Kastljósið

[Kastljósþátturinn í kvöld](http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301727) er með fyndnara sjónvarspefni, sem ég hef horft á á Rúv lengi. Þvílík snilld!

Þetta minnti dálítið á það þegar að Steve Carrell og Steven Colbert duttu í það í Daily Show þætti, sem ég horfði á þegar ég var útí háskóla. Ég held að ég hafi sjaldan hlegið jafnmikið og yfir því myndbroti. Verst að ég finn ekki það myndskeið á YouTube. Ef einhver getur fundið það myndskeið þá býð ég viðkomandi í brúðkaupið mitt

5 thoughts on “Kastljósið”

  1. Jamm, Marý – þetta er skrýtið að þeir skuli ekki hafa þessa klippu, sem er að mínu mati það fyndnasta sem þeir gerðu (allavegana í minningunni) og svo er búið að eyða öllum útgáfunum útaf YouTube, en það er það fyrsta sem maður fær þegar maður leitar á Google.

  2. Þetta var hress Kastljós-þáttur. Þegar Andri var búin þá fór einhver maður að setja ljósaperu og geisladiska í örbylgjuofn.
    Magnað.

Comments are closed.