« Nýtt slagorð fyrir Ísland - og myndavélakaup | Aðalsíða | Jarðskjálftar »

Fullkominn endir á plötu

28. mars, 2005

Kristján Atli var með skemmtilegar pælingar á sinni síðu um hvað væru bestu endalög á plötum að hans mati. Ég kommentaði hjá honum, en kommentið kom eitthvað skringilega út. Þannig að hérna eru mínar hugmyndir.

Ef að það á að velja bestu endalög á plötum, þá má að mínu mati bara telja lög, sem eru frábær endirá frábærum plötum. Ekki góð lög, sem slysast til að vera lokalag á lélgum plötum. Þetta verður að vera nokkurs konar toppur á plötunni.

Allavegana, án efa besti endir á plötu eru lögin Brain Damage og Eclipse af Dark Side of the Moon. Ekki nokkur einasta spurning. Ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég hlusta á þau tvö lög.

Einnig:

Empty Cans af Grand don’t come for free með Streets
Freebird af Pronounced Leh-Nerd Skin-Nerd með Lynyrd Skynyrd
Sad Eyed Lady of the Lowlands af Blonde on Blonde með Dylan
A Day in the Life af Sgt. Pepper’s með Bítlunum
Everything’s not lost af Parachutes með Coldplay
High Hopes af Division Bell með Pink Floyd
Oh! Sweet Nuthin’ af Loaded með Velvet Underground
Og svo auðvitað Only in Dreams af bláu plötunni með Weezer.

Þetta datt mér allavegana í hug eftir smá pælingar. Er þó ábyggilega að gleyma einhverju augljósu.

Einar Örn uppfærði kl. 12:43 | 205 Orð | Flokkur: Tónlist



Ummæli (13)


Eitt flottasta lokalag sem ég veit um er coverið hans Nick Cave af Death is not the end í lokin á Murder Ballads

Særún María sendi inn - 28.03.05 13:44 - (Ummæli #1)

Eskimo / Prague / Silent Night á O Damiens Rice, 3 frábær lokalög á einu trakki

Ásgeir H sendi inn - 28.03.05 15:34 - (Ummæli #2)

Wolf Notes af Blueberry Boat með The Fiery Furnaces

Gunnar Hafsteinsson sendi inn - 28.03.05 17:20 - (Ummæli #3)

Tek algjörlega undir með Ásgeir H. - ‘O’ á vissulega skilið að vera nefnd í þessu samhengi.

Kristján Atli sendi inn - 28.03.05 18:29 - (Ummæli #4)

Takk kærlega fyrir þetta Ásgeir, mín útgáfa af O endar bara á Eskimo. Ég er að reyna að finna þessa útgáfu, sem þú talar um.

Og ég ætla líka að tékka á þessu, sem þið bendið á, Gunnar og Særún. Hef alltaf ætlað að hlusta á Murder Ballads en aldrei lagt í það.

Einar Örn sendi inn - 28.03.05 20:13 - (Ummæli #5)

Til að byrja með:

Exhausted - Foo Fighters af Foo Fighters

Coma - Guns N´Roses af Use Your Illusion 1

Indifference - Pearl Jam af Vs

Of mikið grugg í itunes safninu mínu?

pallih sendi inn - 28.03.05 20:17 - (Ummæli #6)

Og hvernig gat ég gleymt:

Still Life - Suede af Dog Man Star

pallih sendi inn - 28.03.05 20:20 - (Ummæli #7)

Sem lokalag er Sara (af Desire) mun betri kandidat á þessum lista en Sad Eyed Lady…

Hvað með The End á The Doors? Ekki það að tónleikaútgáfur af þessu lagi voru mun magnaðari.

Hvað með Goodnight Ladies á Transformer. Yndislegt lag sem einhvern passar svo vel við um leið og það stingur algjörlega í stúf við annað.

Annars verð ég að koma með eitt íslenskt lokalag:

Jón var kræfur karl og hraustur með Þursunum af plötunni Nútíminn. Ég hækka alltaf í botn þegar kemur að því lagi þegar ég hlusta á þá plötu, sem annars er ekki beint blöstuð :-)

Persónulegt uppáhald er svo One of Us Cannot be Wrong af Songs of Leonard Cohen. En það bara sérviska í mér.

Ágúst sendi inn - 29.03.05 00:45 - (Ummæli #8)

Ok, ég er alveg ósammála með Sara og Sad Eyed Lady. Gæti líka verið vegna þess að ég held að ég fíli Blonde on Blonde betur en Desire en það sé á hinn veginn hjá þér, Ágúst.

Annars keypti ég Songs of L. Cohen fyrir einhverjum mánuðum eftir þín meðmæli en gafst uppá þriðju hlustun. Ætla að gefa henni annan sjens af því að við erum svo innilega sammála um ástandið í Ísrael :-)

Og sammála með Indifference, sem og Still Life. Bæði æði. Ætli ég hafi ekki hlustað svona 200 sinnum á Dog Man Star þegar hún kom út.

Einar Örn sendi inn - 29.03.05 01:00 - (Ummæli #9)

Þetta er engin keppni,

Abbey Road síðasta plata Bítlana endar á The End og fer beint yfir í Her Majesty, besti endir á plötu sem til er. Ekki bara að þetta endar á fræbæru lagi (The End) og bítskiptar yfir í 20sek jingle eftir Paul McCartney.

Þetta er ekki bara besta lokalagið heldur líka síðasta upptaka Bítlanna eins og við þekkjum þá.

Gummi Jóh sendi inn - 29.03.05 11:45 - (Ummæli #10)

Blah.. óttlega er samhengislaus setning hjá mér.

Gummi Jóh sendi inn - 29.03.05 11:46 - (Ummæli #11)

Einar, Ásgeir er að tala um lokalagið á ‘O’, sem er bara nefnt Eskimo en inniheldur “aukalögin” Prague og Silent Night. Saman mynda þessir þrír lagabútar ‘lokalag’ plötunnar ‘O’ … held allavega að það sé það sem hann er að tala um.

Kristján Atli sendi inn - 29.03.05 11:51 - (Ummæli #12)

Jamm, Kristján, ég áttaði mig á því. O, sem ég á, var reyndar sjóræningjaútgáfa. Ég var að fatta það, keypti reyndar B-Sides í búð. Allavegana á þessari sjóræningjaútgáfu þá er Eskimo bara eitthvað “live” lag og platan endar á því.

Ég fór á netið í gær og náði mér í rétta útgáfu með Prague og Silent Night. Miklu betra :-)

Og auðvitað getur Abbey Road líka átt heima á þessum lista. Mér finnst bara Day in the Life svo miklu betra en The End, þrátt fyrir að The End sé frábær endir á lagasyrpunni á Abbey Road.

Einar Örn sendi inn - 29.03.05 18:31 - (Ummæli #13)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu