Vandamál Sýnar

Fyrir yfir 20 árum síðan stofnaði ég Liverpool bloggið og einsog glöggir lesendur þessa bloggs eru eflaust meðvitaðir um þá hef ég áhuga á fótbolta.  

Þegar ég bjó í Svíþjóð var ég fyrst með enska boltann hjá Canal+ og síðustu árin keypti ég áskrift hjá Viaplay, þar sem Lars Lagerbeck, Freddie Ljungberg og fleiri spekingar fjalla um ensku deildina og Meistaradeildina.

Eftir að ég flutti heim prófaði ég að kaupa enska boltann hjá Símanum, en mér féllust hendur þegar ég prófaði Síma-appið (sem var ónothæft) og þar sem ég gat enn virkjað gömlu Viaplay áskriftina mína þá gerði ég það og sagði upp áskriftinni að Sjónvarpi Símans.

Síðasta haust þegar að Sýn tók við enska boltanum ákvað ég að gefa Sýn alvöru sjens.

Ég held með Sýn!  Ég var líka hrifinn af þeirri dagskrárgerð sem var skipulögð í kringum enska boltann með þáttum einsog Doczone og Big Ben.  Ég vissi þó að ég væri að fórna einhverju.  Ég var meðvitaður að pre og postgame umfjöllun væri ekki af sama kalíberi og að Sýn gætu ekki verið með lýsendur sem búa á Englandi líkt og Viaplay gera.

En ég var alveg tilbúinn að fórna því.  Ég var líka að hugsa um að strákarnir mínir (7 og 13 ára sem eeeeelska fótbolta) myndu horfa á leikina á íslensku og allar íslensku íþróttirnar voru frábær bónus.

Ég ákvað að taka allan pakkann hjá Sýn.  Ég skipti um heimanet, gsm síma og fékk meira að segja myndlykil til að horfa á fótboltann í (að ég hélt) bestu gæðum.  

En fyrir utan það að mér finnst dagskrárgerðin oftast vera mjög fín þá hefur öll tæknihliðin verið í svo slæm að ég er við það að gefast upp og skipta bara aftur yfir í sænska Viaplay (ef ekki væru fyrir íslenskar íþróttir þá væri ég búinn að því).

Forsvarsmenn Sýnar virðast vera talsvert upptekin af því að fólk horfi ólöglega á enska boltann og ég skil þann pirring afskaplega vel.  En að mínu mati þá mun Sýn aldrei ná að vinna þá baráttu nema með því að bjóða uppá betri vöru en ólöglegar streymisveitur bjóða uppá.  

Því miður má í dag segja að upplifunin á Sýn sé að mörgu leyti verri en sú sem hægt er að fá með ólöglegum streymisveitum.

Hérna eru bara nokkur dæmi.

1 Gæðin á útsendingum í sjónvarpi.

Ég er með internet frá Sýn og bý bara 800 metra frá höfuðstöðvum stöðvarinnar.  Ég hef prófað myndlykil frá Sýn og einnig notað Sýn appið, bæði á Samsung sjónvarpinu mínu og á AppleTv.  Þrátt fyrir þetta allt þá eru gæðin hræðileg.  Sjáið bara þetta!

Okei, þetta er reyndar aðallega hörmung af því að þetta er þessi blessaða 5 manna varnarlína Liverpool frá leiknum gegn PSG í París. En skoðið líka myndgæðin. Þetta er bara eðlilegt sjónarhorn á fótboltaleik, en það er ekki hægt að greina eitt einasta andlit og línurnar eru ekki beinar – sjá hérna zoomað inná línurnar.

Hvaða Liverpool leikmaður er þetta eiginlega? Ég myndi giska á Joe Gomez bara út frá því hvar hann er staðsettur.

Gæðin eru mun verri en á Viaplay og jafnvel verri en í ólöglegum streymisveitum.  Af hverju sýnir Sýn ekki leikina í hæstu gæðum?  Af hverju borga ég nærri því 25.000 krónur á mánuði fyrir sjónvarp og internet frá Sýn og fæ að upplifa svona gæði? 

2 Appið í sjónvarpinu er ekki gott

Kosturinn við að kaupa Viaplay eða Sýn umfram það að vera með ólöglegt streymi er meðal annars að það er hægt að spóla fram og tilbaka í útsendingunni.  

