðu þitt eigið blogg um Mæspeis ef þú getur ekki haldið þig á mottunni!

    🙂

Comments are closed.