Ég verð að eignast nýjan síma!

Fokk, mig er farið að langa í nýjan síma!

Ég hef með ágætu móti getað bælt þessa stanslausu löngun mína í ný tæki í smá tíma. Keypti mér [svona síma](http://www.mobile-review.com/review/samsung-e700-en.shtml) fyrir 16 mánuðum af því mér fannst hann svo ógeðslega flottur á þeim tíma. Með einhverjum ráðum hefur mér tekist að eiga þennan síma í 16 mánuði, sem er sko stórkostlegt nýtt met því ég er vanur að týna eða eyðileggja síma á svona 6 mánuða fresti.

Allavegana, ég hef verið nokkurn veginn í rónni þangað til að ég sá auglýsingu fyrir [MotoRazr](http://direct.motorola.com/ens/web_producthome.asp?Country=USA&language=ENS&productid=29302). Hólí fokk, hvað það er flottur sími. Finn hjá mér alveg óstjórnandi þörf fyrir því að eignast svona síma núna strax. Er fullviss um að líf mitt verði innihaldsríkara bara ef ég kaupi mér svona síma.

Ég var reyndar búinn að sjá þetta fyrir. Fyrir svona tveim vikum (áður en ég sá auglýsinguna, nota bene), þá missti ég símann minn í gólfið inní vinnu. Hann smallaðist í nokkra bita, en mér tókst að setja hann saman aftur. Það virkaði ágætlega fyrstu vikuna, en núna er einsog síminn minn sé með fokking holdsveiki. Hinir ýmsu hlutir detta af honum í tíma og ótíma. Í dag datt tildæmis volume takkinn af og núna get ég ekki stjórnað því hversu hátt fólk talar í símann við mig, heldur verð ég actually að biðja fólk um að tala hærra eða lægra. Sem er ekki gott.

En það myndi allt lagast með þessum [nýja síma](http://direct.motorola.com/ens/web_producthome.asp?Country=USA&language=ENS&productid=29302). Hann er svo flottur að ég verð beinlínis að fá fólk til að hringja í mig með reglulegu millibili á laugardagskvöldum, svo ég get tekið hann upp og talað í hann á Oliver, Hverfis eða hvaða stað sem ég verð á. Ég er viss um að stelpurnar eiga eftir að fríka út þegar þær sjá mig tala í þennan síma. Þar sem ég keyri um á þriggja ára gamalli Almeru, þá get ég ekki sjarmerað stelpur með flottum bíl. En ég á þá allavegana flottan síma.

Jamm, líf mitt verður skemmtilegra, fjölbreyttara og meira spennandi ef ég kaupi þennan síma.

Eða hvað? Er þetta kannski drasl sími? Talar einhver af reynslu?

11 thoughts on “Ég verð að eignast nýjan síma!”

  1. Razorinn er geðveikur sími… en motorola og OS X er ekki besta hjónaband í heimi.

    SonyEricsson og OS X er hið fullkomna hjónaband.

  2. Hvað meinarðu með OSX? Er það eitthvað, sem ég myndi geta nýtt mér? Ég hef eiginlega bara áhuga á að geta tekið myndir inná Makkann í gegnum Bluetooth og væntanlega sett lög inná símann (er ekki annars einhver MP3 fídus á honum)?

    Sony Ericsson á enga almennilega flotta clamshell síma. Ég vil clamshell, annars get ég ekki þóst vera Jack Bauer!

  3. Já vó, allar flottu stelpurnar eiga sko alveg eftir að falla fyrir þér ef þú færð þér þennan síma!! Eftir hverju ertu að bíða maður?? (hey þú hefur samband við mig er þaggi þegar þú ert búinn að kaup’ann? *glott*)

    En btw þá hef ég ekki heyrt margt gott um Motorola… vinkona mín átti einhvern þannig síma og hún reyndi í gríð og erg að reyna að láta hann skemmast svo hún hefði afsökun til að kaupa sér nýjan… :laugh:

  4. ohhh ég skil þig svo vel, það er best í heimi að kaupa sér tæki!!!
    en hey hvernig ertu að fíla samsung? ég elska minn nema hvað það er svo mikið af hljóðum í honum sem er ekki hægt að slökkva á nema bara hafa hann á silent.. eins og td þegar maður sendir sms… eða eyðir smsi þá heyrist hljóð…

  5. “Ég vil clamshell, annars get ég ekki þóst vera Jack Bauer!”

    Já, þú verður þá líka að redda þér svona rafhlöðu eins og Jack notar. Einhverja sem þarf aldrei að hlaða, sama hversu mikið þú talar!

  6. Katrín: Ég hef fílað samsung nokkuð vel. Aðallega vegna þess að hann er fyrsti “clamshell” síminni minn. Finnst vanta broskalla í SMS og hljóðin eru frekar pirrandi, en annars er bara flestallt nokkuð gott. Allavegana þar til að ég missti hann.

    Sigga: Ég sá þessa línu, en sá engan sérstakan “clamshell” síma.

    Og Hagnaður. Ég hef það á tilfinningunni að Jack finni það á sér þegar þessir 24 stunda dagar eru að byrja, svo hann undirbýr sig geðveikt vel. Sefur í nokkra daga, hleður símann, setur bensín á bílinn og svo framvegis. Svo er hann 100% reddí þegar klukkan byrjar að tifa.

  7. híhíhíhíhí ég var að fá svona síma í afmælisgjöf síðustu helgi og ég er sko algjör pæja með hann!! hann er svakalega flottur :biggrin2: :biggrin2:

  8. Hann hlýtur líka að drekka slatta og borða mikið af salti til þess að hann geti farið í gegnum allan daginn án þess að þurfa nokkurn tímann að drekka né að fara á klósettið.

Comments are closed.