Suð-Austur Asíuferð 16: Ert þetta þú, Bangkok?

Ég er kominn aftur til Bangkok. 8 vikum eftir að þessi blessaða ferð hófst, [8 vikum](https://www.eoe.is/gamalt/2006/09/16/11.33.23/) eftir að ég flaug frá London til Bangkok og tékkaði mig inná gistiheimili á Khao San Road í Bangkok. Ég er kominn aftur og borgin er gjörbreytt.

Reyndar er margt eins. Tælendingar eru enn í gulu til að fagna kónginum, það hefur ekkert breyst þrátt fyrir nýja ríkisstjórn. En borgin er svo gjörólík þeirri borg, sem ég heimsótti fyrir 8 vikum að það er eiginlega ekki fyndið. Munurinn stafar af því að síðast var ég á Khao San Road, sem er bakpokaferðalangastaður í gamla hluta borgarinnar, nálægt öllum gömlu hofunum. Núna er ég hins vegar á Siam Square, sem er hin nýja Bangkok, líkist meira Tokyo (af þeim myndum, sem ég hef séð) en gömlu Bangkok. Hérna er allt fullt af flottum verslunum, sætum stelpum með fulltaf innkaupapokum og ógrynni af bandarískum skyndibitakeðjum, sem gera sitt besta til að láta Tælendinga verða feita eftir hundruðir ára þar sem þeir hafa verið grannir á sínu eigin fæði (þessu til sönnunar má benda á að KFC býður hérna uppá franskar kartöflur, sem maður dýfir fyrst í ostasósu og svo oní kryddaðar og sykraðar rice krispies flögur!!!).

Ég verð þó að viðurkenna veikleika minn fyrir vestrænum þægindum. Eftir að hafa eytt 8 vikum í löndum þar enginn McDonald’s (gasp!) er og lítið um loftkælingu og slíkt dúllerí, þá finnst mér æðislegt að koma aftur í skyndibitamenningu, loftkældar verslanamiðstöðvar og loftkæld bíóhús. Vesturlandabúinn í mér sprettur upp við þessi tilefni. Ég elska að ferðast um framandi staði, en það er líka alltaf gott að setjast inná veitingastað, sem maður þekkir, í loftkældu um hverfi og borða hamborgara.

Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að komast hingað inní miðja Bangkok. Flugið frá Luang Prabang í Laos var fínt, en á leið minni inní Bangkok lenti ég hjá leiðinlegasta, feitasta, ljótasta, heimskasta og óheiðarlegasta leigubílstjóra Í HEIMI! Ég vil meina að það þurfi mikið til að æsa mig upp, en mikið afskaplega átti þetta fífl auðvelt með það. Hann keyrði mig um hálfa borgina, reyndi að fara með mig á 5 hótel, sem hann var að prómótera (þrátt fyrir að ég hefði sagt í upphafi að ég vildi ekkert neitt sölukjaftæði – þar sem ég er búinn að kynnast leigubílstjórum í Bangkok) og á endanum hafði hann svo enga hugmynd um hvar hótelið mitt var og neitaði að keyra lengra. Ég var orðinn svo reiður að ég var næstum því byrjaður að öskra á hann, en á endanum rauk ég útúr taxanum og kastaði peningnum í götuna og labbaði svo burt. Tókst svo eftir um hálftíma labb að finna hótelið mitt.

Eftir sturtu var ég orðinn hress og fór því og fékk mér að borða á …wait for it… wait for it… McDonald’s. Skoðaði mig um í verslanarmiðstöð, fór í enska bókabúð þar sem ég keypti mér nýjar bækur og skellti mér svo í bíó. Og ég vil skjalfesta það hér og nú að [The Departed](http://www.metacritic.com/film/titles/departed) er besta fokking mynd, sem ég hef séð í marga, marga, marga mánuði. Þvílík og önnur eins gargandi snilld! Ég var í losti heillengi eftir að ég labbaði útúr bíóinu. Hluti af því var að það var 15 gráðu frost í bíóinu og ég í stuttbuxum og sandölum, en stærsti parturinn var hversu mögnuð myndin er. Vá! Hlaupið útí bíó ef hún er komin til Íslands!

Síðustu dagarnir í Luang Prabang voru rólegir. Ég skoðaði restina af því, sem var að skoða þar og fór svo á laoskt matreiðslunámskeið með 2 miðaldra hjónum frá Bandaríkjunum. Það var alveg ljómandi skemmtilegt, við elduðum 5 rétti, sem voru hver öðrum skrýtnari og fylgdumst með kokki elda eitthvað fleira. Mjög skemmtilegt.

Ég ætla að eyða morgundeginum í Bangkok í að versla. Ég valdi hótel með tilliti til þess að vera nálægt helstu verslunargötunum í borginni. Svo á ég seint annað kvöld flug til Dubai og þaðan til London. Ég á að fara í loftið klukkan 2 um nóttina og lenda í London klukkan 7, þar sem ég græði heila 7 klukkutíma í tímamismun. Í London hef ég svo einn og hálfan dag og á svo flug heim á fimmtudagskvöld.

*Skrifað í Bangkok, Tælandi klukkan 22:04*

8 thoughts on “Suð-Austur Asíuferð 16: Ert þetta þú, Bangkok?”

  1. Vá hvað ég þekki þessa tilfinningu, eftir 2 mánuði í grænmetisríkinu Indlandi var McDonalds það fyrsta sem ég gekk inná á Khao San, síðan fór ég og fékk mér Frappusino á StarBucks. Eftir það gat ég farið að éta götumatinn í Bangkok og haldið áfram að ganga um í rifnu buxunum mínum og handónýtu sandölunum.

  2. Ég er klárlega farin að endurskoða titil minn sem heimsborgari eftir að lesa þessa heimasíðu reglulega. Kemst engan vegin með tærnar þar sem þú hefur hælana (tækifærin kannski takmörkuð) en ég stefni þó á að fara til Hong Kong um páskana 🙂 Kannski ekki svo framandi en í mínum huga spennandi.
    Þú kannski skellir inn einni uppskrift hérna á síðuna, sem þú lærðir á þessu námskeiði 🙂
    En allavega þá segi ég bara hafðu það gott sem eftir lifir ferðar og góða ferð heim.

    😉 😉 😉 🙂 🙂

  3. Hvaða sponsor ertu með?

    Hvernig hefur þú efni á því að vera alltaf í þessum ferðalögum?

  4. Það er búið að vera frábært að fylgjast með þér á þessu ferðalagi. Mjög skemmtilegt hvernig þú segir frá því sem þú ert að upplifa. Takk. og góða ferð heim 🙂

  5. Ég er búin að fylgjast spennt með færslum frá þér síðustu tvo mánuðina, kærar þakkir fyrir frábæra frásögn af framandi stöðum!

    Njóttu nú síðustu daganna vel áður en stressið hérna heltekur þig – góða ferð heim 😉

  6. Lilja: Jú, það er rétt – Serranos varð 4 ára gamall á miðvikudaginn. Takk 🙂

    Thelma: Takk 🙂

    Sigmar Þröstur: Með því að vera í vel launaðri vinnu, með því að ferðast á ódýran hátt og með því að eyða ekki peningunum mínum í eintóma vitleysu einsog meirihluti ungs fólks á Íslandi í dag. Ferðin til SuðAustur Asíu í 8 vikur kostaði sennilega með flugfari um 200.000 krónur. Sumir fara með meiri pening á nokkrum dögum í London.

    Heiða og Sessý: Takk 🙂

Comments are closed.