« september 24, 2004 | Main | september 27, 2004 »

Eldhúsinnrétting til sölu

september 26, 2004

Ég asnaðist til að taka þá stóru ákvörðun að skipta um eldhúsinnréttingu hérna á Hagamelnum. Því er gamla innréttingin til sölu.

Þetta eru semsagt tvær einingar.

Önnur er 182 cm á lengd og 60 cm á breidd. Neðri parturinn er með skápum og skúffum. Ásamt því er helluborð og ofn (fylgir allt með). Efri parturinn er með viftu, kryddhillu og skápum báðum megin við viftuna.

Hin einingin er 140 cm á lengd og 60 cm á breidd, með vaski og blöndunartæki.

Þetta er mynd af minni einingunni:

Þetta er mynd af stærri einunginni:

Innréttingin selst ódýrt. Það fylgir semsagt helluborð, ofn, vaskur og blöndunartæki. Ef þú mætir á staðinn og tekur innréttinguna niður, þá fer hún mjög ódýrt.

Tilboð óskast. Hægt er að hringja í mig 896-9577, eða senda mér tölvupóst á einarorn (hjá) gmail.com

134 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Viðskipti

Um Jón Steinar

september 26, 2004

Þessi grein á Múrnum er SNILLD: Líkræður um lifandi menn.

10 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál