Ný síða

Þá er ég búinn að flytja allar færslurnar og setja upp allt nýja dótið á þessari nýju síðu, www.einarorn.com.

Ég er byrjaður að nota Moveabletype, sem er að mínu mati mun betra kerfi en Blogger. Það býður uppá fullt af eiginleikum, sem ég er að nýta mér og ég á ábyggilega eftir að bæta við fleiru í framtíðinni.

Það er fullt af nýjum fídusum á þessari síðu. Til að byrja með, þá er nú komið kommenta kerfi. Ef þú vilt senda inn ummæli við færslu, þá smellir þú einfaldlega á ummæli fyrir neðan hverja færslu. Í ummælum er meðal annars hægt að nota broskalla.

Allar færslurnar eru nú flokkaðar niður. Flokkarnir eru eftirfarandi: Bækur | Dagbók | English | Ferðalög | Hagfræði | Kvikmyndir | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tækni | Tónleikar | Tónlist | Viðskipti | Íþróttir. Þú getur valið flokkana hér hægra megin. Ég held að þetta sé nokkuð sniðugt kerfi því sumir, sem heimsækja þessa síðu hafa meiri áhuga á stjórnmálapælingum heldur en djammsögum.

Einnig er hér hægra megin nokkuð sniðugur hlutur en það eru gamlar færslur, “Á þessum degi”. Þarna verða færslur frá fyrri árum. Þar, sem ég er búinn að uppfæra síðuna í meira en tvö ár, þá ætti þetta að vera sniðugt.

Einnig er hér til hægri dagatal, þar sem hægt er að sjá færslur frá vissum dögum í hverjum mánuði. Endilega segið mér hvað ykkur finnst. Öll tilmæli eru vel þegin.

7 thoughts on “Ný síða”

  1. Þetta er andskoti grúvi kerfi,
    hvernig væri að hafa bulletin board, fyrir svona spjall?

  2. Flokkur “hagfræði” er, sýnist mér, ekki að virka.

    Mig langar í svona “flokkakerfi” á mitt blogg. Ég hugsa samt að ég myndi ekki ráða við það sjálfur ef það væri svona fjölflokkað, kannski er ég bara gamaldags, en ég kynni best við fjórflokka kerfi (úff, þetta var fimmaur dagsins). :blush:

  3. Já, ég setti inn einhverja gagnrýni á Múrinn og þá fór kerfið bara í fokk og öll hagfræðiskrifin mín lentu í rugli.

    Ég finn lykt af samsæri. 😯

Comments are closed.