« GWB | Aðalsíða | Verslunarmannahelgi »

Kominn heim.is

ágúst 02, 2002

Þá er ég kominn aftur heim til Íslands eftir hrikalega leiðinlega flugferð, mikið stress og mjög erfiða kveðjustund.

Ég er ennþá að átta mig á hlutunum og er búinn að tala við mjög fáa, enda var ég hálfruglaður í gær. Ferðin frá Chicago tók um 24 tíma enda þurfti ég að stoppa í 11 tíma í Boston. Vegna þess að skrifstofa Flugleiða opnar ekki fyrr en klukkan 4 á Logan flugvelli þurfti ég að bíða flugvellinum allan daginn í stað þess að fara inní Boston.

Ég nýtti þó tímann ágætlega og kláraði 1984 eftir Orwell, auk þess sem ég las Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger. Báðar mjög góðar bækur.

Síðustu dagarnir í Evanston voru erfiðir. Það var erfitt að kveðja alla vinina, því ég veit ekkert hvenær ég sé þá aftur. Það er gallinn við að búa í nýjum löndum að maður skilur alltaf eftir fulltaf góðum vinum, sem maður sér kannski aldrei aftur. Bíllinn minn olli mér líka miklu stressi, því enginn vildi kaupa. Loks síðasta kvöldið hringdi stelpa, sem hafði skoðað hann, og vildi kaupa. Við hittumst um 11 um kvöldið og keypti hún bílinn.

Síðusta kvöldið kvaddi ég svo alla vinina og við Katie fórum útað borða á Wolfgang Puck. Á miðvikudag keyrði Katie mig útá Midway, þar sem ég kvaddi hana og tók síðan flug þaðan til Boston.

Um helgina lítur svo út fyrir það að ég sé á leiðinni í Skaftafell með vinum mínum. Það verður ábbygilega gaman. Verst að það er ekki til Bud Light í Ríkinu. Spurning hvað ég á að kaupa í staðinn...

Einar Örn uppfærði kl. 09:37 | 264 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (4)


Ég mæli með alvöru Budweiser, þ.e. þessum frá Budweis… :-)

Finnbogi sendi inn - 02.08.02 15:10 - (Ummæli #1)

Svona m.v. að þú kjósir að vökva þig með Bud Light, sem er svona einsog að drekka koffeinlaust kaffi, þá held ég að þú komist næst með því að fá þér Egils Krital :-)

Annars myndi ég halda að þú fílaðir Spegils, það er svona fordrukkinn bjór… en Bud Ice, er það ekki eitthvað svipað? Hann er til í Ríkinu.

Annars hef ég ekki hundsvit á bjór, þannig ég veit ekki hvað ég er að tjá mig. Veit bara að því dekkri sem hann er því betri er hann :-)

Ágúst sendi inn - 02.08.02 16:51 - (Ummæli #2)

Bud Light er með svipað áfengismagn og flestir bjórar. Eina við hann er að í honum eru færri kaloríur, sem er ekki slæmt. :-)

Einar Örn sendi inn - 06.08.02 19:23 - (Ummæli #3)

Það er bragðleysið sem háir Bud og fleiri fjöldaframleiddum (fordrukknum - hehe) amerískum bjórum. Þeir eru bragðminni en kranavatnið - það er þó alla vega klórbragð að því :-)

Finnbogi sendi inn - 08.08.02 11:10 - (Ummæli #4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?