Mayaaaa hiiii

Ok, ég er búinn að opna fyrir kommentin. Ef þessir kanadísku SPAM bjánar halda þessu áfram, þá verður bara að hafa það.

Síðan fór yfir 100.000 flettingar í gær. Ég setti upp teljarann fyrir um 6 mánuðum, þannig að það er nokkuð gott. Þetta eru að meðaltali um 550 flettingar á dag og um 350 einstakar heimsóknir. [Liverpool bloggið](https://www.eoe.is/liverpool/) er þó talsvert vinsælla, enda ætti efni þeirrar síðu að höfða til breiðari hóps. Held þó að sú síða eigi mikið inni.


Ég var ýkt heilbrigður í gærkvöldi og vann allt kvöldið við verkefni, sem ég hef tekið að mér. Hver voru svo laun þessarar samviskusemi? Jú, ég vaknaði í morgun eins skakkur og hægt er að vera. Vaknaði með hræðilegt kvef, hausverk og verk í bakinu. Held að ég neyðist til að viðurkenna að ég sé orðinn veikur.

Talandi um bakið á mér, þá hlýtur Tempur dýnan, sem ég keypti fyrir einhverjum mánuðum að teljast versta fjárfesting ævi minnar. Áður var ég með einhverja drasl dýnu frá Bandaríkjunum og fékk öðru hvoru í bakið þegar ég vaknaði. Ég hafði heillast af einhverju auglýsingum um að þessi Tempur dýna ætti að vera lausnin á öllum mínum vandamálum (fyrirtækið, sem selur dýnuna heitir m.a.s. Betra Bak). En þessi dýna er algjör hörmung. Í hvert einasta skipti, sem ég sef út, vakna ég með bakverk.

Ég er sennilega búinn að eiga dýnuna alltof lengi til að getað skilað henni, þannig að ég veit ekki hvort ég eigi bara að reyna að hætta að sofa út, eða hvort ég eigi að kaupa mér nýja. Ég tími bara ekki að eyða meiri pening í eitthvað dót tengt íbúðinni minni.


Keypti DV áðan og sá mér til mikillar skelfingar að ég komst ekki á lista yfir flottustu piparsveina á Íslandi. Ég trúi þessu varla enn. Ég meina, Pétur Blöndal er á listanum! Það er ekkert réttlæti í þessum heimi.


Þetta er alveg [ljómandi skemmtilegt myndband](http://www.gordinho.cjb.net/). Kom mér allavegana í gott skap. Mayaaa hi, mayah hú maya hí maya ha ha.

6 thoughts on “Mayaaaa hiiii”

  1. Dýnan er að segja þér með sínum hætti að þú eigir að fara í líkamsrækt á morgnana í stað þess að sofa út 🙂 Skil samt vel að þú sért fúll yfir þessu, þetta eru rándýrar dýnur.

  2. Ég fer í líkamsrækt fimm sinnum í viku auk þess að spila fótbotlta og körfu einu sinni. Ef það er ekki nóg fyrir þessa dýnu, þá getur hún átt sig. 🙂

  3. Það er miklu betra að versla við Svefn og heilsu, bæði held ég að dýnurnar séu betri og svo er þjónustan og allt viðmót ekki einu sinni sambærilegt. Svo er gamla dýnan þín bara hreint ekki svo slæm skal ég segja þér 🙂

  4. Takk fyrir að minna mig á þetta helvítis lag. Ógeðslegasta lag síðasta árs, ég meikaði 8 daga á þessu ári áður en ég var minntur á tilvist þess.

    Hvernig líður kommenta-SPAMminu annars? Hefur það látið sjá sig eftir að þú lokaðir á síðuna í 24klst?

  5. Ég veit ekki hvernig ég á að sofa á þessari dýnu. Ég fæ verk, hvernig sem ég sef. Ég hálfpartinn sé eftir því að hafa selt þér dýnuna, Hildur, hún var miklul skárri 🙂

    Og Kristján, ekkert að þakka.

    Kommentaspamið hefur verið mun minna. Ég hef bara fengið eitt (sem var, ef marka má titilinn, yfir á þýska barnaklámssíðu – indælt, ekki satt?) síðasta sólarhringinn.

Comments are closed.