Sjokk! (uppfært)

Bíddu, var vinur Davíðs ráðinn í [embættið](http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1104728)?

Ég er í sjokki! Sjokki, segi ég og skrifa. 🙂


**Uppfært kl 19.00**: Það kemur mér ekkert á óvart í þessum málum lengur.

Ekki það að Jón Steinar sé ekki ágætis kall. Ég er ansi oft sammála honum og ég hef fulla trú á að hann verði mjög góður þarna inni. Fyrst og fremst vegna þess að hann er frjálslyndur bæði í efnahagsmálum, og einnig held ég að hann sé ekki mjög íhaldssamur í siðferðismálum (hann er að ég held mjög á móti því að ríkið geri t.a.m. uppá milli samkynhneigðra og annarra hópa. Þess vegna held ég að hann sé góður þarna í Hæstarétti).

Eeeen, er það ekki fyndið að síðast þegar Hæstiréttur bað um mann með lögmannsreynslu, þá hlustaði ríkisstjórnin ekki á Hæstarétt, vegna þess að þeirra maður á þeim tíma stóðst hinum umsækjendunum ekki samanburð. Í stað þess fann ríkisstjórnin upp eitthvað bull um að það þyrfti mann með mikla reynslu af Evrópumálum. Skemmtileg tilviljun að frændi Davíðs var akkúrat sérfræðingur í þeim.

Núna hins vegar er óskin um lögmannsreynslu dregin upp og Jón Steinar skipaður á þeim forsendum (önnur skemmtileg tilviljun, eða hvað?). Þetta er náttúrulega eins líkt bananalýðveldi og hægt verður að komast.

Hin svokallaða “Þrískipting valds á Íslandi” er orðin einn alsherjar brandari. Íhaldið ræður öllu.

5 thoughts on “Sjokk! (uppfært)”

  1. Til hamingju með hæfasta manninn Einar minn 😀
    Betri mann er vart hægt að finna.

  2. fyrst var það náfrændinn, nú besti vinurinn…
    verður hannes hólmsteinn kanski orðinn sendiherra áður en herr davíð hættir??? :confused:

Comments are closed.