« desember 04, 2004 | Main | desember 06, 2004 »

Queer Eye handrit!

desember 05, 2004

Vá, heimur minn hefur hrunið.

Joel Stein, pistlahöfundur í Time, skrifar grein í LA Times þar sem hann fjallar um veruleikasjónvarpsþætti. Þar talar hann um að Simple Life sé skrifaður frá upphafi til enda, sem kemur svo sem ekki á óvart.

Það, sem kemur hins vegar á óvart er að Stein birtir HANDRIT að Queer Eye for the Straight Guy þætti!!!

Auðvitað vissi maður að þátturinn væri vel undirbúinn, en það virðist einnig vera sem að einstaka línur og atburðir séu undirbúnir. Þannig að allar línurnar hans Carsons, sem virðast koma óundirbúnar þegar hann finnur ákveðna hluti í íbúðum karlanna, eru víst margar hverjar undibrúnar.

Handritið er nokkuð magnað. Þar er talað um hverju hommarnir eiga að taka eftir í íbúðinni, hvað þeir eiga að tala um í fatabúðinni og öll ráðin, sem Jai gefur þeim gagnkynhneigða eru þarna á blaði.

Ja hérna! Say it ain’t so. (via MeFi)

149 Orð | Ummæli (6) | Flokkur: Sjónvarp

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33