« desember 15, 2004 | Main | desember 19, 2004 »

Ðí Batselorette

desember 16, 2004

Ó, ég elska raunveruleikasjónvarp! Núna er byrjað ný sería af The Bachelorette, þar sem nokkrir strákar keppa um hylli þessarar þrítugu gellu. Ég missti af fyrsta þættinum vegna Liverpool fótbolta, en sá þátt númer 2 í gær. Hann var snilld! Gargandi snilld!

Í fyrsta lagi var það hálf scary að nokkrir þessir gaurar voru jafngamlir og ég, en þeir voru allir að pipra á lífinu og vildu helst ekki bíða stundinni lengur eftir því að eignast börn. Þeir voru allir ofsalega hrifnir af þessari Meredith og sáu hana fyrst og fremst sem eitthvað, sem gæti fært þeim þessi börn. Í þessum þætti fékk einn gaurinn prívat stefnumót, en hinir voru á hóp-stefnumótum.

Það voru í raun engin takmörk fyrir fáránlegum línum hjá þessum gaurum í þættinum. Fyrstan ber að telja gaurinn, sem Meredith fékk einkastefnumót með. Þau hittust í einhverri höll og áttu þar að borða saman. Meredith spyr hann þá hver séu áhugamál hans. Ég er ekki með svarið 100%, en það var eitthvað á þessa leið:

I like to travel, but I’m not the outdoor-sy type. I’m still caught in the whole metrosexual thing. I love to take care of myself.

Vá! Þetta er eiginlega OF mikil snilld. Samkvæmt vísindalegum könnunum á ég víst að teljast dálítið metró, en aldrei dytti mér í hug að monta mig af því við stelpu. Eru ekki stelpur fyrst og fremst að leitast eftir því að menn séu sæmilega vel lyktandi og snyrtilegir, en ekki að þeir geti talað um safnið sitt af húðkremum? Þannig ímynda ég mér þetta allavegana. Já, og þýðendur Skjás Eins þýddu metrósexúal sem “buxnaskjóni”!!!

Allavegana, gaurinn hélt svo áfram að sýna sig. Skyndilega kom svo inn þjónn og hellti vín í glösin þeirra. Gaurinn stoppaði þá þjóninn og sagði án efa bestu línu þáttarins:

ahm, do you have some Californa Oak Chardonnay.

Halló. Í fyrsta lagi, þá biður enginn karlmaður um hvítvín! Í öðru lagi, hversu tilgerðarlegt er að biðja einhvern random þjón um einhverja ákveðna tegund af hvítvíni? Come on! Ef ég væri stelpan, hefði ég ælt nákvæmlega á þeirri stundu.

Allavegana, það voru samt fleiri, sem voru enn meira desperate. Til dæmis einn, sem lá uppí rúmi með Meredith og sagði: “Ég get ímyndað mér þig ólétta með barnið okkar”. KRÆST!

Já, og annar, sem loksins náði “one on one” tíma með Meredith og nýtti þann tíma til að segja: “I want something, I want Kids”. Hann fékk ekki rós. Ég veit ekki alveg hvort gaurarnir eru að tapa sér eða hvort þeir hafi lesið of mikið af bókum, sem segi að allar stelpur séu að leita sér að “commitment” eða einhverri ámóta vitleysu.

Ég hef áður haldið því fram að Bachelorette geti aldrei verið jafn skemmtilegur og The Bachelor vegna þess að strákar geta/nenna ekki að rífast jafn mikið og stelpur og því verður ekkert um slagsmál og rifrildi. Hins vegar eru þessir gaurar svo stórkostlega desperate að þetta lítur út fyrir að þetta verði verulega skemmtileg þáttaröð.

Já, fyrir utan það að ég veit hver vann. En auðvitað segi ég ekki frá því hér.

511 Orð | Ummæli (7) | Flokkur: Sjónvarp

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33