Nýjar æfingar, þreyta og Manic Street Preachers

Tvær síðustu vikur hef ég verið að fylgja nýju æfingaplani, sem að er hreinlega að gera út við félagslíf mitt. Planið byggist á því að ég mæti klukkan 7 inní Laugar (sjáiði hvað ég er lúmskur að koma því að hvar ég er staddur ), hleyp þar í sirka klukkutíma, fer svo í vinnuna og er mættur aftur klukkan 12 og lyfti þá lóðum.

Þetta er í fínu lagi…

… nema fyrir þá staðreynd að þegar ég kem heim á daginn úr vinnu, sem er vanalega um 5-6 leytið, þá gjörsamlega slökknar á allri líkamsstarfsemi. Ég á til dæmis í alvarlegum erfiðleikum núna með það eitt að halda augunum opnum. Ég geri mér nú grein fyrir því að fótaæfingar draga úr manni það mikla orku að augnlok hafa ekki einu sinni lengur kraft til að halda sér opnum.

Því hefur áhugi minn á því að gera eitthvað annað á kvöldin en að sofa eða horfa á sjónvarp minnkað umtalsvert. Tvö síðustu kvöld hefur fólk gert heiðarlegar tilraunir til að draga mig af sófanum og útúr húsi. Þær tilraunir hafa mistekist hrapallega. Ég vona þó að fólk hætti ekki að reyna, þetta getur varla haldið svona áfram.

Opinbert takmark þessa átaks er að líta út einsog forsíðumódel á Men’s Fitness blaði. Ef það tekst ekki með þessu prógrammi, þá tekst það aldrei.

* * *

Þessi landsleikur er svo ekki beinlínis að blása í mig krafti.

Það sama má segja um þetta veður.

* * *

Hins vegar er nýja Manic Street Preachers platan afskaplega hressandi. Til að sýna hversu ömurlegur Manics aðdáandi ég er, þá vissi ég ekki einu sinni að þeir væru komnir með nýja plötu fyrr en ég las þessa færslu hjá Palla. Allavegana, á nýju plötunni þá syngja þeir m.a.s. með NÍNU minni, sem er uppáhaldssöngkonan mín! Pæliði í því (sjá myndband á Yotube með því lagi)! Fyrsta lagið á plötunni er líka skuggalega svalt!

Manic Street Preachers hafa lengi verið ein af mínum uppáhaldssveitum. Ein platan þeirra inniheldur til að mynda fullkomnustu byrjun í rokksögunni (að mínu mati auðvitað), en það er This is My truth, tell me Yours, sem byrjar á The Everlasting, sem ég hef alltaf tengt ákveðnum sambandsslitum í mínu lífi og svo If you tolerate this, then your children will be next, en ég efast um að ég hafi hlustað á mörg lög oftar á ævinni.

Og víst ég er farinn að Youtube-ast með Manic Street Preachers, þá er hérna mynband með þeirra besta lagi, Motorcycle Emptiness.

Frábær hljómsveit!

6 thoughts on “Nýjar æfingar, þreyta og Manic Street Preachers”

  1. Ja varðandi þreytuna, þá er það alger óþarfi þó að þú æfir mikið:-) Mér finnst líklegt að þig vandi einhver vítamín, borðir of einhæft, vantir prótín, holl kolvetni eða kannski bara sambland af öllu:-) Allavegna, þá eiga æfingar nánast í öllum tilvikum að gera mann orku meiri, nema já að það vanti betri næringu…

  2. Já, Ásgeir – ég er nú að borða slatta og verulega hollt þessa dagana. Held að þetta sé bara smá sjokk þar sem ég er að vakna talsvert fyrr en vanalega og er að keyra þetta svona upp. Ef ég verð svona eftir 1-2 vikur þá fer ég að hafa áhyggjur. 🙂

  3. Sammála þér með MSP… This is my truth, tell me yours er frábær plata. Ein af þessum sem maður setur í og hlustar svo… ekkert vesen að skipta yfir leiðinleg lög. Spilaði hana endalaust á sínum tíma en það fór ekki verr en svo að hún er ennþá í uppáhaldi.

    Nett lagið með þeim og Nínu þinni, hún er tútta. Motorcycle emptyness – í tilefni rigningarinnar í Rvk? 😉

  4. Hahahaha… 😀
    Fór “óvart” aftur á síðuna þína og varð auðvitað að kommenta á þetta. Núna lítur út fyrir að ég sé að stalka þig! Ó mæ!
    En það væri nú alveg hægt að sálgreina þetta blogg (í stíl við hitt)…og þá er ég ekki að meina hvar þú ert staddur og klukkan hvað. En ég held að ég sleppi því. Þekki þig heldur ekkert svo að mér gæti alveg skjátlast. Ætla heldur ekki að móðga þig aftur. Það hlýtur líka að taka á að ranghvolfa svona í sér augunum þegar augnlokin eru svona þung 😉

    Annars elska ég þetta veður. Ekta íslenskt sumarveður 🙂

    Fíla ekki Manic Street Preachers. Eina sem ég veit um um þessa hljómsveit er að trommarinn (minnir mig) fór út í búð að kaupa sígarettupakka og kom aldrei aftur. Finnst það alveg magnað.

    En vertu kátur. Henry kannski að koma í Liverpool – það hlýtur að vera gaman 🙂

  5. Mundu að mennirnir á forsíðu Men’s Fitness eru allir fótósjoppaðir eins og þeir leggja sig. Flestir eru þeir með bjórvömp og brjóst. Farðu varlega þegar þú óskar þér…

  6. Já, sammála Fanney – ég get enn hlustað á “This is my truth”.

    Jóhanna, það hafa margir reynt að sálgreina mig út frá þessari síðu og þá sérstaklega í tengslum við hitt kynið. Sumir hafa fengið rétta mynd af mér, aðrir ekki. 🙂

    Og Inam, þakka þér fyrir ábendinguna. 🙂

Comments are closed.