Litli staðurinn okkar þriggja ára

Það er nánast lygilegt að hugsa til þess, en Serrano, litla barnið okkar Emils er orðinn þriggja ára gamall.

Fengum kort frá öllu starfsfólkinu í gær, sem mér þótti geðveikt vænt um. Annars var lítið gert í tilefni afmælisins. Við ætluðum að breyta alveg fullt af hlutum á staðnum, en sökum gríðarlegar þenslu á atvinnumarkaðinum, þá hafa starfsmannamál ekki reynst jafn auðveld og við hefðum óskað.

En breytingarnar munu koma, vonandi aðeins seinna í þessum mánuði. Ég mun kynna þær á þessari síðu, so stay tuned!

Stórt afmælispartý verður líka að bíða, þar sem að Emil er farinn til útlanda og verður úti í mánuð. Ég ætla því bara að halda lítið starfsmannapartý heima hjá mér á laugardaginn. Ég hef ekki djammað á Íslandi í margar, margar vikur, þannig að það verður ábyggilega gaman.

Annars, þá er hérna fyrir þá sem ekki sáu hana í fyrra, Saga Serrano. Í þeirri grein rek ég það hvernig Serrano varð til. Skrifaði söguna fyrir tveggja ára afmælið okkar.

En allavegana, til hamingju með afmælið. Öll þið, sem verslið við okkur reglulega: Takk!

5 thoughts on “Litli staðurinn okkar þriggja ára”

  1. Ég er fastagestur utan að landi og bið ævinlega einhvern að kaupa fyrir mig Serrano ef að ég veit af ferð í bæinn. Ég væri samt alveg til í að sækja um vinnu hjá ykkur þó ekki væri nema einn dag til að ná “el secreto de la salsa pico de gallo” . Ég er búin að reyna margar leiðir til að ná þessu bragði, en var komin á þá skoðun að hráefnið sem að vantaði til að fá þetta rétta bragð, væri einfaldlega ekki til á Íslandi 😉 :biggrin: En nú veit ég betur og það er að gera mig vitlausa að finna ekki út hvað það er sem að vantar
    😡
    En allavegana, var að renna niður ljúfum Burrito con pollo og þið eruð án efa bestir á landinu og ég mun seint þreytast á að “bera út fagnaðarerindið” 😉 :biggrin2:

  2. Hæ heyrðu, ekki getur verið að þú vitir um glósur út How To Be Good??
    Mig bráðvantar þær nefninlega… eða ef þú getur bent mér á e-a síðu

    Kv. Herdís Sif =)

  3. Stína: Takk kærlega 🙂 Pico de gallo er mjög einfalt, sko.

    Herdís: Nei, því miður. Prófaðu að leita á Google að t.d. “how to be good” “cliff notes” “nick hornby”

Comments are closed.