« júlí 27, 2004 | Main | júlí 30, 2004 »

Íslenskir karlmenn og strípur

júlí 28, 2004

Í morgun setti ég fram kenningu á síðunni hennar katrínar, sem ég hef lengi verið að velta fyrir mér. Það er sú kenning mín að allir íslenskir karlmenn séu með strípur.

Ég henti þessu fram, en ákvað svo eftir smá umhugsun að slípa kenninguna aðeins til. Úr varð eftirfarandi kenning: “3/4 ljóshærðra karlmanna á Íslandi eru með strípur”.

Þetta virðist kannski ekki vera byltingarkennd kenning, en samt er þetta mögnuð kenning. Ég hangi eyði mínum tíma kannski bara á svona fáránlegum stöðum, en það er ekki lengur fyndið hversu margir ljóshærðir karlmenn á Íslandi eru með ljósar strípur. Eru allir að reyna að líkjast Eið Smára, eða er þetta eitthvað annað?

Nú hef ég ekki verið með strípur síðan ég var í Verzló (í þeim skóla var hárið mitt, nánast án undantekninga, hræðilegt. Annaðhvort sökum síddar eða hræðilegs háralits) en hætti því þegar ég fór til Bandaríkjanna, enda var maður nánast litinn hornauga ef maður setti gel í hárið í háskólanum mínum. Allir voru svo ofboðslega líbó á því að maður skar sig úr ef maður greiddi sér á morgnana. Hefði ég verið með strípur þar, hefði ég sennilega verið rekinn úr skólanum.


Æi, voðalega er þetta eitthvað losaraleg færsla. Ætli þetta sé ekki bara prelude að nýrri færslu um hárið á mér, þar sem ég hef ekki skrifað um það í langan tíma (fyrir nýja lesendur, þá má fræðast um hárið mitt með að lesa þessar færslur: 1, 2 og 3).

Það hefur nefnilega margt breyst síðan ég skrifaði síðast. Ég hef nefnilega ekki verið með síðara hár í mörg ár (með sítt að aftan og allt). Ég veit að lesendur iða í skinninu eftir því að lesa um hvernig það hefur breyst síðustu vikurnar. Það verður hins vegar að bíða. Í stað ætla ég bara að benda á hvað Biblían segir um þetta allt:

No man should dye his hair

Þar segir líka:

Fleece is for exercising and snow-shoveling and-let us not forget-is manufatured from recycled soda bottles.

Já, og þetta:

Hats will make a comeback someday.
It is not that day

Mikil speki.

Og þetta er að öllum líkindum sundurleitasta færslan á þessari síðu í marga mánuði. Er þetta þreyta, Popplagið með Sigur Rós eða eitthvað verra? Ég veit nefnilega varla hvað ég á að skrifa á þessa síðu lengur. Mig er farið að hlakka Ég hlakka til helgarinnar.

392 Orð | Ummæli (8) | Flokkur: Dagbók

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33