Moggabloggs heilkennið

Mikið er ég sammála því sem Sigurjón [segir](http://blog.sigurjon.com/?p=1732) og Kristján [vitnar í](http://blog.kristjanatli.com/2007/01/04/bloggablogg/#respond)

Moggabloggið verður að teljast sem nýju “Teljara-Ólympíuleikarnir” á netinu. Hellingur af spöðum sem þrá athygli og ást fólksins í landinu hafa hent upp síðum hjá Mogganum og blogga nú um fréttirnar sem þar eru skrifaðar eins og þeir eigi lífið að leysa. Þeir linka á skoðanir hvors annars í von um góð eða slæm viðbrögð, skiptir þá ekki máli bara svo framarlega sem þeir fá fleiri heimsóknir. Sumir síðueigendur hafa meira að segja gengið svo langt að frame-a síðuna sína inn í Moggabloggið svo þeir geti nú fengið aðeins meiri athygli. Þetta er orðið svo vinsælt að Bill O’Reilly þótti það tímabært að koma því á hreint að hann fann upp bloggið.”

Sjáið t.d. [þetta blogg](http://gislifreyr.blog.is/), sem einhver hægrimaður heldur uppi á Moggablogginu (tek þessa síðu sem dæmi þar sem hún var efsta bloggið á mbl.is þegar ég kíkti inn). Þessi aðili vísar á fréttir á MBL.is við hverja bloggfærslu. Í flestum tilfellum hefur efni færslu hans nákvæmlega ekkert með upphaflega frétt að gera og gerir því það eitt gagn að pirra lesendur mbl.is, sem smelltu á þær í góðri trú um að færslurnar bættu einhverju við efni upphaflegrar fréttar.

Sem dæmi, þá eru þetta færslur af forsíðunni og svo þær fréttir sem hann vísar í:

**Frétt**: Verðmætum páfagauk stolið
**Blogg**: Vangaveltur um CSI og aðra lögguþætti

**Frétt**: Eldur kviknaði í Engey en var slökktur með hraði
**Blogg**: Guðmundur Steingrímsson er ömurlegur

**Frétt**: Leki kom að báti í Suðureyrarhöfn
**Blogg**: Kristrún Heimisdóttir er ömurleg

**Frétt**: Vakt hjá Orkuveitunni um jólin
**Blogg**: Hannes Hólmsteinn er skemmtilegur

Hvernig er hægt að skýra þetta með öðru en að margir MBL bloggarar séu með ólíkindum athyglissjúkir. Ég er hættur að nenna að smella á bloggvísanir út frá fréttum, vegna þess að þær enda flestar á vísunum í eitthvað bull. Frekar kýs ég að hafa RSS vísanir hjá mér á þá moggabloggara, sem ég les reglulega. (Gummi Steingríms, Árni M, Ómar Valdimars, Steingrím S, Kratabloggið, Magnús Már, Hux og Sigmar G).

Miklu nær væri fyrir mbl.is að hleypa á vísanir frá öllum vefsíðum í fréttir á mbl.is fréttir (bæði pólitískum vefritum, sem og bloggum utan mbl.is) og leyfa notendum að flagga þá sem eru að misnota þessar vísanir. Mbl.is ættu svo að taka sig til og banna þeim að vísa á fréttir, sem að misnota það ítrekað.

8 thoughts on “Moggabloggs heilkennið”

  1. Alveg sammála þér. Kíki stundum inn á þessi blogg og þar á meðal rambaði ég inná þetta blogg sem þú vísar í. Líkt og þú furðaði ég mig á því að Morgunblaðið skildi setja link inná þessa síðu þar sem hún er alveg skelfileg. Efast um að höfundi þessarar síðu sé nokkur greiði gerður með því að vera gefið tækifæri til þess að upplýsa heimsku sína á jafn vinsælum vef og mbl.is er.

    Vissulega má fólk hafa skoðanir á hlutunum en það er lágmark að virða staðreyndir og fara varlega með alhæfingar um persónur og atburði þegar maður skrifar pistla á opinberum vettvangi.

  2. Vá hvað ég er ekki sammála þér þarna..

    Mér finnst reyndar mjög gaman að fara inná blogg sem ég veit ekkert um.. á meiraðsegja í vandræðum með að finna skemmtileg blogg… hef rekist a nokkur þarna á mbl.is … afhverju er ekki til svona shuffle element í bloggheiminum ?

    Enníveijs … er bara ekki frekar að kíkja á fólkið og stjörnuspánna heldur en að láta: “einhverja hægrimenn” fara í þínar fínustu ?

  3. Majae, þetta hefur ekkert með það að þessi gaur sé hægrimaður. Það fer einfaldlega í taugarnar á mér þegar að menn spam-a fréttir með bloggfærslum um efni, sem tengist ekki fréttunum.

    Hvernig finndist þér að þú værir að lesa frétt á mbl.is um nýjustu hjálpartæki ástarlífsins og þar væri vísun á bloggfærslu, sem fjallaði svo eingöngu um það hversu skemmtileg Ingibjörg Sólrún væri. Væri það sniðugt og skemmtilegt að þínu mati?

    😉

    Það er fínt að fleira fólk skuli vera að blogga. En það á þá að gera það á sínum eigin forsendum. Byrja, láta vini vita af og reyna smám saman að stækka lesendahópinn. Ekki bara byrja, spam-a 20 fréttir á mbl.is og vonast til að ná 1.000 heimsóknum eftir fyrstu vikuna.

    Annars hef ég ekki rekist á skemmtileg ópólitísk blogg á mbl.is – kannski að einhver geti bent mér á þau.

  4. Það eru nokkur virkilega skemmtileg blogg þarna, en mörg alveg skelfileg, Sigmar, Steingrímur Sævarr, Gummi Steingríms koma í hugann. Sigmar er kanski sá ópólitíski og afgerandi fyndnastur.

  5. Sæll Einar

    Er þér algjörlega sammála um að það er óþolandi að sjá það þegar að fólk sem skrifar á moggabloggið er að vísa á frétt og skrifar svo algjörlega um allt annað.

    Ég hef sjálfur bloggað þarna í um hálft ár og finnst þetta lifandi og gott samfélag, hef kynnst þar meira að segja bæði skemmtilegum vinstrimönnum og hægrimönnum sem eru að skrifa þar. Ég er þeirrar gerðar að vilja frekar ræða lifandi um pólitík við þá sem hafa aðrar skoðanir, miklu meira challenge, líf og fjör.

    En semsagt, er sammála þér um þetta og finnst að þeir hjá mbl.is eigi að grípa inn í sé fólk að vísa á fréttir og skrifa um allt annað en útfrá fréttinni. Þetta er gjörsamlega óþolandi, en vonandi hefur þetta minnkað eftir að blog.is setti tengla á skrif um fréttina ofar á síðunni.

    mbk. Stefán Fr.

Comments are closed.