Ferð til Barca og Liverpool

Ég fór í stutta ferð til Barcelona og Liverpool í síðustu viku. Upphaflega tilefnið var boð Chupa Chups, sem er fyrirtæki sem ég sé um að markaðssetja vörur fyrir hér á Íslandi. Árið 2005 var metár í sölu á Chupa og Smint á Íslandi og í tilefni þess var mér ásamt tveim öðrum frá fyrirtækinu mínu boðið í ferð til Barcelona.

Við eyddum þriðjudeginum í Barcelona á fundum og í ferðum um verksmiðjur í nágrenni borgarinnar. Aðalmálið var þó leikur Barcelona og Chelsea á þriðjudagskvöldinu.

Hótelið okkar var um hálftíma labb frá Nou Camp og lögðum við því af stað tveim tímum fyrir leik og löbbuðum að vellinum, stoppandi í bjór á leiðinni. Um klukkutíma fyrir leik var ég svo kominn að vellinum. Ég hef farið 3-4 sinnum á Nou Camp, en þá alltaf á leiki í spænsku deildinni. Ég var verulega spenntur fyrir Chelsea leiknum, þar sem það var greinilegt að fólk í Barcelona er verulega illa við Jose Mourinho og Chelsea liðið. Leigubílstjórinn, sem keyrði okkur af flugvellinum, kallaði hann t.d. hálfvita og flestir í borginni virtust sammála því áliti.

Um hálftíma fyrir leik var ég kominn í sætið mitt og horfði á upphitunina. Mourinho kom aðeins inná völlinn og var púað duglega á hann. Stuttu fyrir leik settu svo einhverjir snillingar upp borða þar sem á stóð: **Mourinho = Túlkur**. Mjög fyndið.

* * *

Leikurinn var fínn. Barcelona liðið virtist vera frekar rólegt. Chelsea sóttu aldrei almennilega á þá, og því hafði maður á tilfinningunni að leikmenn Barcelona væru aldrei að reyna neitt sérstaklega á sig. Þeir sýndu þó á tíðum frábær tilþrif og þá sérstaklega Ronaldinho, sem er einfaldlega besti leikmaður, sem ég hef séð spila fótbolta.

Stemningin á leiknum var góð. Dálítið öðruvísi en maður er vanur frá Englandi. Stuðningsmenn Barca syngja aðeins eitt lag ítrekað. Það lag er hins vegar á katalónsku, þannig að ég skildi ekki orð en gat alltaf hrópað “Barca, Barca, Baaaaarca!” í enda þess. Þegar að 98.000 mannns taka sig til og hrópa *Barca* saman, þá er það ótrúlegt því Nou Camp er frábær völlur.

Ronaldinho skoraði svo auðvitað frábært mark og stuttu seinna birtu nokkrir aðdáendur eftirfarandi borða: **Mourinho, túlkaðu þetta: “Adios Europa”!”**

Chelsea fékk svo auðvitað ódýra vítaspyrnu í lokin, en það breytti engu nema að það gaf Mourinho einhverjar gerviástæður til að monta sig. En eftir allt saman, frábær leikur og yndislegt að sjá Barca taka Chelsea í kennslustund.

* * *

Á miðvikudeginum fók ég svo flug beint til Liverpool. Úr 15 stiga hita og sól yfir í 5 stiga hita og típíska enska rigningu. Ég var eitthvað þreyttur og fór því bara beint inná [skrýtnasta hótel í heimi](http://www.britanniahotels.com/hotel_home.asp?Page=45). Hótelið var svo magnað að í herberginu mínu (sem var btw ekki ódýrt) var engin sturta, heldur aðeins baðkar. Verulega frumlegt.

Þegar að nær dró leik kom ég mér að Anfield og fór í biðröð til að komast inná *The Park* barinn. Það gekk eitthvað erfiðlega, en að lokum komst ég inn. Stemingin þar inni var auðvitað frábær. Staðurinn stappaður og allir syngjandi. Ég var þar inni í einhvern tíma, en fattaði svo að ég hafði gleymt gleraugunum uppá hóteli, svo ég þurfti að fara tilbaka og ná í þau.

Á Anfield var ég með sæti í Lower Centenary, við markið sem Liverpool sótti á í fyrri hálfleik. Það vita auðvitað allir hvernig leikurinn fór. Liverpool klúðraði sirka grilljón færum og eftir smá tíma var maður orðinn vonlítill á því að Liverpool myndi skora.

