Suð-Austur Asíuferð 17: Ísland, fagra Ísland


Kominn heim eftir fáránlega langt ferðalag. Flugið frá Bangkok til London tók um 15 tíma og auk þess græddi ég 7 tíma í tímamismun, þannig að ég kom alveg kexruglaður til London á miðvikudag, tékkaði mig inná hótel og datt svo niður á rúm og svaf mestallan daginn. Notaði svo gærdaginn í að kíkja í búðir og kaupa föt. Flaug svo með IceExpress til Keflavíkur í gærkvöldi.

Í Bangkok gerðist svo sem ekki mikið meira en ég var búinn að tala um. Ég hitti íslenskt par, Kidda og Heiðrúnu, sem voru að byrja ferðalag um SuðAustur Asíu. Þau höfðu heyrt af blogginu mínu og voru í sambandi í kjölfarið og við hittumst í smá tíma til að ræða um ferðina. Ég eyddi svo bara tímanum í að ráfa um verslanirnar í Bangkok.

Og núna er ég kominn heim og var að koma inn eftir að hafa unnið í allan dag. Það er auðvitað fáránlega mikið búið að hlaðast upp af verkefnum, en það er líka bara skemmtilegt. Ég þarf að klára mörg mál varðandi vinnu og líka varðandi mitt einkalíf.

Ég mun setja inn einhverjar myndir á næstu dögum eftir að ég er búinn að laga þær til og merkja.

En allavegana, ég vona að fólk hafi haft gaman af þessum ferðasögum mínum. Þessi ferð var algjörlega frábær fyrir mig og ég vona að mér hafi tekist að koma einhverju af því vel til skila til ykkar. Einsog ég hef áður sagt, þá vil ég ekki endilega koma afslappaður heim úr fríi, heldur finnst mér miklu skemmtilegra að koma þreyttur heim, en fullur af æðislegum minningum um skemmtileg ævintýri. Ég er kannski þreyttur, en ég er samt fullur af krafti og tilbúinn í að glíma við ný verkefni.

Takk.

*Skrifað í Vesturbæ Reykjavíkur*

9 thoughts on “Suð-Austur Asíuferð 17: Ísland, fagra Ísland”

  1. Velkominn heim félagi. Það er búið að vera frábært að lesa þessar ferðasögur, þær eru okkur hinum góð tilbreyting í skammdeginu hérna heima. 🙂

  2. Velkominn heim. Þetta eru frábærar ferðasögur sem þú hefur skrifað. Ég þekki þig ekki neitt en finnst alltaf gaman að lesa bloggið þitt. Ég veit hvert ég leita eftir heimildum ef ég mun einhvern tíma ferðast um þetta svæði í Asíu 🙂

  3. Ég er nú bara hálf svekkt að þú sért kominn aftur til Íslands, skemmti mér svo vel að lesa þessa frábæru ferðasögu, en gangi þér vel með allt heima 🙂
    Rakel

  4. Þakka þér. Ég mun pottþétt heimsækja t.d. Laos eftir þessi skrif þín hér. Já og velkominn aftur í hverfið!

Comments are closed.