Framkvæmdir hefjast

Á þessari ágætu mynd, sem var tekin í gær í Vallingby, úthverfi Stokkhólms má sjá byrjunina á framkvæmdum við fyrsta Serrano staðinn hérna í Svíþjóð.

Við erum semsagt að deila stað með Subway. Við erum á lestarstöðinn í Vallingby, sem er við innganginn í [Vallingby City](http://www.vallingbycity.se/), sem er stór verslunarmiðstöð. Á myndinni er verið að smíða vegg á milli staðanna, sem á að vera á meðan að á framkvæmdum við Serrano staðinn stendur. Við erum búin að flytja út heilan gám af dóti frá Íslandi, þar á meðal sérsmíðað afgreiðsluborð, parket og fleira – sem var hagstæðara að kaupa á Íslandi vegna gengismála. Sjá fleiri myndir frá bygingu staðarins hér. Ég mun uppfæra þetta albúm eftir því sem meira gerist.

Ég er búinn að vera hérna í Stokkhólmi síðan á fimmtudaginn og það er búið að vera mikið að gera. Við ákváðum fyrir um tveim vikum að fresta opnuninni aftur til 15.janúar til að gefa okkur betri tíma í að klára marga hluti sem þarf að huga að. Hins vegar eru framkvæmdirnar við staðinn hafnar og þeim á að ljúka um miðjan desember. Eftir það þá höfum við ágætis tíma til að klára mál tengd heilbrigðisyfirvöldum (sem eru talsvert strangari en heima á Íslandi), prufukeyra staðinn og þjálfa starfsfólk.

* * *

Almennt séð eru Svíar mjög jákvæðir gagnvart Serrano. Hvort sem það er í bönkunum, auglýsingastofum eða birgjum þá líst mönnum vel á hugmyndina og fólk hefur trú á þessu. Þá virðist engu máli skipta að hugmyndin sé íslensk. Það verður að teljast jákvætt.

Ég hef það annars bara ansi gott fyrir utan það að kærastan mín er heima á Íslandi. Ég er búinn að koma mér ágætlega fyrir hérna í íbúðinni og mér finnst ég þekkja næsta nágrenni ágætlega. Ég bý í íbúð á Södermalm í mjög skemmtilegu hverfi og er íbúðin umkringd börum og alls kyns veitingastöðum, sem ég mun sennilega seint ná að prófa alla.

9 thoughts on “Framkvæmdir hefjast”

  1. Fór á Serrano í kringluni í gær og verð bara að segja að þetta var bara fjandi fín máltið sem við fjöldkyldan fengum þar Takk fyriri og gangi ykkur bara allt hið besta með þetta í Svíþjóð…

  2. Hvernig er það Einar, þar sem þú ert að hefja inreið Serrano á erlenda markaði er þá hægt að fara að kalla þig ÚTRÁRAR VÍKING.

  3. Humm, það er spurning. Fólk getur víst kallað mig það sem það vill. En ætli við á Serrano séum ekki of rólegir í áætlunum og lántökum til að geta staðið undir þessari nafnbót.

Comments are closed.