Stemningin var þó ótrúlega mögnuð. Stuðningsmenn Liverpool sungu allan tímann og studdu við sitt lið, þrátt fyrir að liðið væri að tapa. Þegar að Benfica skoraði annað markið og Liverpool á leið útúr keppninni hrópuðu stuðningsmennirnir nafn Rafa Benitez og sungu svo *You’ll Never Walk Alone*. Einsog ensku blöðin bentu á daginn eftir, þá er hvergi hægt að finna slíka aðdáendur, sem að styðja liðið og þjálfarann jafn ákaft á erfiðum stundum. Stuðningsmenn Liverpool *eru* bestu stuðningsmenn í heimi. Ég var sannfærður um það eftir Istanbúl og þessi leikur styrkti mig í þeirri trú.

* * *

En það var fúlt að sjá Liverpool tapa og detta útúr Evrópukeppninni. En maður getur ekki bókað eintóma gleði í svona fótboltaferðum og því verður maður víst að sætta sig við vonbrigðin. En allavegana, núna krefst ég þess að Barcelona *rústi* Benfica í næstu umferð Meistaradeildarinnar.

12 thoughts on “Ferð til Barca og Liverpool”

  1. Minnimáttarkenndin heldur áfram 😉

    Taka Chelsea í kennslustund? Verður lið ekki a.m.k. að vinna leik til að geta kallað það kennslustund?

  2. Æ, Britannia Adelphi er orðið frekar gamalt og slappt hótel, það þarf virkilega á endurbótum að halda.

    Í síðustu ferðum mínum til Liverpool hef ég venjulega gist á Premier Travel Inn í City Centre. Ekki dýrt og virkilega þægilegt hótel. Og mjög vel staðsett.

  3. Flott ferðasaga hjá þér. Þetta hefði að sjálfsögðu átt að vera algjör draumaferð, en Benfica tókst að eyðileggja það. Samt flott ferð að öllu öðru leyti. 🙂

  4. Nú veit ég ekki, prófaðu að spyrja sjálfan þig að því?

  5. Kræst!

    Þvílík röklist.

    Ok, ég er búinn að spyrja mig oft, en fæ ekkert svar. Ég finn einfaldlega enga minnimáttarkennd.

  6. Einar, ég held að Chelsea-maðurinn Nonni gæti verið fyrsta opinbera tröllið okkar. Hann virðist allavega ekki hafa áhuga á neinu öðru en því sem gæti mögulega pirrað okkur Liverpool-menn.

    Það er því verst fyrir hann að maður skuli halda með Barcelona líka. 🙂

  7. Hvað viltu að ég segi Einar? Að mínu mati ertu með minnimáttarkennd gagnvart Chelsea því þú talar mjög mikið um þá og oftast í neikvæðum tón. Hvernig í ósköpunum á ég að útskýra minnimáttarkennd (mitt mat mundu) þína, þú hlýtur að vita það best sjálfur? Einfaldlega þess vegna bað ég þig að spyrja sjálfan þig að því.

    Kristjáni ætla ég ekki að svara hér, enda ekki síðan hans.

  8. Ég var á *Chelsea leik*. Hvernig átti ég að forðast það að tala um þá?

    Hvað með þig? Ert þú ekki með minnimáttarkennd gagnvart Liverpool? Hangandi inná bloggsíðum tileinkuðum því liði, kommentandi í hvert skipti þegar einhver talar um þitt lið. Breytir umræðunni í ferðasögu yfir í eitthvað Chelsea röfl. Ekki ven ég komu mína á Chelsea síður.

    Ertu svona inná öllum síðum, eða bara síðum tengdum Liverpool?

    En já, Kristján, ég veit – maður á ekki að gefa [tröllunum að borða](http://en.wikipedia.org/wiki/Internet_troll). Spurning um að sleppa því að svara Nonna, þar sem þetta er nú ekki “síðan hans”.

  9. Ókei, snúðu bara út úr Einar.

    Þú veist vel að þú talar ótt og títt um Chelsea og einsog ég sagði, mjög oft í neikvæðum tón. Það er það sem ég kalla minnimáttarkennd.

    Ef þú vilt kalla mig tröll, þá þú um það.

Comments are closed.