Fyrir utan Liverpool er ég mjög casual fótboltaaðdáandi.  Ég droppa inní útsendingar úr enska boltanum og Meistaradeildinni og vil þá skoða þau mörk sem eru komin.  Þegar ég spóla tilbaka nokkrum sinnum til að finna markið þá er mér nánast án undantekningar hent útúr útsendingunni og alveg að byrjunni.  Sýn ætti að gera mér auðvelt að horfa á leikina á þennan máta, en gerir það þessu í stað nánast ómögulegt.

Fyrstu mánuðina með Sýn var Apple TV appið nánast ónýtt.  Útsendingar klikkuðu ítrekað, en það hefur eitthvað lagast síðustu mánuði.

3 Hljóðvinnslan í útsendingum

Ég veit að lýsendurnir á Sýn sitja á Suðurlandsbraut en ekki á Anfield, en af hverju er hljó´ðið svona illa blandað? Er ekki hægt að hækka í vallarlátum og mixa lýsandann hann þannig að hann hljómi einsog hann sé á vellinum? Með nútíma tækni hlýtur það að vera hægt og það myndi bæta upplifunina talsvert.

4 Símaappið er ekki gott

Hvar á ég að byrja?

Jú, það er ekki hægt að horfa á leik og skoða önnur öpp á sama tíma.  Þannig að ef ég er að horfa á leik í appinu og vil kíkja á Fotmob eða X, til að sjá hvað er að gerast, þá HÆTTIR útsendingin í Sýnar-appinu.  Það er glórulaust á árinu 2026.

Það er ekki hægt að spóla fram eða tilbaka í útsendingunni nema að setja leikinn í portrait mode, spóla, og setja hann svo aftur í landscape.

Bara þetta gerir notagildi appsins svo miklu verra en það gæti verið.

Ef að Sýn vill fá fleiri áskrifendur að útsendingum sínum þá verður fyrirtækið að laga tæknimálin.  Sýn verður að bjóða aðdáendum fótbolta uppá bestu mögulegu gæði í útsendingum í sjónvarpi og hágæða app þar sem maður getur fylgst með mörgum leikjum og skoðað X og úrslit án þess að allt fari í rugl.  Þá er ég viss um að fleiri myndu velja þessa íslensku þjónustu í stað þess að kaupa sér ólöglegar streymisveitur.

Viðtal við Roger Ebert

Ég er lengi búinn að ætla að vísa á þetta viðtal við Roger Ebert, sem að birtist í Esquire.  Ebert er Chicago búi og sennilega þekktasti kvikmyndagagnrýnandi í heimi.  Fyrir nokkrum árum þurfti að fjarlægja kjálkann úr Ebert vegna krabbameins og síðan þá hefur hann hvorki getað borðað né talað.

Síðan þá hefur hann notað netið í sífellt meira mæli og er orðinn einn af vinsælustu Twitter notendunum – og sá sem ég hef einna mest gaman af að lesa.

Í vikunni var hann svo gestur hjá Opruh.  Gawker birtir nokkra búta úr því viðtali. Allavegana, ég mæli með Ebert á Twitter og greininni í Esquire.

Verðlagning Sýnar

Ég þarf nauðsynlega að fara að skrifa e-ð á þessa síðu.  Hef svo sem nóg til að skrifa um.

En þangað til þá bendi ég á þessa [grein og umræðu á Liverpool blogginu um verðlagningu á Sýn 2](https://www.eoe.is/liverpool/gamalt/2007/07/21/12.55.07/).  Okkur á blogginu tókst að koma af stað mjög góðum umræðum um þessa verðlagningu og varð það m.a. til þess að rætt var um þetta í íþróttaþætti í útvarpinu í hádeginu og einnig verður fjallað um þetta í Íslandi í Dag.

Annars er ég bara hress.

Lesbísk gengi að taka yfir Bandaríkin, Fratellis, Emil og fleira

Ó, Bill O’Reilly er snillingur

Eftir viðtalið viðurkenndi viðmælandi Bills eftirfarandi hluti:

Hann sagði í viðtalinu að í Washington DC væri 150 lesbísk gengi. Hið rétta er að í borginni eru 150 gengi og af þeim séu hugsanlega einhver lesbísk. Einnig sagði hann í viðtalinu að þessi lesbísku gengi væru orðin landlæg plága, en réttara hefði verið að segja að á landsvísu væru vaxandi áhyggjur af öllum tegundum af gengjum og að einhver þessara gengja væru lesbísk.

Fox News klikka ekki. (via [Dlisted](http://dlisted.com/node/12433))

* * *

Þetta er [rosalegur bíó trailer](http://www.apple.com/trailers/paramount/11808/large.html) (via [DF](http://daringfireball.net/linked/2007/july#tue-10-011808))

* * *

Ég var [afskaplega hress (og drukkinn) á djamminu á Vegamótum á laugardaginn](http://www.flickr.com/photos/elinsvafa/756336427/) Þrátt fyrir að myndin af mér sé hræðileg, þá er hún samt betri en fyllerísmyndir af mér eru vanalega. Það segir meira en mörg orð. Emil vinur minn er þarna að pósa með pósu sem hann hefur sjálfur fullkomnað í gegnum árin. Pósan heitir “Að taka Emil”. Fáir ná henni jafnvel og hann.

* * *

Nú hlusta ég ekki á útvarp, þannig að ég veit ekki hvort að Flathead með The Fratellis var einhvern tímann vinsælt lag hérna á Íslandi. En eftir að ég kom frá USA er ég með það á heilanum. Mig langar alltaf til að hoppa þegar ég hlusta á það. Sem þýðir að ég hlusta helst aðeins á það inní herbergi hjá mér, svo að nágrannarnir haldi ekki að ég sé að verða geðveikur.

Þú getur hlustað á Fratellis lagið á [MæSpeis prófílnum þeirra](http://www.myspace.com/littlebabyfratelli). Ef þú vilt hlusta á lagið á meðan þú horfir á mynd af mér og lest um mig, þá geturðu líka hlustað á það á [MæSpeis prófílnum mínum](http://myspace.com/einaro). 🙂

Ok, ekki meira kaffi.

Ástir á MæSpeis og í Séð & Heyrt

Ó, það er svo rómó að skoða forsíðuna á Séð & Heyrt þessa vikuna, sem ég rakst á útí Melabúð (smellið á myndina til að fá stærri útgáfu).

MySpace ást

Tvennt er athyglisvert við þessa frétt. Fyrir það fyrsta, þá virðist vera einhver von fyrir þá þúsundir erlendra karlmanna, sem að hanga á MæSpeis síðum íslenskra stelpna (sérstaklega þeirra ljóshærðu). [Fyrst þessi ástarsaga](https://www.eoe.is/gamalt/2007/04/17/17.05.07/) og svo núna er það sjálf Ungfrú Ísland. Ég ætti kannski að eyða enn meiri tíma á MySpace 🙂

En án alls gríns, þá finnst mér seinni punkturinn við þetta mál vera hálf krípí – eða allavegana miðað við þær forsendur sem ég gef mér (sem ég veit ekki hvort eru réttar). Við greinina er slatti af myndum. Þar á meðal myndir af Jóhönnu með stjúpmömmu sinni og eftir að hún var krýnd Ungfrú Ísland. Þær myndir eru sagðar vera teknar af Birni Blöndal, en að aðrar myndir séu “úr safni”.

Þetta “úr safni” finnst mér hálf skrýtið þar sem ég get hreinlega ekki séð annað en að hinar myndirnar séu myndir teknar af MySpace síðu Jóhönnu. Þarna er stór mynd, sem ég get ekki betur séð en að sé [prófíl mynd Jóhönnu](http://www.myspace.com/jaywe) þessa stundina (þau að leiðast á ströndinni). Sú mynd er klárlega tekin af netinu þar sem hún er í mjög lélegri upplausn í Séð & Heyrt. Ég verð því að efast um að Jóhanna hafi látið S&H fá myndirnar – þar sem hún á væntanlega myndirnar í hærri upplausn í sínu einkasafni.

Hinar myndirnar sem eru í greininni eru svo alveg dæmigerðar MæSpeis myndir (meira að segja ein mynd sem er tekin í spegli – gæti ekki verið meira MæSpeis!). Til að mynda er mynd af stráknum í mjög grófri upplausn. Jóhanna er með lokað á sinn prófíl, nema fyrir vini, þannig að ég get ekki sannreynt að myndirnar séu allar á MySpace síðunni hennar.

Nú má vel vera að þetta sé allt rangt hjá mér – en einsog þetta lítur út fyrir mér þá hefur einhver frá Séð & Heyrt komist inná **lokaðan** MæSpeis prófíl hennar Jóhönnu (sem er væntanlega ekki ýkja erfitt), lesið ferðasöguna hennar og tekið svo myndirnar hennar og búið til úr því blaðagrein.

Mér finnst þetta alveg óheyrilega krípí.

RÚV?

Hefur einhver, sem

a) vinnur ekki fyrir fjölmiðla eða
b) er ekki á þingi

áhuga á þessu RÚV máli? Jesús hvað mér finnst þetta óspennandi. Ef að fréttir, Kastljós og Spegillinn fá að haldast á dagskrá, þá er mér nokk sama um RÚV.